Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Jafn­vel brotist inn þegar fólk er heima

Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur segir íbúa hrædda um heimili sín. Gangi þeir svo langt að hringja í nágranna til að láta athuga heimili sín á meðan þeir eru á ferðalagi. Tugir innbrota hafa verið tilkynnt lögreglu það sem af er mánuði.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lög­reglan rann­sakar enn eitt inn­brotið í borginni

Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1.

Innlent
Fréttamynd

Rakel Sif og Gissur Ari selja á Ný­lendu­götu

Rakel Sif Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur og Gissur Ari Kristinsson, verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs hjá Seltjarnarnesbæ, hafa sett á sölu 77,6 fermetra íbúð sína að Nýlendugötu 22. Ásett verð er 79,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæ­braut

Forstöðumaður Gerðarsafns segist hafa fengið þau svör að forsvarsmenn safnsins verði hafðir með í ráðum vegna niðurrifs iðnaðarbyggingar að Dugguvogi 42 í Reykjavík. Flennistór lágmynd eftir Gerði Helgadóttur prýðir vegg hússins sem snýr að Sæbraut.

Innlent
Fréttamynd

Selja herrasetur í Þing­holtunum

Viðar Eggertsson leikstjóri og Sveinn Ísarr Kjartansson, yfirmatreiðslumaður hjá Seðlabanka Íslands, hafa sett á sölu þriggja hæða einbýlishús sitt að Laufásvegi 39 í Þingholtunum. Ásett verð hússins er 139,9 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

Tugir inn­brota til rann­sóknar hjá lög­reglu

Lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafa fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. 

Innlent
Fréttamynd

„Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“

Körfuboltafélagið Aþena mun ekki senda lið til keppni í Bónus deild kvenna á næsta tímabili. Stofnandi félagsins og þjálfari liðsins, Brynjar Karl Sigurðsson, segir ábyrgðina liggja hjá Reykjavíkurborg. Alvarlegast af öllu sé þó að sjá framtíð yngri flokka starfsins í uppnámi.

Körfubolti
Fréttamynd

„Stundum koma upp at­vik“

Átján ára aldurstakmark tók gildi í útiklefum þriggja sundlauga í Reykjavík þann fyrsta þessa mánaðar þar sem ekki er föst viðvera starfsfólks. Um öryggisráðstöfun er að ræða vegna atvika sem komið hafa upp.

Innlent
Fréttamynd

Lokuðu flug­braut vegna dróna

Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað um tíma í dag og óskað eftir aðstoð lögreglu þegar dróna var flogið nálægt vellinum í leyfisleysi. Hann sást utan flugvallarsvæðis og var flugbrautin opnuð aftur skömmu síðar.

Innlent
Fréttamynd

Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um vald­níðslu

Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og stofnandi körfuboltafélagsins Aþenu, greinir frá því á samfélagsmiðlinum Facebook að meistaraflokkur liðsins hafi verið lagður niður og taki ekki þátt í Bónus deild kvenna í haust. Reykjavíkurborg, valdníðslu hennar og skorti aðgerða nýs meirihluta í borginni sé um að kenna.

Körfubolti
Fréttamynd

„Vina­legt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun

Íslenskur karlmaður sem særðist lífshættulega í Höfðatorgsmálinu segist hafa mætt á vettvang til að ræða við mann sem hann segir hafa rænt fólk víða um bæinn. Einn þriggja ákærðu fyrir tilraun til manndráps heldur því fram að hluturinn sem hann sást halda á hafi verið afrískur tannbursti en ekki hnífur, eins og lögregla telur.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í Bryggju­hverfi

Eldur kviknaði í þaki fjölbýlishúss við Naustabryggju í Reykjavík um klukkan hálf ellefu í morgun. Allt tiltækt lið slökkviliðs var sent á vettvang. Engin slys urðu á fólki. 

Innlent