Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Sunna Sæmundsdóttir skrifar 31. október 2026 18:01 Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur og fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands. vísir/arnar Aukin áhersla er lögð á eftirlit með jarðhræringum í kringum Grindavík vegna fólksfjölda í bænum. Næstum því helmingi meira af kviku hefur safnast saman undir Svartsengi nú en fyrir síðustu eldgos.
Síðasta gosi í Sundhnúksgígaröð lauk fyrir um fjórtán mánuðum og lengri tími hefur ekki liðið á milli eldgosa frá því að gostímabilið hófst. Eftir gosið hægði aðeins á landrisi við Svartsengi en síðasta hálfa árið eða svo hefur það haldist stöðugt. Kvika er því enn að safnast saman og þrátt fyrir að langur tími sé liðinn er enn gert ráð fyrir öðru eldgosi. Þar sem mynstrið er breytt og kvikumagnið fyrir löngu komið upp fyrir þau mörk sem áður var horft til er þó ómögulegt að segja til um hvenær, segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands. „Það er enginn svona skammtímafyrirvari sem við höfum lengur. Því miður er það bara þannig að við verðum eiginlega bara að fylgjast með og bíða og sjá. Ég held við verðum að gera ráð fyrir að það verði ekki mikill fyrirvari ef ef það gýs aftur.“ Ekki hefur liðið jafn langt á milli gosa frá því að goshrinan á Reykjanesskaga hófst.vísir/Anton Brink Hann segir kvikumagnið orðið allt að fjörutíu prósentum meira en það var fyrir síðustu gos. „Það getur komið stærra gos, það er meira magn til staðar en það er ekkert víst að kvikumagnið gjósi allt. Við erum þó að gera ráð fyrir að gosið geti orðið stærra bara af því að það er meira til staðar.“ Skólahald hófst á ný í Grindavík í haust og hátt í þrjátíu börn eru þar í grunnskóla. Líf er þannig að færast aftur í bæinn sem er þó enn á óvissustigi almannavarna. Loftvarnarflautur eru prófaðar mánaðarlega og rýmingaráætlanir eru fyrir hendi. Benedikt segir viðbúið að næsta gos verði á svipuðum slóðum og áður en segir fólksfjöldann þó kalla á aukið eftirlit. „Við eigum nú samt frekar von á því að hafa góðan fyrirvara til að vara fólk í Grindavík við en auðvitað getum við ekki fullyrt um það. Þetta er alveg ákveðið áhyggjuefni, eða þýðir allavega að við þurfum að leggja meiri áherslu á að fylgjast vel með breytingum í kringum Grindavík,“ segir Benedikt.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira