Innlent

Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi

Agnar Már Másson skrifar
Á hjúkrunarheimilinu Grenilundi í Grenivík búa að jafnaði um tíu manns.
Á hjúkrunarheimilinu Grenilundi í Grenivík búa að jafnaði um tíu manns. Grýtubakkahreppur

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært konu sem vann á hjúkrunarheimilinu Grenilundi fyrir fjársvik og brot í opinberu starfi þar sem hún er grunuð um að svíkja hundruð þúsunda króna í reiðufé af korti vistmanns. Konan sagði upp störfum þegar upp komst um málið.

Á tímabilinu 6. maí til 21. september 2024 sveik starfsmaðurinn, í blekkingarskyni og án heimildar, út reiðufé að verðmæti 780 þúsund króna, að því er fram kemur í ákæru sem Vísir hefur undir höndunum. 

Að því er fram kom í frétt Rúv um málið fyrr í mánuðinum er um að ræða konu á þrítugsaldri, en hún er ekki nafngreind í ákærunni.

Grenilundur sambýli aldraðra á Grenivík í sveitarfélaginu Grýtubakkahreppi en í sveitarfélaginu öllu búa um 400 manns. Á sambýlinu búa að jafnaði tíu manns.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun. Hún mun hafa svikið út féð með því að taka úr hraðbanka af kreditkorti á nafni skjólstæðingsins þar sem hún hafði aðgang að kreditkorti brotaþola og PIN-númeri vegna starfa sinna á hjúkrunarheimilinu, þar sem brotaþoli var vistmaður, samkvæmt ákæru.

Hún hafi tekið út fjárhæðina í fimmtán aðskildum úttektum af kortinu yfir fjögurra mánaða skeið. Hver upphæð nam á bilinu 30 til 80 þúsundum króna.

Fyrrverandi starfsmaður Grenilundar er grunaður um að svíkja eftirfarandi upphæðir í reiðufé af kreditkorti vistmanns.

  • 06.05.2024: kr. 30.000
  • 07.05.2024: kr. 50.000
  • 10.05.2024: kr. 30.000
  • 17.05.2024: kr. 50.000
  • 24.05.2024: kr. 40.000
  • 10.06.2024: kr. 70.000
  • 05.07.2024: kr. 60.000
  • 10.07.2024: kr. 80.000
  • 15.07.2024: kr. 50.000
  • 19.07.2024: kr. 50.000
  • 06.09.2024: kr. 70.000
  • 07.09.2024: kr. 50.000
  • 11.09.2024: kr. 50.000
  • 17.09.2024: kr. 50.000
  • 21.09.2024: kr. 50.000

Telst þetta varða við 138. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Grýtubakkahreppur gaf út yfirlýsingu vegna málsins fyrir rúmri viku en þar segir að starfsmaðurinn hafi sagt upp þegar málið kom upp. Af hálfu heimilisins hafi málið strax verið tekið föstum tökum í samráði við lögmann sveitarfélagsins. 

Viðkomandi heimilismaður og aðstandendur hans hafi jafnframt verið upplýstir um atvik málsins. Verkferlar og öryggisreglur á heimilinu hafi jafnframt verið yfirfarnar til að fyrirbyggja að slíkt atvik komi upp aftur.

„Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst og er aðilum máls vottuð hluttekning. Minnt er á að sýna virðingu og umhyggju í umræðu og umfjöllun,“ sagði í yfirlýsingu sveitarfélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×