Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Haukar báru sigurorð af Íslands- og bikarmeisturum Vals, 28-36, í Meistarakeppni kvenna í handbolta í kvöld. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir fór mikinn fyrir Hafnfirðinga í leiknum á Hlíðarenda. Handbolti 28.8.2026 19:30
Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handboltavertíðin á Íslandi hefst í kvöld og af því tilefni hélt HSÍ kynningarfund í dag, fyrir Olís- og Grill 66-deildir karla og kvenna. Þar var Eyjakonum spáð sigri í Olís-deild kvenna og Haukum sigri í Olís-deild karla. Handbolti 28.8.2026 12:01
Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Gísli Steinar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi og hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild félagsins. Handbolti 27.8.2026 22:16
Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Hafdís Renötudóttir, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals og landsliðskona í handbolta er gríðarlega vonsvikin með niðurstöðu HSÍ í máli er sneri að fordómum í hennar garð í úrslitaeinvígi efstu deildar sökum kynhneigðar hennar. Málið tók sinn toll á Hafdísi sem þurfti að grafa djúpt í leit að styrk. Handbolti 28. maí 2026 07:30
Lokahófi HSÍ aflýst Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að aflýsa Lokahófi HSÍ sem átti að fara fram næstkomandi laugardag í Austurbæ. Sport 27. maí 2026 15:26
„Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, gagnrýnir harðlega framkomu stuðningssveitar ÍBV í garð landsliðsmarkvarðarins Hafdísar Renötudóttur í leik liðanna á dögunum. Hann kallar eftir viðbrögðum vegna bakslags í réttindabaráttu minnihlutahópa hérlendis. Handbolti 15. maí 2026 11:11
„Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Hafdís Renötudóttir hefur opnað sig um erfiðleikana sem fylgdu því að verða fyrir fordómum í úrslitaeinvígi Vals og ÍBV í Olís deild kvenna í handbolta. Handbolti 15. maí 2026 08:40
„Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“ Lovísa Thompson skoraði sex mörk fyrir Val þegar liðið vann ÍBV og varð Íslandsmeistari í handbolta kvenna. Lovísa var valin mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar Handbolti 12. maí 2026 22:33
„Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, sá glasið hálffullt þrátt fyrir að lið hans hafi séð á eftir Íslandsmeistaratitlinum í handbolta kvenna til Vals eftir tap í fjórða leik liðanna í einvíginu í kvöld. Handbolti 12. maí 2026 21:19
„Ofboðslega stolt af því að standa hér sem sigurvegari“ Hafdís Renötudóttir varði 11 skot og aðstoðaði lið hennar, Val, að bera sigur úr býtum gegn ÍBV en sá sigur gerði það að verkum að Hlíðarendaliðið er Íslandsmeistari í handbolta kvenna. Handbolti 12. maí 2026 21:05
„Fann það þegar ég vaknaði í morgun að við værum on“ Elísa Elíasdóttir spilaði vel á báðum endum vallarins þegar Valur bar sigurorð af ÍBV í kvöld og landaði þar af leiðandi Íslandsmeistaratitli í handbolta kvenna. Handbolti 12. maí 2026 20:53
„Tímabilið hefur verið rússibani“ Valur vann alla stóru titlana í handbolta kvenna á fyrsta tímabilinu þar sem Anton Rúnarsson hélt um stjórnartaumana hjá liðinu. Anton var stoltur og þakkátur eftir sigurinn gegn ÍBV í kvöld sem tryggði Valsliðinu Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 12. maí 2026 20:45
„Slæm byrjun í seinni hálfleik varð okkur að falli“ Sandra Erlingsdóttir, fyrirliði ÍBV, fór fyrir sínu liðið þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Val í fjórða leik liðanna í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna. Sandra skoraði 12 mörk í leiknum en það dugði ekki til þess að knýja fram oddaleik og Valur stendur uppi sem Íslandsmeistari. Handbolti 12. maí 2026 20:38
Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Valur tryggði sér Íslndsmeistaratititilinn í handbolta kvenna með 30-26 sigri sínum gegn ÍBV í fjórða leik liðanna í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld. Handbolti 12. maí 2026 19:42
Katrín Tinna til Danmerkur Landsliðskonan í handbolta, Katrín Tinna Jensdóttir, hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið HH Elite. Hún hefur leikið með ÍR undanfarin tvö og hálft tímabil. Handbolti 12. maí 2026 13:37
„Við þurfum að gera betur á öllum vígstöðvum“ Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, segir liðið þurfa að þétta raðirnar varnarlega til að vinna ÍBV og verða Íslandsmeistari í kvöld. Valskonur stefna á að svara fyrir slæman skell í síðasta leik. Handbolti 12. maí 2026 12:45
ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns Handknattleiksdeild ÍBV hefur verið gerð sekt sem nemur 150 þúsund krónum sökum vítaverðrar og ósæmilegrar hegðunar stuðningsmans liðsins á leik í úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna milli ÍBV og Vals. Handbolti 10. maí 2026 15:34
Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Miklar breytingar verða gerðar á úrslitakeppninni í handbolta frá og með næstu leiktíð, hjá körlum og konum, og liðum í efstu deild kvenna fjölgað úr átta í tíu. Handbolti 9. maí 2026 20:05
Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu ÍBV er enn á lífi í einvígi sínu við Val um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna. Eyjakonur unnu sannfærandi sigur þegar liðin áttust við í þriðja leik sínum í úrslitum Olís-deildarinnar í N1-höllinni að Hlíðarenda í kvöld. Staðan í einvígi liðanna er þar af leiðandi 2-1 fyrir Val. Handbolti 9. maí 2026 18:32
Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna níðs í garð Hafdísar Renötudóttur á grundvelli kynhneigðar hennar í leik ÍBV og Vals í fyrrakvöld. Maðurinn sem varð vís að kalli í hennar garð hefur verið settur í bann og handknattleiksdeild ÍBV biður hana afsökunar. Handbolti 7. maí 2026 15:43
Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Stuðningsmenn ÍBV eru sakaðir um fordómafulla hegðun í garð Hafdísar Renötudóttur, markvarðar Vals, á grundvelli kynhneigðar hennar. Handbolti 7. maí 2026 14:40
Uppgjörið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Valur er komið 2-0 yfir í úrslitaeinvígi sínu gegn ÍBV í Olís deild kvenna í handbolta eftir tveggja marka sigur 25-23 í Vestmannaeyjum í kvöld. Valskonur geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í næsta leik liðanna á Hlíðarenda. Handbolti 5. maí 2026 20:09
Geta unnið 22. leikinn í röð: „Þetta verður stál í stál“ Valur og ÍBV mætast öðru sinni í úrslitum Olís-deildar kvenna í kvöld. Valskonur eru með 1-0 forystu í einvíginu og hefur gengið allt í haginn að undanförnu. Þjálfari Vals er þó með báða fætur á jörðinni og meðvitaður um styrk ÍBV. Handbolti 5. maí 2026 15:01
Thea fer í rúmenskt félag með íslenska tengingu Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir heldur út í atvinnumennsku í sumar, að afloknu úrslitaeinvíginu með Val gegn ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 4. maí 2026 10:31