Hvalveiðar

Falsfréttir um áhrif hvalveiða
„Mogginn er genginn í björg“ skrifaði spök kona í vikunni á þræði á fésbók sem fjallaði um grein í Mbl um hve loftslagsvænar hvalveiðar væru. Einnig var því haldið fram að bann hvalveiða ynni gegn loftslagsmarkmiðum ríkisstjórnarinnar. Í því sambandi hef ég verið að velta því fyrir mér hugtakinu „fake news“ sem Trump hrópaði sí og æ í sinni forsetatíð - and-staðreyndir gegn staðreyndum; sá málflutningur er að verða honum að falli nú.

Hver er framtíð barna okkar?
Jóhanna Maggý Hauksdóttir skrifar um hvalveiðar Íslendinga.

Litlir karlar drepa ljúfa risa
Langreyður er næst stærsta dýr á jörðinni á eftir frænku sinni, steypireyðinni. Hún er skíðishvalur sem nærist að mestu á svifkrabbadýrum. Langreyður er farhvalur og er útbreidd um heimsins höf. Þær eru hvala hraðskreiðastar og geta synt á 45 km/klst hraða.

Vilja Íslendingar að allar þjóðir heims byrji hvalveiðar?
Andri Snær Magnason rithöfundur fjallar um hvalveiðar Íslendinga.

Reikistjörnur
Sjón skrifar um hvalveiðar Íslendinga.

Hvalasöngur
Íris Ásmundardóttir dansari fjallar um hvalveiðar Íslendinga.

Hvalveiðar eru græðgi
Sóley Stefánsdóttir skrifar um hvalveiðar.

Ákvörðun Svandísar ekki haft jákvæð áhrif á samstarfið
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun matvælaráðherra um að stöðva tímabundið hvalveiðar ekki hafa haft jákvæð áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Matvælaráðherra segir ekki tímabært að segja hvort hún banni hvalveiðar eftir fyrsta september þrátt fyrir að einungis þrjár vikur séu í að veiðarnar eigi að hefjast.

Ekki bjartsýnn á að hvalveiðar muni hefjast á ný
Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir matvælaráðherra verða að gefa það út sem allra fyrst hvort bann við hvalveiðum haldi áfram þann fyrsta september. Hvernig sem fer telur hann að málið muni enda fyrir dómstólum.

Dýr aðferð við að rústa orðspori landsins
Bragi Ólafsson skrifar um hvalveiðar Íslendinga.

Starfsmenn Hvals halda allir vinnunni
Engum starfsmanni Hvals, sem ráðinn var til fyrirtækisins vegna hvalveiðivertíðar í sumar, hefur verið sagt upp störfum í kjölfar ákvörðunar matvælaráðherra frá í júní að banna veiðar á langreyðum út ágústmánuð.

Hvað er siðblinda?
Má ég vera fantur ef ég bara brýt ekki lög?Þegar spurt er á vefsíðum „hvað er siðblinda“, þá birtast mörg svör og skýringar. Ein skýring er þó sameiginleg á flestum vefsíðum. Sú skýring er; að siðblind manneskja hefur ekki í sér færni að finna fyrir meðlíðan með öðrum. Siðblind manneskja hefur ekki getu til að finna til með eða setja sig í spor annarra. Hana skortir samhygð og getu að setja sig í annarra spor þó hún viti hvernig þeim líður. Hana skortir eftirsjá, og finnur ekki fyrir sektarkennd, þó hún valdi öðrum sársauka.

Segir Sjálfstæðisflokkinn vængstýfðan í samstarfi við Vinstri græna
Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir kurr meðal Sjálfstæðismanna og að hann telji Sjálfstæðisflokkinn ekki geta tekist á við veigamikil og aðkallandi mál í samstarfi við Vinstri græna.

Krefur ráðherra svara um hvalveiðibann
Umboðsmaður Alþingis hefur sent Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, bréf þar sem hann óskar eftir svörum um það hvort reglugerð sem bannar hvalveiðar tímabundið hafi verið gefin út og send til birtingar í Stjórnartíðindum áður en ríkisstjórnin var upplýst um setningu hennar.

Varðskip Færeyinga eltu skip Watsons úr lögsögu Færeyja
Færeyingum virðist hafa tekist að hrekja Paul Watson, stofnanda Sea Shepherd-samtakanna, burt frá Færeyjum þetta sumarið eftir að skip hans gerði tvær misheppnaðar tilraunir til að hindra grindhvalaveiðar Færeyinga.

Farþegar þurftu að horfa upp á grindhvaladráp
Breska skemmtiferðaskipafélagið Ambassador Cruise Lines hefur beðið farþega sína afsökunar fyrir að láta þá verða vitni að grindhvaladrápi. Meirihluti farþeganna var í uppnámi eftir atvikið.

Ekki enn tekist að koma hvalveiðibátum úr gömlu höfninni
Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 standa enn við Ægisgarð þrátt fyrir vilja Reykjavíkurborgar um að þeir verði fluttir þaðan burt. Nýjustu vendingar í hvalveiðimálum hafa ekki verið ræddar í borgarstjórn.

Landsmenn ósammála um ákvörðun Svandísar
Landsmenn skiptast nokkuð jafnt í fylkingar þegar kemur að skoðun þeirra á ákvörðun matvælaráðherra um tímabundið bann á hvalveiðum. Samkvæmt Þjóðarpúls Gallup eru tæp fjörutíu og tvö prósent ánægð með ákvörðunina en rúmlega þrjátíu og níu prósent eru óánægð.

Öngstræti matvælaráðherra
„Allar mínar ráðstafanir eru í samræmi við ráðgjöf ráðuneytisins,“ sagði matvælaráðherra í kvöldfréttum Stöðvar tvö fyrir helgi. Það má vel staldra við þá yfirlýsingu ráðherrans í ljósi þess að fyrir liggur hvaða ráðleggingar hún fékk frá ráðuneyti sínu, hvað hún svo gerði og hverjar afleiðingarnar eru af þeirri ákvörðun. Þessi fullyrðing stenst einfaldlega ekki skoðun. Kjarni málsins er þessi.

Hvað um hvalina?
Ég hlustaði á Spengisand Bylgjunnar þann 9 júlí, m.a. viðtalið við Óla Björn Kárason þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins um hvalveiðibannið.

„Ljóðrænt“ að Bergþór og Þórhildur Sunna séu sammála
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir það ljóðrænt að þingmennirnir Bergþór Ólason og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir séu sammála um að kalla þing saman vegna stórra mála.

„Það þýðir bara að ríkisstjórnin er sprungin“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað kallað eftir því undanfarið að þing verði kallað saman. Þingflokksformaður Miðflokksins segir neitun stjórnarflokkanna þess efnis til marks um það að stjórnin sé hreinlega sprungin.

Stjórnarandstaðan biður Katrínu um að kalla þing saman
Þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar á Alþingi hafa óskað eftir því við forsætisráðherra að gerð verði tillaga til forseta Íslands um að kalla þing saman aftur. Formennirnir segja að þingið þurfi að taka þrjú mál til umræðu.

„SFS er augljóslega að túlka málið sér í hag og ég er ósammála þeirri túlkun“
Matvælaráðherra hafnar allri gagnrýni framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og segir hana ekki rétta. Samtökin séu augljóslega að túlka málið sér í hag. Ekki standi til að afturkalla ákvörðunina um að fresta hvalveiðum í sumar.

Gögnin afhent – alvarlegur misbrestur blasir við
Í gær afhenti matvælaráðuneytið loks gögn í máli tengdu ákvörðun hennar um að stöðva veiðar fyrirvaralaust á langreyðum þetta sumarið. Voru þá liðnir 15 dagar frá því SFS óskuðu eftir umræddum gögnum.

Ríkisstjórnin hangi saman af ótta við kjósendur
Stjórnmálafræðiprófessor segir allt leika á reiðiskjálfi í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Flokkarnir eigi erfitt með að ná saman um einstök mál. Þetta leiði til þess að hver ráðherra vinni í sínu horni. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina hanga saman af ótta við kjósendur.

„Á mörkum mennskunnar“: Má ráðherra samþykkja, að dýr séu kvalin til dauða?
Ég horfði á Akranesfundinn um frestun ráðherra á heimild til hvalveiða. Fundurinn var á vegum Verkalýðsfélags Akraness og firnavel sóttur. Að áliti fundarboðanda sátu hann hátt í fimmhundruð manns.

Svandís endurheimti traust með því að draga ákvörðun sína til baka
Traust og trúnaður þarf að ríkja á milli ríkisstjórnarflokkanna til að hægt sé að takast á við þau verkefni sem hún stendur frammi fyrir, segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Framganga matvælaráðherra við tímabundið bann hennar á hvalveiðum væri bein ögrun við stjórnarsamstarfið

Segir ákvörðun Svandísar ögrun og aðför að ríkisstjórninni
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að fresta hvalveiðum sé „bein ögrun“ við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Íhugar að stefna Hvali hf. vegna launataps starfsmanna
Formaður Verkalýðsfélags Akraness íhugar að stefna Hvali hf. vegna launataps starfsmanna ef ekkert verði af vertíðinni í ár. Hann gagnrýnir þingmenn Norðvesturkjördæmis harðlega fyrir aðgerðarleysi eftir að matvælaráðherra setti tímabundið bann á veiðarnar.