Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Eiður Þór Árnason skrifar 29. október 2026 21:59 Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/vilhelm Formaður Kennarasambands Íslands segir óvænt útspil stjórnvalda á þriðjudag hafa sett kjarasamninga kennara í uppnám. Lagt hafi verið til að hvika frá því markmiði sem lengi hafi verið stefnt að nokkrum dögum áður en frestur til að virkja forsenduákvæði í gildandi samningi rynni út. Ef samningsaðilar nái ekki aftur saman fyrir lok laugardags muni kennarar neyðast til að virkja umrætt ákvæði.
Að óbreyttu yrði kjarasamningum þá sagt upp 1. janúar 2027 og forsendunefnd fengi svo tvo mánuði til að leysa úr ágreiningsmálum. Takist það ekki yrðu samningar kennara lausir frá 1. mars. „En vonandi kemur ekki til þess,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands (KÍ), í samtali við Vísi. RÚV greindi fyrst frá. „Við erum ekki að biðja um neitt aukalega. Við viljum bara að við höldum áfram að vinna í þeim samningi sem við höfum verið að gera hingað til og engar beygjur af þeirri leið sem myndu kalla á einhvers konar samningaviðræður sem ég held að samfélagið hafi ekki þolinmæði fyrir og aðgerðir sem ég held að enginn hafi áhuga á að fara í.“ Koma verkfallsaðgerðir þar meðal annars til greina? „Um leið og komið er rót á vinnumarkaðinn og kominn upp einhvers konar ágreiningur þá eru leikreglur kjarasamninga þannig. Ég virkilega vona að við séum ekki að fara í þá átt,“ segir Magnús. Kennarasambandið skrifaði undir innanhússtillögu ríkissáttasemjara 25. febrúar 2025. Tillögan er ígildi kjarasamnings og framlengdi samninga undirfélaga til 31. mars 2028 með breytingum. Þar er ákvæði um svokallað virðismat sem er aðferð til að meta ólík kennarastörf og tengd launakjör. Mikil vinna hefur verið lögð í þróun þessa mats sem er óklárað en Magnús segir ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga nú vilja fara í aðra átt. „Við fengum senda hugmynd um það að við ættum að breyta um kúrs, fara í það að breyta samningnum og fara yfir í lengra samkomulag. Það tilboð er samningur sem við teljum að sé rýrari en sá sem við samþykktum eftir ansi mikil átök. Þannig að við erum ekki tilbúin í það.“ Núgildandi samkomulag náðist í kjölfar verkfalla kennara árið 2025. Geti unnið að markmiðinu í hálft ár í viðbót ef vilji sé fyrir hendi „Síðasti dagur til þess að virkja forsenduákvæði þess samnings sem er í gildi er núna á laugardaginn og núna erum við að horfa inn í það að fólk hefur viljað fara aðrar leiðir heldur en gildandi tillaga er. Við höfum ekki verið á þeim stað og vonum að það sé enn þá möguleiki að fara aftur inn á þá braut að þessi samningur sem er í gildi haldi áfram að malla og við getum unnið eftir honum áfram eins og hingað til,“ segir Magnús. Vinnan við samningagerðina hafi „gengið að mörgu leyti mjög vel“ fram að þessu þrátt fyrir að ekki sé búið að ganga frá samkomulaginu. Gert hafi verið ráð fyrir því að það mætti fresta niðurstöðunni um hálft ár. „Það er okkar markmið að þessi frestun verði þannig að við getum haldið áfram þeirri góðu vinnu sem við erum að tala um. Það einhvern veginn að ætla að fara að breyta og lengja og búa til önnur ákvæði heldur en eru í samningunum erum við ekki tilbúin í.“ „Kennarasambandið er lýðræðisfélag og við leitum til okkar félagsfólks, trúnaðarráða og stjórna til þess að vera með okkur í þeim ákvörðunum sem eru teknar og það að fara núna að beygja út af leiðinni sem við vorum á teljum við ekki vera það sem KÍ stendur fyrir. Þannig að við treystum bara á það að við munum ná því að fylgja því samkomulagi sem er í gildi og séum ekkert að horfa til neinna breytinga þar á.“ Færa þau einhverjar skýringar fyrir því af hverju þau vilja breyta um stefnu? „Það er auðvitað bara þeirra að svara fyrir. Í dag er fimmtudagur og það eru 48 tímar þangað til þetta forsenduákvæði virkjast. Ég bind enn þá vonir við það að við náum að fara að samningnum, að við fylgjum þeim samningi sem aðilar skrifuðu undir í febrúar 2025 undir stjórn ríkissáttasemjara og það er markmið KÍ, að það sé lausnin.“ Viljað vanda sig Magnús segir að unnið hafi verið að þróun umrædds virðismats frá undirritun síðasta kjarasamnings. „Það er í fyrsta skipti sem aðilar setjast niður og fara yfir umgjörð kennarastarfsins í ólíkum skólagerðum og fara yfir það hvað það er sem er grundvöllur starfsins og þar með um leið hægt að gefa okkur vísbendingar um það hvar starf er í samanburði við önnur störf sérfræðinga á almennum markaði. Sú vinna hefur gengið ágætlega. Vissulega hefur hún tafist vegna þess að við höfum gefið okkur góðan tíma til þess að gera þetta vel og það er það sem á að vera grundvöllur þess að við getum tekið næstu skref í kjarasamningunum. Við viljum vanda þau verk og við viljum fá tíma til þess að halda áfram á þeirri vegferð sem við erum á. Ef allir aðilar eru sammála um það þá er einfaldast að fylgja samningnum sem er í gildi og bara virkja það ákvæði sem kallar á þessa frestun eins og við höfum verið að leggja til og leggjum upp með.“ Viðræður haldi áfram næstu daga undir verkstjórn ríkissáttasemjara. „Ég treysti því að hann standi með tillögunni sinni og hjálpi okkur að komast á þann stað sem við viljum, að samningurinn verði virtur og með þeim ákvæðum sem í honum eru.“
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira