Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlistarfólkið Kolfreyja Sól Bogadóttir og Friðrik Róbertsson, betur þekkt sem Alaska 1867 og Flóni, eru ekki lengur „bara vinir“ heldur par. Sögusagnir hafa gengið um að þau væru að slá sér upp síðustu mánuði en þau ekki staðfest það fyrr en nú. Tónlist 24.4.2026 14:50
Námið ekki eins krefjandi og á Tene Fiðluleikarinn Matthildur Traustadóttir fæddist á Ítalíu, ólst upp á Spáni, gekk í menntaskóla á Íslandi og lærir nú við tónlistarháskólann Oberlin í Bandaríkjunum. Lengi vel átti hún erfitt með að velja á milli balletts og fiðluleiks og spiluðu álagsmeiðsli inn í endanlegt val. Matthildur er ein fjögurra sem kemur fram á tónleikunum Ungum einleikurum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld. Tónlist 24.4.2026 14:09
Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Kristný Eiríksdóttir er klippari, leikstjóri og stillumyndagerðarkona sem var verðlaunuð fyrir tónlistarmyndband árins á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars. Kristný hefur verið í tónlist frá æsku, er sjálflærð á gítar og gefur í dag út sitt annað lag, „Ein leið að elska,“ sem kom fyrst fyrir í verðlaunastuttmyndinni Allir hundar vilja deyja einir. Tónlist 23.4.2026 10:01
„GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ Raftónlistarsveitin GusGus gaf á miðnætti út lagið „Walk Away“ með rapparanum Birni. Síðast gáfu þau út saman slagarann „Eða?“ sem var eitt vinsælasta lag ársins 2023. Nýja laginu lýsa þau sem nostalgískri framtíðartónlist Tónlist 16.4.2026 08:01
„Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Söngvarinn Jökull Júlíusson í Kaleo segir það langþráðan draum að spila á Þingvöllum, einum fallegasta stað landsins. Tónleikarnir Bergmál verði sögulegir og staðsetningin því vel við hæfi. Eftir Þingvelli heldur sveitin til Bandaríkjanna þar sem Kaleo kemur fram á Heimsmeistaramótinu í fótbolta og fer síðan á tónleikaferðalag um Norður-Ameríku. Tónlist 15.4.2026 09:10
Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Stórstjarnan Laufey Lín frumsýndi í gær tónlistarmyndband við lagið sitt Madwoman við mikla lukku aðdáenda sinna. Rúmlega þrjár milljónir hafa horft á myndbandið síðastliðinn sólarhring sem er vægast sagt stjörnum prýtt. Tónlist 14.4.2026 14:00
Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn „Guð minn góður, þetta var ótrúlegt,“ segir hinn átján ára gamli Guðjón Þorgils Kristjánsson sem bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna um helgina. Blaðamaður náði tali af þessari rísandi stjörnu sem er rétt að byrja. Tónlist 13.4.2026 20:01
Laufey Lín sló í gegn á Coachella Stórstjarnan Laufey Lín tróð í gær upp á einni vinsælustu tónlistarhátíð í heimi, Coachella sem haldin er í eyðimörk við borgina Palm Desert í Coachella Valley í Kaliforníu. Tónlist 13.4.2026 09:42
Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Black Sabbath rokkmessa hófst á Akranesi í gær, föstudaginn 10. apríl, þar sem Jenni í Brainpolice, Franz úr Ensími og Dr. Spock, Hallur úr HAM og Brimbrot og Flosi úr HAM stigu á svið. Þá stigu einnig á stokk sveitirnar Bastarður og Múr. Í kvöld verður dagskráin með léttara móti en þá koma fram Hjálmar, Spacestation og Oyama. Tónlist 11.4.2026 13:30
Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Hljómsveitin Dimma segir fullyrðingar tónlistarmannsins Stefáns Jakobssonar, Stebba Jak, um að bassaleikarinn Silli Geirdal og eiginkona hans hafi sett sig upp á móti honum, vera ósannar. Þetta segir í færslu sem birt var í dag á Facebook-síðu hljómsveitarinnar Dimmu en Stefán hætti sem söngvari hljómsveitarinnar eftir fimmtán ára skeið nú í vikunni. Tónlist 11.4.2026 11:15
Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Nánast uppselt er á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir. Tónlist 10.4.2026 12:11
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er hættur í hljómsveitinni Dimmu vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal og eiginkonu hans. Stefán segir þau hafa tekið afstöðu gegn honum í dómsmáli þar sem hann var ákærður fyrir líkamsárás en Stefán var sýknaður í málinu í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Stefán segir ákærandann hafa áreitt sig og fjölskyldu sína linnulaust síðustu tvö og hálft ár. Tónlist 9.4.2026 13:52
Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Forsala á stórtónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar hófst klukkan tíu í morgun og seldust miðarnir sex þúsund upp á innan við mínútu. Tónleikarnir fara fram 20. júní og mun fjöldi íslenskra tónlistarmanna koma þar fram. Tónlist 9.4.2026 12:12
Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Hljómsveitin ex.girls gaf í dag út fyrstu smáskífuna af nýrri plötu sinni, City of Fear, en laginu fylgir óhefðbundið myndefni. Platan var tekin upp á tíu dögum í Rotterdam árið 2023 og hefur mallað hjá sveitinni síðan. Söngkona sveitarinnar lýsir plötunni sem sexý og óhugnarlegri og hún sé samin af barnslegri gleði. Tónlist 9.4.2026 11:46
Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Stórstjarnan Björk var rétt í þessu að tilkynna Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði 12. ágúst næstkomandi þar sem hún þeytir skífum ásamt öflugum hópi tónlistarfólks. Tónlist 8.4.2026 13:02
„Þú munt verða stórkostleg söngkona“ „Ég held að Bill Murray sé spámaður,“ segir stórstjarnan Laufey Lín en hún var viðmælandi í hlaðvarpi breska fjölmiðlamannsins Louis Theroux sem var að mæta á streymisveitur í dag. Þar ræddi hún meðal annars um ferilinn, mikilvægi listsköpunar og óvæntan vinskap við ástsæla leikarann Bill Murray. Tónlist 31.3.2026 12:01
Söguleg stund í KR heimilinu Það var gríðarleg stemning á tónleikum rappsveitarinnar Mobb Deep síðastliðinn þriðjudag. „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið stærstu tónleikar sem við höfum staðið fyrir hingað til,“ segir Benni B-ruff einn af lykilskipuleggjendum þessarar tónleikaveislu. Tónlist 30.3.2026 11:02
Falinn gjóður vann Músíktilraunir Hljómsveitin Falinn gjóður stóð uppi sem sigurvegari Músíktilrauna 2026. Í öðru sæti var djasstríóið Brenninetla og í þriðja sæti var tónlistarkonan Lára. Tónlist 28.3.2026 23:56
Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Jessica Sutta, einn af upprunalegum meðlimum Pussycat Dolls, telur sig hafa verið skilda út undan í nýjustu endurkomu sveitarinnar vegna skoðana hennar á bóluefnum og stuðnings við Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Tónlist 25.3.2026 14:22
Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Eftir að hafa haldið tvenna stórkostlega tónleika í Kórnum þarsíðustu helgi hélt stórstjarnan Laufey Lín eftirpartý á barnum Tölt á Edition-hótelinu þar sem gestir skemmtu sér konunglega fram eftir nóttu. Tónlist 23.3.2026 13:26
Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Poppstjörnuna Chappell Roan óraði sennilega ekki fyrir því þegar hún fékk sér morgunmat á hóteli í Sao Paulo í gærmorgun að hún myndi reita bæði fótboltamanninn Jorginho og borgarstjóra Rio de Janeiro til reiði. Stjúpdóttir Jorginho hafði gengið framhjá borði Roan og fengið skammir í hattinn frá öryggisverði í kjölfarið. Roan segir öryggisvörðinn hafa verið á vegum hótelsins og hún hati ekki börn. Tónlist 23.3.2026 11:17
Jay-Z breytir um nafn... aftur Rapparinn og athafnamaðurinn Shawn Carter, betur þekktur sem Jay-Z, hefur ákveðið að breyta listamannsnafni sínu og setja tvípunkt ofan á ypsilonið. Rapparinn kom fram sem JAŸ-Z á fyrstu plötu sinni en losaði sig svo við tvípunktana. Tónlist 19.3.2026 12:53
Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Hörpu við hátíðlega athöfn. Fjöldi tónlistarmanna steig á svið og var veislustjórn í höndum Friðriks Ómars. Laufey Lín var hlutskörpust með fern verðlaun, Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin og hljómsveitinni Todmobile voru veitt heiðursverðlaun. Tónlist 18.3.2026 21:20
Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Rapparinn Birnir fékk í dag afhenta gullplötu fyrir sölu á plötunni Dyrnar en hún hefur selst í 2.500 eintökum á innan við ári. Jafnframt fékk hann afhentar platínuplötur fyrir fyrstu tvær plötur sínar. Tónlist 18.3.2026 15:24