„Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Samúel Karl Ólason skrifar 30. október 2026 10:44 Donald Trump á flugvelli í Washington DC í gær. AP/Alex Brandon Donald Trump hætti í gær við að fara á tvo kosningafundi í Iowa og Kansas um helgina. Kannanir benda til þess að jafnt sé á milli frambjóðenda í báðum ríkjum og er stjórn Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni í óvissu. Þrátt fyrir það sögðu leiðtogar Repúblikanaflokksins að hætt hefði verið við kosningafundina vegna þess að frambjóðendum flokksins vegnaði svo vel þar og að Trump þyrfti því ekki að heimsækja ríkin.
Sú tilkynning var gefin út skömmu eftir að blaðamaður Reuters spurði Trump að því hvort hann hefði hætt við kosningafundina vegna einhvers heilsuvanda. Trump hefur á undanförnum vikum haldið klukkustundalanga kosningafundi á hverjum degi og hafa vaknað upp spurningar um heilsu hans vegna sýnilegrar þreytu undanfarna daga. Forsetinn brást þó mjög reiður við spurningunni. „Þú hefur elt mig í tvær vikur. Mér líður fullkomlega,“ sagði hann. Þá sagði hann blaðamanninn vera „sjúkan“ fyrir að spyrja spurningarinnar. „Þú ert sjúkur maður. Reuters er, vel að merkja, hræðilegt.“ Því næst sneri forsetinn sér að öðrum blaðamönnum, benti á blaðamann Reuters og sagði: „Getið þið ímyndað ykkur. Sjáið þennan mann. Hann er í hræðilegu formi, sjáið bara hversu slæmt…“ Við það fór Trump að leika blaðamanninn áður en hann reyndi að útskýra af hverju hann færi ekki til Kansas og Iowa um helgina. „Hann kemur til mín: „Herra, þú ferð ekki til Kansas“. Ég fer ekki til Kansas því honum [Roger Marshall] gengur mjög vel. Ég ætla að tala gegnum fjarfundarbúnað. Á morgun fer ég til Flórída.“ Trump gaf til kynna að honum þætti spurningin um af hverju hann ætlaði ekki til Kansas vera fáránleg. Hann hefði haldið fjölda kosningafunda og teldi að hann þyrfti ekki til Kansas. Við það hélt hann áfram að leika blaðamanninn. „En hann sagði: „Þú ert ekki að fara til Kansas, herra. Líður þér vel?“ Þú hefur elt mig í tvær vikur, mér líður fullkomlega. „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form, þú lítur hræðilega út.“ Hvíta húsið deildi myndbandi af þessum samskiptum á samfélagsmiðlum í gær, með þeim skilaboðum að Trump hefði „rústað“ blaðamanni Reuters. Mjótt á munum í báðum ríkjum Repúblikanar í mörgum ríkjum sem hafa á undanförnum árum talist örugg fyrir flokkinn hafa horft upp á kannanir sem gefa þeim ekki góða mynd af stöðunni. Demókratar þykja mjög líklegir til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni. Þá eru þeir einnig taldir hafa ágætis tækifæri til að ná einnig meirihluta í öldungadeildinni, þó líkurnar séu minni en þegar kemur að fulltrúadeildinni. Í Kansas er Roger Marshall, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, að reyna að halda sæti sínu gegn Adam Hamilton, frambjóðanda Demókrataflokksins. Kannanir hafa sýnt að munurinn á milli þeirra er ekki mikill en í nýlegri könnun CNN mældist Hamilton með fjögurra prósentustiga forskot á Marshall. Í Iowa hefur Ashley Hinson, frambjóðandi Repúblikanaflokksins, verið að mælast með naumt forskot upp á tvö til þrjú prósentustig gegn Josh Turek, frambjóðanda Demókrataflokksins.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira