Innlent

Fækka um rúm­lega sjö­tíu stöðu­gildi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri Reykjavíkur.
Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri Reykjavíkur. vísir/einar

Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Greint var frá því í morgun að boðaður hefði verið borgarstjórnarfundur til að ræða hagræðingar og hermdu heimildir fréttastofu að tugum yrði sagt upp störfum. Í tilkynningunni segir að stöðugildin 74 séu öll í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar.

Á fundinum í morgun var samyþkkt að hlutfall stöðugilda í miðlægri starfsemi Reykjavíkurborgar ætti ekki að vera hærra en 7,5 prósent af heildarstöðugildum borgarinnar en reyndist hlutfallið vera 8,4 prósent í júní 2026.

„Aðgerðirnar fela í sér að 50 starfsmönnum á fimm sviðum og tveimur skrifstofum verður sagt upp störfum en af þeim verður þremur boðin önnur laus störf. Heildaráhrif aðgerðanna munu fela í sér fækkun upp á 73,8 stöðugildi, m.a. vegna starfsmannaveltu, tímabundinna ráðninga og stöðvunar ráðninga. Starfsfólki sem missir vinnuna býðst að sækja sér aðstoð hjá sálfræðingum og aðstoð við atvinnuleit í gegnum ráðningastofu.“

Þessar aðgerðir eigi að skila 1,3 milljörðum í varanlegum árlegum sparnaði.

Umrædd svið eru mannauðs- og starfsumhverfissvið, fjármála- og áhættustýringarsvið, þjónustu- og nýsköpunarsvið, umhverfis- og skipulagssvið og menningar- og íþróttasvið. Þá náðu uppsagnirnar einnig til skrifstofu borgarlögmanns og skrifstofu borgarstjórnar. Aðgerðinar náðu hins vegar ekki til skóla- og frístundasviðs eða velferðarsviðs þar sem ráðist var í hagræðingaraðgerðir þar fyrr á árinu.

Fram kemur að þetta sé síðasti áfanginn við fækkun stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu. Hins vegar verður áfram miðað við það að stöðugildi fari ekki umfram 7,5 prósent af heildar starfsmannafjölda borgarinnar.

Grunnþjónusta í forgangi

Tekið er fram að áfram eigi lögbundin verkefni og grunnþjónusta að njóta forgangs. 

„Fækkunin nær því fyrst og fremst til miðlægrar stjórnsýslu, innri þjónustu og stjórnunarstarfa en ekki til starfa sem sinna daglegri þjónustu við borgarbúa. Jafnframt verður lögð áhersla á að einfalda verklag, draga úr yfirbyggingu og nýta tækifæri sem skapast hafa með stafrænni umbreytingu,“ segir í tilkynningunni.

Markmiðið sé að styrkja rekstrargrundvöll borgarinnar, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og tryggja að fjármunir nýtist sem best. 

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×