Handbolti

Viktor Gísli og Baldur Fritz frá­bærir í Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var í stuði í kvöld.
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var í stuði í kvöld. EPA/Johan Nilsson

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var í stuði í kvöld þegar Barcelona vann flottan sigur í Meistaradeildinni í handbolta. Börsungar hafa unnið fimm fyrstu leikina alveg eins og Íslendingaliðið Magdeburg.

Barcelona vann sex marka heimasigur á franska félaginu Montpellier, 40-34, eftir að hafa verið 20-18 yfir í hálfleik.

Sergey Hernández byrjaði í marki Barcelona og fann sig ekki með aðeins 22 prósent markvörslu. Viktor Gisli kom inn, varði fyrsta skotið og kláraði leikinn með miklum glans.

Viktor varði alls þrettán skot og var lengi með yfir 50 prósent markvörslu en endaði leikinn með því að verja 43 prósent þeirra skota sem komu á hann.

Börsungar hafa unnið fimm fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni í vetur og eru í efsta sæti riðilsins.

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru sparaðir í þriggja marka útisigri Magdeburg á norska félaginu Kolstad, 35-32.

Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi skoruðu tvö mörk fyrir Magdeburg en Gisli komst ekki á blað. Philipp Weber var markahæstur með ellefu mörk og Lukas Mertens skoraði átta mörk.

Magdeburg hefur líka unnið fimm fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni í vetur og er í efsta sæti riðilsins.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði ekki þegar Sporting vann nauman tveggja marka sigur á sænska liðinu Kristianstad, 42-40, þar sem sænska liðið fékk sautján mörk frá Íslendingunum sínum.

Baldur Fritz Bjarnason átti frábæran leik fyrir Kristianstad en hann skoraði ellefu mörk úr þrettán skotum. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk fyrir Kristianstad, Ólafur Guðmundsson var með tvö mörk og Andri Erlingsson skoraði eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×