Fréttamynd

Verðmat Síldar­vinnslunnar hækkar veru­lega og væntingar um met­ár í tekjum

Horfur í sjávarútvegi á þessu ári eru „mjög góðar“, sem litast meðal annars af væntingum um áframhaldandi hátt afurðaverð samhliða sterkri eftirspurn, og hafa greindur því hækkað verðmat sitt á Síldarvinnslunni um nærri fimmtung. Hagfelld ytri skilyrði og ágætis loðnuvertíð gæti orðið til þess að 2026 verði metár í tekjum sjávarútvegsfyrirtækja en rekstrarhagnaðarhlutföll eru samt líkleg til að lækka vegna hærri veiðigjalda.

Innherji

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Heimilin óttast við­varandi háa verð­bólgu og flykkjast í fasta óverð­tryggða vexti

Á allra síðustu mánuðum hafa orðið talsvert umskipti á lánamarkaði en samhliða því að væntingar í efnahagslífinu hafa breyst til hins verra, með auknum líkum á þrálátri verðbólgu og háum stýrivöxtum, hafa heimilin brugðist við með því að færa sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum. Hrein ný lántaka heimila á slíku lánaformi hefur aldrei mælst meiri en í liðnum mánuði.

Innherji
Fréttamynd

Lands­bankinn með lang­mest undir í lánum til bygginga­geirans

Eftir verulegan lánavöxt á liðnu ári til byggingageirans er Landsbankinn núna með um helminginn af öllum útistandandi lánum stóru bankanna til verktakafyrirtækja. Greinendur hafa varað við því að fyrirséð er að útlánasafn bankanna til geirans eigi eftir að „súrna“ núna þegar meðalsölutími nýrra íbúða hefur aldrei mælst lengri og þrengt hefur að aðgengi að lánsfé.

Innherji
Fréttamynd

Agnar kemur nýr inn í stjórn Ís­félagsins

Á aðalfundi Ísfélagsins síðar í vikunni verður gerð ein breyting á stjórn félagsins og þá er jafnframt lagt til að greiða arð til hluthafa sem nemur um 76 prósent af hagnaði síðasta árs, nokkuð lægra hlutfall en í fyrra.

Innherjamolar
Fréttamynd

Alls staðar verið að minnka áhættusækni og dirfsku hjá stjórn­endum fé­laga

Einn stærsti einkafjárfestirinn í Sjóvá sagði afstöðu Gildis gegn tillögu að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur félagsins, sem tekist var á um á nýlegum aðalfundi, vera „óskiljanlega“ og gagnrýndi að alls staðar sé verið að „minnka áhættusækni og dirfsku og draga tennurnar úr“ þegar reynt er að umbuna stjórnendum. Að sögn framkvæmdastjóra Gildis snýr gagnrýninn að skorti á skýrleika en sjóðurinn var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði á móti kaupréttaráætluninni eftir breytingartillögu sem barst frá LSR.

Innherji
Fréttamynd

Boða að­gerðir til að auð­velda al­menningi að fjár­festa með skil­virkum hætti

Stjórnvöld vinna nú að undirbúningi frumvarps, sem áformað er að verði orðið að lögum snemma árs 2027, sem miðar að því að bæta miðlun innlends sparnaðar til fjárfestinga og meðal annars auðvelda einstaklingum að fjárfesta með skilvirkari hætti. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur áður sagt að verið sé að skoða leiðir til að auka þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði.

Innherji
Fréttamynd

Felur í sér „veru­lega á­hættu“ fyrir efna­hags­stöðug­leika og magnar hag­sveiflur

Fjármálaráð fer hörðum orðum um ákvörðun stjórnvalda að vísitölutengja bætur almannatrygginga, þar sem verið sé að bregðast við „ofmetnum“ vanda, og segir afleiðingarnar vera „veruleg áhætta“ fyrir stöðugleika í efnahagslífinu með því auka sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magna hagsveiflur og minnka getu ríkisins til að beita mótvægisaðgerðum. Í ljósi reynslu annarra þjóða þá „sætir það furðu“, að mati ráðsins, að slíkt kerfi sé tekið upp, einkum þegar litið er til þess að tekjur öryrkja hafa vaxið hraðar en vinnandi fólks undanfarin áratug.

Innherji
Fréttamynd

Vara við lausafjárvanda verk­taka þegar bankarnir setja þeim stólinn fyrir dyrnar

Vegna fordæmalausrar sölutregðu á nýbyggingum þá er einungis tímaspursmál hvenær bankarnir fara að setja fjármagnsþörf áframhaldandi birgðasöfnunar á nýjum íbúðum „stólinn fyrir dyrnar,“ samkvæmt nýrri greiningu um fasteignamarkaðinn, sem mun þá birtast í lausafjárvanda byggingarverktaka. Sögulega mikið ójafnvægi á milli fasteignaverðs og getu heimila til íbúðakaupa, ásamt horfum á aðhaldssamri peningastefnu, ætti að styðja við að verðið gefi enn eftir á komandi mánuðum og spurningin er aðeins hversu hröð sú aðlögun verður.

Innherji
Fréttamynd

Kláraði 25 milljarða sam­starfs­samning við systur­félagið Al­vogen í lok árs

Nýr samstarfssamningur sem Alvotech gerði við systurfélag sitt, Alvogen, rétt undir lok síðasta árs sem nær til markaðssetningar í Bandaríkjunum á þremur líftæknilyfjahliðstæðum í þróun getur skilað íslenska félaginu yfir 200 milljónum dala í leyfis- og áfangatekjur. Hluti þeirra tekna var bókfærður á fjórða ársfjórðungi en hlutabréfaverð Alvotech hefur rétt aðeins úr kútnum að undanförnu.

Innherji
Fréttamynd

Hækka verðmatið á JBTM vegna væntinga um meiri vöxt og betri af­komu

Stjórnendur JBT-Marel sjá fram að skila talsvert meiri tekjuvexti á komandi árum heldur en markaðurinn í heild sinni, meðal annars á grunni samkeppnisforskots með breiðari vörulínu en keppinautar, og hlutabréfagreinendur hafa hækkað lítillega verðmat sitt á félaginu sem er langt yfir núverandi markaðsgengi. Hlutabréfaverð félagsins hefur lækkað skarpt eftir stríðsátökin við Persaflóa.

Innherji
Fréttamynd

Þrota­búið fengi hlut­deild í mögu­legum endur­heimtum starf­seminnar á Möltu

Hlutabréfaverð Icelandair hefur rokið upp eftir að greint frá áformum þess um að kaupa tæplega helmingshlut í Fly Play Europe en forstjóri flugfélagsins segir aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu geta skapað „talsverð hagræðingartækifæri.“ Gangi samkomulagið eftir þá mun þrotabú Play fá hlutdeild í mögulegum endurheimtum skuldabréfaeigenda þegar starfsemin á Möltu fer af stað.

Innherji
Fréttamynd

„Áhuga­vert skref“ að Síminn sé að færa sig í að vera staf­rænt þjónustu­fyrir­tæki

Með kaupum á fjórum fyrirtækjum sem beðið er eftir að Samkeppniseftirlitið muni gefa grænt ljós á þá mun Síminn taka stakkaskiptum, að sögn hlutabréfagreinanda, sem telur það vera „áhugavert skref“ að félagið að færa sig frá því að vera fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki yfir í stafrænt þjónustufyrirtæki. Verðmat á Símanum er lækkað eilítið í samræmi við nýja afkomuspá frá stjórnendum sem var undir væntingum.

Innherji