Innlent

Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jónína Ögn Jóhannesdóttir, bóndi á Illugastöðum, og tengdasonur hennar, Gunnar Sveinsson, í viðtali fyrir þáttinn „Um land allt“.
Jónína Ögn Jóhannesdóttir, bóndi á Illugastöðum, og tengdasonur hennar, Gunnar Sveinsson, í viðtali fyrir þáttinn „Um land allt“. Egill Aðalsteinsson

Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi.

Þau Friðrik og Agnes voru hálshöggvin fyrir morð á tveimur mönnum, Natan Ketilssyni og Pétri Jónssyni, en Natan var bóndi á Illugastöðum. Bróðir Natans, Guðmundur Ketilsson, var fenginn til að höggva þau Friðrik og Agnesi og hann settist svo að á Illugastöðum.

Rætt við húsráðendur við eldhúsborðið á Illugastöðum.Egill Aðalsteinsson

Þangað rennum við í hlað og heilsum upp á húsráðendur. Við eldhúsborðið nærri tvöhundruð árum síðar finnum við að sagan stendur nærri fólkinu. Þar sitja nefnilega afkomendur þessa síðasta böðuls á Íslandi, Guðmundar Ketilssonar.

„Já, ég er það. Sjötti frá honum,“ svarar Jónína Ögn Jóhannesdóttir, bóndi á Illugastöðum, þegar við ræðum við hana og tengdason hennar, Gunnar Sveinsson, fyrir þáttinn Um land allt, sem frumsýndur verður á Sýn+ í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 19:20. Brot úr þættinum má sjá hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:

-En hvernig var að alast upp með þessa vitneskju?

„Ég fann nú ekki fyrir neinu, svo sem. Það var bara ekkert verið að ræða um þetta á mínu bernskuheimili.“

-Heldurðu að þetta hafi verið eitthvað sem fólk vildi ekki tala um?

„Ja, mamma allavega fræddi okkur systkinin ekki á þessu,“ svarar Jónína.

„En hún var að segja fólki frá þessu sem kom hér í heimsókn og allt það og það var allt í lagi svo sem. En svo þegar var farið að spyrja okkur þá vorum við bara strand. Við vissum ekki svo mikið.“

Jónína Ögn er afkomandi böðulsins Guðmundar Ketilssonar í sjötta lið. Guðmundur var bróðir Natans Ketilssonar, bóndans sem myrtur var á Illugastöðum.Egill Aðalsteinsson

-En þegar þú áttaðir þig á því að þú værir afkomandi síðasta böðulsins á Íslandi, hvernig varð þér við?

„Ég bara held að það hafi ekki breytt neinu,“ svarar Jónína.

-Er fólk að koma hingað út af þessum morðum, út af þessari sögu?

„Já, það hefur gert það, bæði útlendingar og Íslendingar. Og stundum hafa komið hingað hópar, af eldra fólki til dæmis úr Reykjavík, hafa komið hingað bara gagngert til þess að skoða staðinn.“

Aftökustaðurinn á Þrístöpum er orðinn áningarstaður ferðamanna. Þar má sjá eftirmynd af öxinni og höggstokknum. Öxin sem notuð var við aftökuna er varðveitt á Þjóðminjasafninu í Reykjavík.

-En hvernig líður ykkur sem landeigendum að fólk sé að koma hingað út af morðum og aftöku?

„Þetta er nú bara sagan sko. Henni verður ekki breytt,“ svarar Gunnar sem titlar sig vinnumann á Illugastöðum.

„Maður breytir þessu ekki. Og við getum svo sem ekkert við því gert. En það er alveg sjálfsagt að fólk komi. Kannski finnur það fyrir einhverju, ég veit það ekki. Ég finn ekki fyrir nokkrum sköpuðum hlut hérna,“ segir Jónína á Illugastöðum, sem eru norðan Hvammstanga.

Magnús Ólafsson, sagnamaður og fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum, segir frá aftöku Friðriks og Agnesar á Þrístöpum.Egill Aðalsteinsson

Þessi fyrsti þáttur nýrrar þáttaraðar „Um land allt“ fjallar um helstu sögustaði síðustu aftökunnar á Íslandi. Á aftökustaðnum Þrístöpum fer sagnamaðurinn Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum yfir söguna. Í kirkjugarðinum á Tjörn á Vatnsnesi sýna bændur okkur gröf þeirra Friðriks og Agnesar og einnig staðinn þar sem talið er að þeir Natan Ketilsson og Pétur Jónsson séu grafnir. Bæirnir Kornsá, Vatnsdalshólar og Hvammur í Vatnsdal eru heimsóttir, einnig Þingeyrar og Steinnes, og forvitnast um hversvegna erlendir ferðamenn frá fjarlægum löndum gera sér ferð í Húnavatnssýslur á slóðir þessara myrku atburða.

Hér má sjá kynningarstiklu næstu þáttaraðar:


Tengdar fréttir

Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum

Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið.

Agnes var meira en bara morðingi

Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×