Skoða að auka umfang árása enn frekar Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina. Erlent 20.7.2026 14:38
Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Byltingavörðurinn í Íran hefur hótað því að ekki einn einasti dropi af olíu eða gasi muni komast um Hormússund ef Bandaríkjamenn halda áfram árásum sínum á landið. Erlent 20.7.2026 06:56
Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum. Erlent 18.7.2026 23:28
Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Íranir gerðu árásir á bandarískar herstöðvar á Persaflóa í nótt og segja aðgerðirnar svar við árásum Bandaríkjanna fyrr í nótt. Íranski byltingarvörðurinn (IRGC) sagðist í gær hafa lokað fyrir alla umferð á Hormússundi. Erlent 12. júlí 2026 09:03
Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkjaher sé reiðubúinn, fús og fær til að „gereyða öllum svæðum Írans“ skyldu Íranar sýna honum banatilræði. Þúsund flugskeytum sé þegar beint að Íran. Erlent 11. júlí 2026 08:21
Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þúsundir Írana fylgja fyrrum æðstaklerkinum Ali Khamenei til grafar á lokadegi útfarar hans í borginni Mashhad í norðaustur Íran í dag. Fjórtán létust í árásum Bandaríkjanna síðustu nótt og þá hafa Íranir svarað með árásum gegn herstöðvum Bandaríkjanna í Kúveit, Katar og Barein. Erlent 9. júlí 2026 15:36
Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði. Erlent 9. júlí 2026 07:15
„Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Bandaríkjaher gerir nú árásir á Íran. Samkvæmt írönskum fjölmiðlum hafa sprengingar heyrst við suðurströnd landsins og á eyjum þeirra í Persaflóa. Erlent 8. júlí 2026 23:24
Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. Innlent 8. júlí 2026 18:52
Boðar fleiri árásir Bandaríkjaher ætlar að halda áfram árásunum sínum á Íran í kvöld. Þetta tilkynnti Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Erlent 8. júlí 2026 16:01
Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Markaðsverð á hráolíu hækkaði um rúm fimm prósent eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta um að bráðabirgðarvopnahléi milli Bandaríkjanna og Íran væri lokið. Viðskipti erlent 8. júlí 2026 10:30
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samtal Bandaríkjamanna og Írana vera komið á endastöð. „Ég nenni ekki að fást við þá lengur. Þeir eru úrhrök,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun. „Þeir eru veikir, þeir eru grimmir... ofbeldisfullt fólk.“ Erlent 8. júlí 2026 08:40
Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Íranir gerðu árásir á hernaðarinnviði Bandaríkjanna í Kúveit og Barein í nótt, í kjölfar árása Bandaríkjamanna á skotmörk í Íran í gærkvöldi. Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðu árásir sínar svar við árásum Írana á flutningaskip á Hormuz-sundi. Erlent 8. júlí 2026 07:09
Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Bandaríkin segjast hefja árásir á Íran á ný í kjölfar árásar Írans á þrjú olíuflutningaskip á Hormússundi. Bandaríkjastjórn afturkallaði í dag heimild um sölu á íranskri olíu en hún var hluti af bráðabirgðasamkomulagi um endalok átaka milli Bandaríkjanna og Írans. Erlent 7. júlí 2026 22:02
Mætti ekki í útför föður síns Mojtaba Khamenei, sem tók nýlega við sem æðstiklerkur Írana, var hvergi að sjá í jarðarför föður síns, Ali Khamenei fyrrverandi æðstaklerks. Bræður hans mættu samt. Hann hefur verið í felum frá því að hann tók við sem æðstiklerkur eftir að Bandaríkjaher felldi föður hans í loftárás í lok febrúar. Erlent 5. júlí 2026 19:49
Vikulöng jarðarför Khameini hafin Sex daga jarðarför Ayatollah Ali Khameini, æðsta leiðtoga Írans, hófst í dag. Hann lést í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í febrúar. Erlent 4. júlí 2026 14:05
Sammælast um að bera klæði á vopnin Bandaríkjamenn og Íranir eru sagðir hafa ákveðið að leggja niður vopn eftir átök síðustu daga og ætti því skipaumferð um Hormússund að geta hafist að nýju. Erlent 29. júní 2026 07:20
Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Ísraels segja Ísraelsher hafa eyðilagt neðanjarðargögn Hezbollah-samtakanna í Líbanon. Erlent 28. júní 2026 23:25
Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Enn eykst spenna í Mið-Austurlöndum en Íslamska byltingarvarðliðið í Íran (IRGC) hefur staðfest dróna- og loftskeytaárásir á Barein og Kúveit. Árásirnar hafi beinst að flugstöð Bandaríkjanna í Kúveit og flota Bandaríkjanna í Barein en hersveitir Bandaríkjahers héldu árásum sínum áfram og skutu á írönsk skotmörk í gær, laugardaginn 27. júní. Erlent 28. júní 2026 12:12
Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Hersveitir Bandaríkjahers hafa haldið áfram árásum sínum á skotmörk í Íran í kvöld. Erlent 27. júní 2026 22:34
Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Bandaríkjaher hefur gert árásir á írönsk skotmörk eftir að Donald Trump forseti sakaði Íran um „heimskulegt brot“ á vopnahléi í kjölfar árásar á flutningaskip á Hormússundi á fimmtudag. Erlent 27. júní 2026 08:00
Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Alþýðusambandið segir lækkandi heimsmarkaðsverð á bensíni ekki hafa skilað sér í lægra lítraverði á bensínstöðvum á Íslandi. Neytendur 26. júní 2026 12:13
Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið lægra frá því áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar. Olíuflutningar um Hormússund hafa aukist umtalsvert frá því að Íranir og Bandaríkjamenn gerðu samkomulag sín á milli í síðustu viku. Viðskipti erlent 25. júní 2026 11:00
Hnakkrifust á bak við luktar dyr Donald Trump Bandaríkjaforseti átti í dag spennuþrunginn fund með þingflokki Repúblikanaflokksins í öldungadeild eftir að hann aflýsti skyndilega undirritunarathöfn fyrir húsnæðisfrumvarp sem bæði Demókratar og Repúblikanar stóðu að. Rifrildin snerust aftur á móti að mestu um stríðsrekstur Bandaríkjahers í Íran. Innlent 24. júní 2026 22:53