Innlent

Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar

Árni Sæberg skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í málinu.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í málinu. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að reyna að myrða kærustu sína á þáverandi heimili þeirra í Reykjavík um miðjan júlí síðastliðinn.

Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 13, segir að hann hafi veist að konunni með ofbeldi og reynt að svipta hana lífi, með því að slá hana í höfuðið með hörðu og þungu áhaldi með skörpum kanti.

Afleiðingar þess hafi verið að konan hlaut djúpan skurð á gagnauga hægra megin, höfuðkúpubrot með undirliggjandi mölbroti í ennis- og kinnbeini, ásamt aðliggjandi lofti og blæðingu inn á höfuðkúpuna, sár hægra megin á höku og kjálkabrot með undirliggjandi mölbroti í kjálkabeininu.

Með háttsemi sinni hafi maðurinn ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar á alvarlegan hátt. 

Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Fyrir hönd konunnar er gerð krafa um að maðurinn greiði henni þrjár milljónir króna í miskabætur, þjáningabætur að fjárhæð sem nánar verði tilgreind þegar fyrir liggja fullnægjandi gögn um þann tíma sem hún var rúmföst og veik, þó að lágmarki 20.000 krónur, bætur vegna útlags kostnaðar, þar með talið læknis-, lyfja-, ferða- og meðferðarkostnaðar, að fjárhæð 25.000 krónur auk bóta fyrir varanlegan miska ef til kemur að þeirri fjárhæð sem leiða kann af læknisfræðilegri matsgerð þegar heilsufar hennar telst orðið stöðugt og í ljós hefur verið leitt hvort hún hafi orðið fyrir varanlegum skaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×