„Mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 23. febrúar 2026 19:03 Jónína hafði áhyggjur af stöðunni. Gróðureldarnir við Elliðavatn í gær eru meðal þeirra stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Hestamenn í Kópavogi óttuðust um tíma að eldarnir bærust í hesthúsin og segja það áfall að vera með eld í bakgarðinum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn sem gerði rýmingu hesthúsa erfiðari svo og slökkviliðsmönnum að komast á staðinn.
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um gróðureldana á fjórða tímanum í gær og sendi það allt tiltækt slökkvilið á staðinn. Þar skammt frá er Sprettur, stærsta hestamannafélag landsins, með hesthúsabyggð. „Ég kom hérna á svæðið um hálf fimm og þá voru eldtungurnar hérna fyrir ofan húsið hjá okkur. Það er náttúrulega bara mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn hjá sér,“ segir Jónína Björk Vilhjálmsdóttir formaður Hestamannafélagsins Spretts. Aðeins eru um fjögur hundruð metrar frá svæðinu þar sem eldarnir loguðu niður í hesthúsin og óttuðust eigendur húsanna um tíma að eldurinn myndi ná til þeirra. „Það fóru allir hesteigendurnir hérna að losa húsin sín og færa hrossin til. Þetta er enginn smá fjöldi hrossa sem standa við þessa götu hérna við Guðmundarlund og alls konar hross sem þú blandar ekkert saman í gerði og þá tóku félagsmenn sig allir saman og það var hagrætt til í hesthúsunum hérna fyrir neðan og hrossunum komið fyrir. Svo stóðum við hérna fyrir ofan húsið og húsin hérna í lengjunni og vorum að sprauta vatni á hlíðina þannig að ef þetta kæmi hérna niður værum við að reyna eitthvað sem við gætum gert.“ Reykurinn helsta áhyggjuefnið Slökkviliðsmenn stóðu í ströngu við að reyna að slökkva eldinn fyrst þar sem hættan var mest. „Helstu áhyggjuefnin okkar í gær voru reykurinn sem lagði yfir hesthúsin af því að reykurinn fer mjög illa í hesta og svo Guðmundarlundur. Við settum kapp á að reyna að slökkva eldinn fyrst sem var að valda reyknum sem fór á hesthúsin og svo Guðmundarlund og það gekk ágætlega,“ segir Brynjar Þór Friðriksson settur sviðsstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. Alls brann um þrjátíu og tveggja hektara svæði en til að átta sig á hversu stórt það er þá er það á við fjörutíu og fimm fótboltavelli líkt og Laugardalsvöllinn. Gróðureldarnir eru að flatarmáli með þeim stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Gróðureldarnir voru einnig nokkuð nálægt vatnsbólum höfuðborgarbúa. „Við vorum í rauninni mjög heppin að vindáttin var ekki önnur því annars hefði það getað sett vatnsbólin okkar í hættu. Við í raun og veru viljum leggja miklu meiri áherslu á forvarnir heldur en viðbragð þegar kemur að því að vernda vatnsbólin,“ segir Brynja Ragnarsdóttir forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn til að fylgjast með sem gerði slökkviliðsmönnum erfiðara um vik og eigendum hesthúsanna sem þurftu að rýma þau. „Það var erfitt að komast inn í Kópavoginn út af umferð sem var nánast stopp út af stíflum sem mynduðust á svæðinu,“ segir Brynjar. Mikilvægt sé að fólk setji sig ekki í hættu við aðstæður sem þessar. Ekki er vitað hvað olli gróðureldunum en fólk þurfi að fara varlega þegar þurrt er líkt og verið hafði dagana áður. „Passa sig í meðferð á eldi. Henda ekki sígarettum í göngutúrum í sinuna eða að vera að kveikja elda eða að grilla eða neitt slíkt.“
Gróðureldar Heiðmörk Gróðureldar á Íslandi Gróðureldar í Heiðmörk Hestar Kópavogur Reykjavík Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira