Leik lokið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Ísland er úr leik Ísland er úr leik á heimsmeistaramótinu í handbolta og er þar með fyrsta liðið frá upphafi sem kemst ekki áfram úr milliriðli með átta stig. Það varð ljóst eftir 29-26 sigur Króatíu gegn Slóveníu í kvöld. Króatar enda því í efsta sæti milliriðilsins og mæta Ungverjalandi í átta liða úrslitum. Egyptaland endar í öðru sæti og mætir Frakklandi næst. Handbolti 26.1.2025 19:00
Egyptaland í átta liða úrslit eftir bras í byrjun Egyptaland vann sjö marka sigur á Grænhöfðaeyjum í síðasta leik þjóðanna í milliriðli á HM karla í handbolta. Sigurinn þýðir að Egyptaland er komið í átta liða úrslit. Síðar í kvöld kemur í ljós hvort Ísland eða Króatía fari einnig áfram í átta liða úrslit. Handbolti 26.1.2025 18:39
Guðmundur hefur trú á Slóveníu Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fredericia í Danmörku og fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, hefur trú á að Slóvenía geri Íslandi greiða í kvöld þegar liðin mætast á HM karla í handbolta. Handbolti 26.1.2025 18:14
Einkunnir Strákanna okkar á móti Argentínu: Við eigum einn besta markvörð í heimi Handbolti 26.1.2025 16:41
Stuðningurinn skiptir Ými mestu: „Fyrir þau myndi maður helst vilja að Króatar misstígi sig“ Handbolti 26.1.2025 16:28
Snorri ekki viss um að hann horfi í kvöld „Einhvers staðar hef ég smá trú, en hafandi spilað við Króatana á þeirra heimavelli þá held ég að líkurnar séu ekki okkur í hag,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari, nú þegar biðin er hafin eftir því að vita hver örlög Íslands verða á HM í handbolta. Handbolti 26. janúar 2025 16:13
Portúgal með stórsigur og mætir Þýskalandi í átta liða úrslitum Portúgal vann 46-28 stórsigur gegn Síle og tryggði sér efsta sætið í þriðja milliriðlinum á heimsmeistaramótinu í handbolta. Síle endar stigalaust í neðsta sætinu. Portúgal mun mæta Þýskalandi, lærisveinum Alfreðs Gíslasonar, í átta liða úrslitum. Handbolti 26. janúar 2025 16:09
Umfjöllun: Ísland - Argentína 30-21 | Strákarnir okkar lifa í voninni Strákarnir okkar gerðu sitt í dag með því að vinna Argentínu í lokaleik sínum í milliriðlakeppni HM í handbolta. Nú þurfa þeir að treysta á hjálp frá Grænhöfðaeyjum eða Slóveníu til að komast áfram í 8-liða úrslit, en það er ljóst að þeir enda í versta falli í 9. sæti mótsins. Handbolti 26. janúar 2025 15:43
Ísland í hóp tíu bestu í fyrsta sinn í langan tíma Ef Ísland vinnur Argentínu í dag eins og fastlega má gera ráð fyrir, á HM karla í handbolta, er öruggt að liðið endar í versta falli í 9. sæti mótsins. Það yrði besti árangur liðsins á HM síðan á bestu árum í sögu þess, eða árið 2011. Handbolti 26. janúar 2025 14:33
Stiven spilar sinn fyrsta leik á HM Vinstri hornamaðurinn Stiven Tobar Valencia er kominn inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn við Argentínu á HM í handbolta í dag. Sigvaldi Björn Guðjónsson er hins vegar ekki með. Handbolti 26. janúar 2025 12:40
Er í 90 prósent tilfella nóg „Manni líður ekkert vel. En eins og staðan er núna þurfum við bara að vinna næsta leik og munum gera það sem við getum til að vinna leikinn,“ segir Ýmir Örn Gíslason á hóteli íslenska landsliðsins í Zagreb degi eftir skell gegn Króötum. Handbolti 26. janúar 2025 12:30
Gætið ykkar: Engir bræður en einn heitur frá Benidorm Það er líklega ekki margt sem ber að varast fyrir íslenska landsliðið í dag, gegn slöku liði Argentínu. Ísland verður að vinna leikinn en þarf svo að treysta á að Grænhöfðaeyjar taki stig gegn Egyptalandi, eða að Slóvenía taki stig gegn Króatíu. Handbolti 26. janúar 2025 11:30
HM í dag: Fréttamaður í lífshættu og kvöldið ónýtt Mikil svaðilför á steikhús í Zagreb er rakin í HM í dag. Einn kafnaði næstum því á matnum, aðrir köfnuðu næstum úr skítafýlu og annar sturtaði sér yfir þjóninn vegna afgreiðslunnar. Handbolti 26. janúar 2025 11:03
Loforð Slóvena: Ætla að eyðileggja partýið hjá nágrönnum sínum Íslendingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að Slóvenar mæti í sinn síðasta leik á HM í handbolta í kvöld án þess að leggja allt í sölurnar til þess að vinna nágranna sína í Króatíu. Handbolti 26. janúar 2025 10:29
„Svekkjandi ef einn hálfleikur eyðileggur mótið hjá okkur“ „Þetta er gríðarlega þungt og maður svona hálfpartinn trúir þessu ekki enn þá. Þetta er staðan og við erum enn að spila fyrir Ísland þannig að við verðum að rífa okkur upp og spila vel gegn Argentínu,“ segir Viggó Kristjánsson en hann var enn að sleikja sárin eftir Króataleikinn er Vísir hitti hann í gær. Handbolti 26. janúar 2025 10:01
Ótrúlegt atvik á HM: Þjálfari Dana hrinti boðflennu sem dreifði rusli Nikolaj Jacobsen, þjálfari heimsmeistara Danmerkur, reiddist og ýtti í burtu aðgerðasinna sem hljóp inn á völlinn í Boxen í gær, þegar Danir og Tékkar áttust við á HM í handbolta. Maðurinn dreifði konfettí um gólfið og sameinuðust leikmenn og starfsmenn um að hreinsa til eftir hann. Handbolti 26. janúar 2025 09:32
Býst ekki við neinni aðstoð frá Slóvenum Snorri Steinn Guðjónsson var boginn en ekki brotinn þegar hann var tekinn tali á hóteli íslenska karlalandsliðsins í handbolta í gær. Hann stefnir á sigur á Argentínu í dag en eftir það þarf íslenska liðið að treysta á önnur úrslit til að eiga möguleika á sæti í 8-liða úrslitum. Handbolti 26. janúar 2025 08:01
„Viljum sýna hvað við erum góðir“ „Þetta var svolítið skrýtin nótt og mikið að meðtaka,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson svefnlítill er Vísir hitti á hann á hóteli landsliðsins í dag. Handbolti 25. janúar 2025 22:31
Frakkland og Þýskaland í átta liða úrslit Frakkland og Þýskaland, lærisveinar Alfreðs Gíslasonar, eru komin í átta liða úrslit HM karla í handbolta. Frakkar fara þangað með fullt hús stiga líkt og Danir. Handbolti 25. janúar 2025 21:22
Danir áfram með fullt hús stiga Danmörk heldur áfram að vinna örugga sigra á HM karla í handbolta. Nú voru það Tékkar sem lágu í valnum. Handbolti 25. janúar 2025 18:47
Aldís Ásta fór á kostum Aldís Ásta Heimisdóttir átti frábæran leik þegar Skara lagði Kristianstad í efstu deild sænska kvennahandboltans í dag. Handbolti 25. janúar 2025 18:26
Allir vonsviknir af velli í Varazdin Austurríki og Holland urðu á endanum að sætta sig við jafntefli, 37-37, í milliriðli tvö á HM karla í handbolta í dag. Það eykur líkurnar á að Ungverjar fylgi Frökkum upp úr riðlinum, og í 8-liða úrslit við lið úr milliriðli Íslands. Handbolti 25. janúar 2025 16:21
Fljúgandi start og Fram jók á raunir Eyjakvenna Fram kom sér aftur upp fyrir Hauka í 2. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta í dag með öruggum sigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, 25-17. Handbolti 25. janúar 2025 14:52
Vildi Viktor aftur inn í fyrri hálfleik: „Gekk andskotinn ekkert upp“ Þeir Bjarni Fritzson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsmenn Íslands í handbolta gerðu upp svekkjandi sex marka tap Íslands gegn Króatíu á HM í handbolta í hlaðvarpssætinu Besta sætið. Þar veltu þeir vöngum yfir því hvað betur hefði mátt fara í leik íslenska liðsins. Handbolti 25. janúar 2025 13:32
Gengst við því að hafa gert mistök „Mér líður bara eins og eftir þungt högg. Þetta er erfitt. Þetta voru gríðarleg vonbrigði. Eftir góða leiki að ná ekki að fylgja því eftir. Að einn svona slakur hálfleikur geti verið svona dýr er leiðinlegt,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, í samtali við Vísi degi eftir slæmt tap fyrir Króatíu. Handbolti 25. janúar 2025 13:13
Alfreð missti föður sinn sama dag og hann mætti Dönum á HM Gísli Bragi Hjartarson múrarameistari og fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri er látinn. Gísli, sem var á 86. aldursári, er faðir Alfreðs Gíslasonar, landsliðsþjálfara Þýskalands og fyrrverandi landsliðsmanns í handbolta og lést hann á þriðjudaginn síðastliðinn, 21.janúar, sama dag og Alfreð stýrði Þýskalandi gegn Danmörku á HM í handbolta. Handbolti 25. janúar 2025 12:34