Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Eiður Þór Árnason skrifar 31. október 2026 18:38 Ráðherrarnir hafa lítið látið sjá sig í atkvæðagreiðslum síðustu tvo mánuði. Vísir Forsætisráðherra og ráðherrar Viðreisnar hafa ekki verið viðstaddir neinar skráðar atkvæðagreiðslur á Alþingi frá þingsetningu þann 8. september. Ef horft er á síðasta þing blasir önnur mynd við.
Fjallað var um þátttöku Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, í atkvæðagreiðslum í Sætinu á Vísi í gær. Hann hefur líkt og áðurnefndir ráðherrar ekki greitt atkvæði í neinum af þeim 23 atkvæðagreiðslum sem hafa verið skráðar á vef Alþingis á yfirstandandi þingi. Hefur Sigmundur Davíð ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnlaugsdóttur utanríkisráðherra þá ýmist ekki mætt eða tilkynnt fjarvist sína. Vísir hefur óskað eftir svörum frá ráðherrunum en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra Viðreisnar, á ekki sæti á Alþingi. Mikill fjöldi atkvæðagreiðslna fer alla jafna fram á hverju þingi og er mæting þingmanna nokkuð misjöfn. Hafa sumir þingmenn þannig sætt gagnrýni fyrir reglulega fjarveru í gegnum tíðina en ljóst er að dagskrá þingmanna sem sinna ráðuneytum er alla jafna þéttari en hjá almennum þingmönnum. Fá mál í þinginu Fá mál hafa verið afgreidd úr þinginu á þeim tæpu tveimur mánuðum sem liðnir eru af starfsáætlun. Því er mest um að ræða atkvæðagreiðslur um afgreiðslu þingmála úr annarri umræðu í þá þriðju en ekkert lagafrumvarp má samþykkja til laga fyrr en það hefur farið í gegnum þrjár umræður á þinginu. Einungis þrjú mál hafa hlotið lokaatkvæðagreiðslu á yfirstandandi þingi: 1) Frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu þar sem þremur orðum var bætt aftan við eina málsgrein laganna, 2) Frumvarp um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem stöku orði var skipt út og 3) Frumvarp um breytingu á lögum um menningarminjar og lögum um mannvirki. Hvorki Sigmundur Davíð né áðurnefndir ráðherrar greiddu atkvæði um frumvörpin þrjú. Greiddu mun oftar atkvæði á síðasta þingi Ef horft er á tölfræðina fyrir síðasta þing, sem stóð yfir frá 9. september 2025 til 19. júní 2026, blasir önnur mynd við. Á 157. þingi tók Kristrún forsætisráðherra til að mynda þátt í 83 prósent skráðra atkvæðagreiðslna á Alþingi. Þá var hlutfallið 78 prósent hjá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og 77 prósent hjá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Lægst var hlutfallið meðal ráðherra á þingi hjá Þorgerði Katrínu Gunnlaugsdóttur utanríkisráðherra eða 38 prósent. Þetta sýna gögn Alþingis. Til samanburðar tók Sigmundur Davíð þátt í 36 prósent skráðra atkvæðagreiðslna á síðasta þingi. Ef loks er horft á formenn annarra stjórnmálaflokka er Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra Flokks fólksins, með 62 prósent mætingu í skráðar atkvæðagreiðslur á síðasta þingi, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, með 52 prósent og Sigurður Ingi Jóhannsson, sem var formaður Framsóknar fram í febrúar, með 34 prósent. Spyrja þurfi að leikslokum Þátttaka þingmanna í atkvæðagreiðslum er einungis einn mælikvarði á virkni þeirra á þinginu og má einnig horfa til annarra þátta eins og ræðutíma og þátttöku í nefndarstarfi. Þegar Sigmundur Davíð var spurður út í atkvæðagreiðslurnar í Sætinu á Vísi í gær sagði hann þær hafa verið fáar fram að þessu líkt og venjan væri í upphafi þings. „Við skulum bara telja þegar þinginu er lokið. Það er mjög lítið hægt að segja af atkvæðagreiðslum þegar þær eru bara ein eða tvær stöku sinnum um hvort það skuli biðja um skýrslu. Ég hef verið virkur hér í umræðum í þinginu og verð það áfram.“ Fara reglulega í ræðustól Ef stiklað er á stóru í ræðufjölda þingmanna á yfirstandandi þingi má sjá að efst á lista raðar sér Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, með 85 ræður og andsvör. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, er í fimmta sæti með 58 og um leið efstur stjórnarþingmanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kemur fast á eftir með 57 og þá hefur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, komið 54 sinnum í ræðustól á yfirstandandi þingi, samkvæmt tölum Alþingis. Þorgerður Katrín er í áttunda sæti yfir ræðumenn og Kristrún í því níunda. Sigmundur Davíð er í 38. sæti með 21 skráða ræðu og andsvar, færri en allir ráðherrar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Viðreisn Miðflokkurinn Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira