Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, MAST, segir rannsókn stofnunarinnar á illri meðferð á hryssum í blóðmerahaldi lokið. Við skoðun stofnunarinnar hafi fundist alvarlegt frávik en að í flestum tilfellum hafi verið um einn sama einstaklinginn að ræða. Búið sé að koma í veg fyrir að þessi aðili komi að meðferð hrossa aftur. Innlent 10.4.2025 23:18
Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Ísteka segist fordæma „hverskyns ofbeldi,“ sér í lagi gagnvart hryssum sem fyrirtækið fær hráefni úr. Mál vinnumanns sem beitti hryssur ofbeldi í fyrra hafi verið afgreitt og bærinn fái að selja blóð að uppfylltum skilyrðum. Fyrirtækið segir bændur hugsi yfir njósnum og myndbandsupptökum af bændum úr launsátri. Innlent 10.4.2025 19:44
Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið Ég hef lengi verið áhugamaður um dýravernd. Nú hefur RÚV, endurtekið, upplýst um illa meðferð blóðmera og visir.is fylgt þeirri frétt eftir. Ég hef lengi verið áhugamaður um dýravernd og menntað mig í henni. Skoðun 9.4.2025 23:32
Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Umboðsmanni Alþingis hefur borist kvörtun frá lögmanni dýraverndunarsamtaka vegna stjórnsýslu í tengslum við blóðmerahald á Íslandi. Lögmaðurinn segir að hér ríki algjört úrræðaleysi þegar upp koma mál sem varða illa meðferð á dýrum. Innlent 12. nóvember 2024 12:54
Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitabæ Nýtt myndefni frá tvennum erlendum dýraverndunarsamtökum sýnir þegar veist er að fylfullum hryssum við blóðtöku með spörkum og þeim veitt högg. Íslenskur dýraverndunarsinni segir umrætt myndefni sýna ljótan veruleika sem blóðmerar búa við. Innlent 10. nóvember 2024 19:37
Glæsileg folaldasýning í Skálakoti undir Eyjafjöllum Folaldasýningar eru alltaf vinsælar í sveitum landsins á þessum árstíma en ein slík var haldin undir Eyjajföllum nýlega þar sem dómarar mátu folöldin og gáfu þeim einkunn. Hestamenn eru sammála um að það sjáist oft strax á folöldunum hvort þau verði efnileg í framtíðinni eða ekki. Lífið 9. nóvember 2024 20:05
Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár opin umferð Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hefur verið opnuð umferð. Brúin er við Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks og var hún tengd við stígakerfi Elliðaárdals með malbiki fyrir helgi. Innlent 3. nóvember 2024 09:15
Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Það kann að koma einhverjum á óvart en í viðtalsrými sálfræðings er í í hesthúsunum við Sörlaskeið í Hafnarfirði en um er að ræða vinnustað Þorkötlu Elínar Sigurðardóttur á Hlöðuloftinu. Lífið 18. október 2024 10:31
Drap 81 dýr á þremur tímum Maður sem grunaður er um að hafa drepið 81 dýr í Norður-Kaliforníu, þar á meðal smáhesta, geitur, hænur og páfagauka, segist alsaklaus. Meðal fórnarlamba hans voru smáhestarnir Lucky, Princess og Estrella auk fjölda annarra. Erlent 7. september 2024 15:23
Sjúkdómar ógna velferð íslenska hestsins í síauknum mæli Efnaskiptasjúkdómar eru vaxandi vandamál í íslenska hrossastofninum. Eigendur og umráðamenn hrossa eru hvattir til að þekkja til þessara sjúkdóma en þeir hafa haft þær afleiðingar að sífellt fleirri hross þjást af hófsperru og fleiri fylgikvillum. Innlent 24. ágúst 2024 14:43
Fimm ára keppnisbann fyrir að detta viljandi af hestbaki Alvinio Roy hefur verið dæmdur í fimm ára keppnisbann fyrir að glata viljandi forystu í kappreiðum með því að kasta sér viljandi af baki hestsins þegar hann var með forystuna. Talið er að hann hafi verið þátttakandi í veðmálasvindli. Sport 22. ágúst 2024 17:01
Hesturinn fékk að vera með á líklega bestu sjálfu leikanna Japanir unnu sín fyrstu verðlaun í hestaíþróttum í 92 ár þegar Japanarnir fengu bronsverðlaun í liðakeppni Ólympíuleikanna í París. Sport 4. ágúst 2024 07:01
Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hesturinn Kveikur frá Stangarlæk var felldur í gær eftir að hafa fengið hrossasótt í Hollandi. Hann var tólf vetra gamall. Innlent 2. ágúst 2024 14:16
Lærifaðir og liðsfélagi fordæmir svipubeitingu Dujardin Carl Hester, stjórnarmaður í alþjóðasambandi tamningamanna, lærifaðir Charlotte Dujardin og liðsfélagi hennar á síðustu þremur Ólympíuleikum hefur fordæmt þjálfunaraðferðir sem hún beitti. Sport 31. júlí 2024 14:01
Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Stærsta skeifa heims vekur nú mikla athygli gesta í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal, en í skeifunni eru 2.852 notaðar skeifur, sem hafa verið undir hestum út um allt land í gegnum árin. Innlent 28. júlí 2024 20:04
Annar Ólympíuknapi ásakaður um dýraníð Austurríski knapinn Max Kuehner, sem keppir í sýnistökki á Ólympíuleikunum í París, hefur verið ákærður fyrir dýraníð. Honum er gert að sök að hafa barið hest sinn með kylfu til að láta hann stökkva hærra. Sport 26. júlí 2024 09:30
Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Tiltölulega litlar skemmdir urðu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ þegar hestastóð kom í óvelkomna heimsókn þangað seint í gærkvöldi. Vallastjóri telur líklegt að hestarnir hafi sloppið úr gerði nærri vellinum þar sem hann liggur við Leiruvog. Innlent 25. júlí 2024 09:22
Hætti við keppni á Ólympíuleikunum eftir að upp komst um dýraníð Breski knapinn Chartlotte Dujardin stefndi á að verða sigursælasti keppandi í sögu þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í París en hefur sagt sig frá keppni eftir að upp komst um dýraníð fyrir fjórum árum síðan. Sport 24. júlí 2024 09:30
Skólabílstjóri og hestamálari úr Hvalfjarðarsveit Skólabílstjóri í Hvalfjarðarsveit hefur það sem tómstundagaman að mála myndir af íslenskum hestum og tekst það verk einstaklega vel. Bílstjórinn er ekki menntaður í málaralistinni, hæfileikarnir eru bara til staðar. Innlent 22. júlí 2024 20:05
Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Einn vinsælasti stóðhestur landsins, Stáli frá Kjarri í Ölfusi gefur ekkert eftir þó hann sé orðinn tuttugu og sex vetra því hann er enn að fylja merar en afkvæmi Stála eru orðin vel yfir níu hundruð. Innlent 15. júlí 2024 20:05
Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Margir ráku upp stór augu þegar tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti mætti í fullum keppnisskrúða á Landsmót hestamanna, enda er hann síst þekktur fyrir að vera meðal afreksknapa. Hann var líka kominn á mótið af allt annarri ástæðu en að mæta til keppni. Lífið 6. júlí 2024 19:12
Myndaveisla frá stjörnufans og gleðinni í Víðidal Um fimm til sex þúsund manns eru nú á Landsmóti hestamanna sem fram fer á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík. Allt eru þetta áhugamenn um íslenska hestinn, flestir íslenskir en einnig um 2000 erlendir gestir. Búist er við talsverðri fjölgun næstu daga, talið að um sjö til átta þúsund manns verði á svæðinu um helgina. Lífið 5. júlí 2024 14:16
Svindlsíður herja á landsmótsgesti Gestir á Landsmóti hestamanna hafa verið varaðir við nokkrum svindlsíðum á samfélagsmiðlum og aðallega Facebook sem hafa peninga af fólki með því að lofa beinu streymi af keppni Landsmótsins sem fer nú fram í Reykjavík. Innlent 5. júlí 2024 11:06
Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Hornfirðingurinn Ída Mekkín Hlynsdóttir fer nú mikinn á Landsmóti hestamanna. Hún er í fjórða sæti í unglingaflokki eftir keppni í milliriðlinum, og hefur tryggt sér sæti í úrslitum. Ída Mekkín var ellefu ára þegar hún var í burðarhlutverki í kvikmyndinni Hvítur hvítur dagur, og lék einnig í myndinni Volaða land, en hún er dóttir leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmasonar. Lífið 4. júlí 2024 20:00