Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. október 2026 14:41 Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri Reykjavíkur. vísir/einar Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Greint var frá því í morgun að boðaður hefði verið borgarstjórnarfundur til að ræða hagræðingar og hermdu heimildir fréttastofu að tugum yrði sagt upp störfum. Í tilkynningunni segir að stöðugildin 74 séu öll í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar. Á fundinum í morgun var samyþkkt að hlutfall stöðugilda í miðlægri starfsemi Reykjavíkurborgar ætti ekki að vera hærra en 7,5 prósent af heildarstöðugildum borgarinnar en reyndist hlutfallið vera 8,4 prósent í júní 2026. „Aðgerðirnar fela í sér að 50 starfsmönnum á fimm sviðum og tveimur skrifstofum verður sagt upp störfum en af þeim verður þremur boðin önnur laus störf. Heildaráhrif aðgerðanna munu fela í sér fækkun upp á 73,8 stöðugildi, m.a. vegna starfsmannaveltu, tímabundinna ráðninga og stöðvunar ráðninga. Starfsfólki sem missir vinnuna býðst að sækja sér aðstoð hjá sálfræðingum og aðstoð við atvinnuleit í gegnum ráðningastofu.“ Þessar aðgerðir eigi að skila 1,3 milljörðum í varanlegum árlegum sparnaði. Umrædd svið eru mannauðs- og starfsumhverfissvið, fjármála- og áhættustýringarsvið, þjónustu- og nýsköpunarsvið, umhverfis- og skipulagssvið og menningar- og íþróttasvið. Þá náðu uppsagnirnar einnig til skrifstofu borgarlögmanns og skrifstofu borgarstjórnar. Aðgerðinar náðu hins vegar ekki til skóla- og frístundasviðs eða velferðarsviðs þar sem ráðist var í hagræðingaraðgerðir þar fyrr á árinu. Fram kemur að þetta sé síðasti áfanginn við fækkun stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu. Hins vegar verður áfram miðað við það að stöðugildi fari ekki umfram 7,5 prósent af heildar starfsmannafjölda borgarinnar. Grunnþjónusta í forgangi Tekið er fram að áfram eigi lögbundin verkefni og grunnþjónusta að njóta forgangs. „Fækkunin nær því fyrst og fremst til miðlægrar stjórnsýslu, innri þjónustu og stjórnunarstarfa en ekki til starfa sem sinna daglegri þjónustu við borgarbúa. Jafnframt verður lögð áhersla á að einfalda verklag, draga úr yfirbyggingu og nýta tækifæri sem skapast hafa með stafrænni umbreytingu,“ segir í tilkynningunni. Markmiðið sé að styrkja rekstrargrundvöll borgarinnar, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og tryggja að fjármunir nýtist sem best. Fréttin verður uppfærð.
Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Sjá meira