Innlent

Guð­mundur Fer­tram og Fann­ey opna nýsköpunar­setur

Árni Sæberg skrifar
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis. Vísir/Arnar

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, og Fanney Kr. Hermannsdóttir, eiginkona hans, opna á morgun, miðvikudaginn 7. október klukkan 16:30, nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvík að Neshaga 16 í Reykjavík.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að opnunin sé hluti af fordagskrá Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle, sem hefjist formlega á fimmtudag.

Ólafur Ragnar kemur fram

Meðal framsögumanna við opnunina verði Guðmundur Fertram, Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Sigurbjörn Þorkelsson, stjórnarformaður Amaroq.

Arctell Sandvík sé vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf. Þar sé aðstaða fyrir sprotafyrirtæki, aðila sem starfa að rannsóknum og alþjóðasamstarfi sem og þjónustufyrirtæki sem tengist slíkri starfsemi. Í setrinu verði einnig haldnir viðburðir þar sem fjallað verði um fjárfestingar, nýsköpun, þróun norðurslóða og önnur málefni.

Annað setur í Kaupmannahöfn og stefnt að fleirum

Setrið sé annað nýsköpunar- og þekkingarsetur Arctell. Það fyrsta hafi verið opnað í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Fleiri setur séu fyrirhuguð, meðal annars á Ísafirði og í Nuuk á Grænlandi. Að baki setrunum standi Arctell ehf., sem Guðmundur Fertram og Fanney Kristín hafi stofnað ásamt samstarfsfólki.

Arctell vinni að nýsköpun og fjárfestingum á norðurslóðum. Markmiðið sé að tengja saman frumkvöðla, vísindamenn og fjárfesta, efla alþjóðlegt samstarf og styðja við uppbyggingu fyrirtækja sem geta vaxið á alþjóðlegum mörkuðum.

„Á norðurslóðum eru mikil tækifæri til vaxtar og nýsköpunar. Með því að tengja frumkvöðla og vísindamenn í fremstu röð, þekkingu heimafólks, fjármagn, samstarfsaðila og alþjóðleg tengslanet getum við fangað þessi tækifæri og byggt upp öflug fyrirtæki sem nýta sérstöðu norðurslóða og skapa verðmæti til framtíðar,“ er haft eftir Guðmundi Fertram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×