Matur

Matur

Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.

Fréttamynd

Jóla­hlað­borð og jóla­bröns á verði sem kemur á ó­vart

Það er eitthvað sérstakt við að ganga inn á veitingastaðinn Brasserie Ask við Suðurlandsbraut. Þar mætast áratugalangar hefðir, heimilislegt andrúmsloft og matarilmur sem margir Íslendingar þekkja vel. Í ár fagnar þessi rótgróni veitingastaður 60 ára afmæli og fram undan er ein skemmtilegasta vertíð ársins.

Lífið samstarf

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Unn­endur hamsatólgar geta andað léttar

Fyrirtækið Stóruvellir ehf. í Bárðardal hefur verið selt en fyrir einungis mánuði síðan var útlit fyrir að það myndi hætta framleiðslu á tólg, hamsatólg, hangifloti og útikertum eftir rúma þrjá áratugi. Stofnandi fyrirtækisins segir söluna vera hið besta mál og að hann muni aðstoða nýjan eiganda við að læra handtökin enda sé um mikilvæga íslenska matarhefð að ræða.

Neytendur
Fréttamynd

Kaffi Flauel er nýtt kaffi­hús í Ár­bæ

Ilmandi kaffi, freistandi tertur og léttar kvöldveitingar eru meðal þess sem tekur á móti gestum á Kaffi Flauel í Selási. Karen Olga Ársælsdóttir opnaði kaffihúsið í ágúst eftir að hafa lengi saknað þess að geta rölt á notalegt hverfiskaffihús. Nú hittast þar nágrannar yfir kaffibolla, vinir setjast niður með vínglas og börnin úr hverfinu líta inn eftir snúð.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað

Magnús Bjarni Gröndal fékk í sumar gat á ristilinn eftir að ristilpoki sprakk. Hann var á milli lífs og dauða á meðan hann lá á spítala en var að lokum útskrifaður eftir að hafa fengið stóma. Magnús Bjarni er staðráðinn í því að skammast sín ekki fyrir pokann sem hann nú ber og fékk vinkonu sína til að sauma ábreiður utan um pokann. Hann ætlar að með hönnunina alla leið.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Er Skúli Mog að selja túr­istum niður­greitt kornsíróp?

Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér.

Lífið
Fréttamynd

Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs

Hinn 28 ára gamli Ísak Aron Jóhannsson er mikil stjarna í heimi matreiðslunnar og þykir einn fremsti kokkur landsins. Hann var að senda frá sér matreiðslubókina Bragð – Íslenskur matur og fagnaði því með pomp og prakt ásamt þotuliði úr kokkabransanum og góðum vinum.

Lífið
Fréttamynd

Nýr kafli hafinn hjá NOMY

NOMY hefur á undanförnum árum skapað sér sterka stöðu í íslenskri veisluþjónustu þar sem góður matur, falleg framsetning og upplifun gestanna haldast í hendur. Nú er nýr kafli hafinn hjá fyrirtækinu. Eigendahópurinn hefur breyst, nýir kraftar bæst við og ýmsar nýjungar litið dagsins ljós, en grunnurinn er sá sami.

Samstarf
Fréttamynd

Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi

Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan.

Lífið
Fréttamynd

Hægst á verð­hækkun á mat­vöru

Hægst hefur á verðhækkun á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í byrjun árs. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru.

Neytendur
Fréttamynd

Taki stöðuna al­var­lega og hækki ekki verð um­fram verðbólgumarkmið

Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hefur heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Er skrefið stigið í von um að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni.

Neytendur
Fréttamynd

Fleiri val­kostir í Bónus með Salling

Um 600 vörur frá danska smásölufyrirtækinu Salling Group hafa bæst í hillur Bónus á síðustu mánuðum. Vörurnar tilheyra fimm ólíkum vörulínum sem spanna allt frá einföldum grunnvörum yfir í lífrænar vörur og sælkeravörur. Innkaupasamstarf Haga við Salling gefur Bónus aukin tækifæri til að auka vöruúrval og bjóða fleiri valkosti á góðu verði.

Samstarf
Fréttamynd

Fiski­kóngurinn og Há­skólinn rann­saka skötu

Rannsóknarverkefnið Skötuveisla fékk fyrr á árinu tæplega þrjátíu milljóna króna styrk úr Matvælasjóði. Verkefnið er á vegum Háskóla Íslands, Matís og Fiskikóngsins þar sem kæst skata verður rannsökuð.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vín­veislu Inn­nes

Stórsýningin Matur & vín 2026 fór fram í annað sinn á dögunum þegar Innnes bauð viðskiptavinum og samstarfsaðilum til stórveislu í Korngarða 3 í Reykjavík. Þar komu saman um 60 matvæla- og vínbirgjar og miðað við mætinguna er ljóst að áhuginn á góðum mat og drykk er alls ekki á undanhaldi.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna

Hvernig fangar maður veitingastað í bók? Þegar Þröstur Valgarðsson sá um að prenta matseðla fyrir veitingastaðinn Hosiló fékk hann einmitt þá hugmynd. Yfir nokkurra mánaða skeið fór hann reglulega á vettvang, fékk sér mat, tók ljósmyndir og kom fyrir diktafónum til að taka upp samtöl starfsmanna. Afraksturinn er 212 síðna sjónræn frásögn um Hosiló.

Lífið