Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Kjartan Kjartansson skrifar 27. október 2026 12:17 Bandarísk B1-sprengjuflugvél á Fairford-flugherstöðinni á Englandi í september. Bandaríkjaher dró sprengjuvélar sínar þaðan af ótta við árásir Írana. AP/Alastair Grant Bresk yfirvöld hafa ákært tvo breska karlmenn á grundvelli þjóðaröryggislaga vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi í síðasta mánuði. Annar þeirra er sakaður um að veita írönsku leyniþjónustunni liðsinni.
Ákærurnar tengjast uppákomu fyrir utan Fairford-flugherstöðina á vestanverðu Englandi 27. september. Fimm manns voru handteknir þar og var viðbúnaður líkt og þeir hefðu hugað á hryðjuverk þar. Flugvöllurinn var notaður undir bandarískar sprengjuflugvélar sem tóku þátt í loftárásum á Íran áður en Bandaríkjaher lagði á flótta frá nokkrum herstöðvum í þessum mánuði. Breskir saksóknarar segja að annar mannanna sé ákærður fyrir að aðstoða írönsku leyniþjónustuna. Hann var handtekinn í vikunni. Hinn maðurinn var á meðal þeirra fimm sem voru handteknir við herstöðina. Honum var sleppt strax á eftir en svo handtekinn aftur í síðustu viku. Hann sætir nú ákæru fyrir innbrot á lokað svæði í tilgangi sem sé skaðlegur breskum þjóðarhagsmunum. Uppi varð fótur og fit þegar mennirnir voru handteknir á sínum tíma. Fjöldi íbúa í nágrenninu var látinn yfirgefa heimili sín á meðan sprengjusérfræðingar voru sendir inn. Engar sprengjur fundust þó í bíl mannanna, en töluvert magn af eldsneyti. Írönsk stjórnvöld hafa hafnað því að hafa nokkuð með uppákomuna að gera. Þau telji þó allar herstöðvar sem notaður séu í stríði gegn Íran lögmæt skotmörk.
Bretland Íran Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira