Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2026 21:01 Jenesen Huang er forstjóri Nvidia. Það hefur stækkað gífurlega hratt á undanförnum árum og er orðið verðmætasta fyrirtæki heims, á grunni þess að framleiða búnað fyrir gagnaver ætluð gervigreind. AP/Markus Schreiber Jensen Huang, forstjóri Nvidia, verðmætasta fyrirtækis heims, er sagður hafa átt í samskiptum við konu sem talin er vera kínverskur njósnari. Konan er sögð hafa stofnað gagnaverafyrirtæki í Singapore sem hún notaði til að smygla tölvuflögum fyrir gervigreind til Kína, auk þess sem hún á að hafa deilt upplýsingum með leyniþjónustum Kína.
Bandaríkjamenn hafa um árabil unnið hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að bandarísk tækni á sviði gervigreindar endi í höndum Kínverja. Huang hefur á öðru kjörtímabili Trumps spilað stóra rullu í því að Trump ákvað að létta á reglunum varðandi Kína og bandaríska gervigreindartækni. Sjá einnig: Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Nvidia framleiddi lengst af að mestu skjákort í tölvur en reksturinn gengur nú að miklu leyti út á það að framleiða búnað fyrir gagnaver ætluð gervigreind. Eftirspurnin eftir þessum búnaði hefur gert fyrirtækið það verðmætasta í heimi á einungis nokkrum árum. Sjá einnig: Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Þá er Jensen Huang tiltölulega vel tengdur Donald Trump og hefur beinan aðgang að forsetanum og innsýn í þankagang hans. Þegar starfsmenn bandarískra leyniþjónusta komust á snoðir hennar og uppgötvuðu tengsl hennar við Huang, sem er einn áhrifamesti maður Bandaríkjanna þegar kemur að gervigreind, var þeim upplýsingum deilt með Hvíta húsinu. Fyrir um ári síðan var málið kynnt Trump og ákvað hann að grípa ekki til neinna aðgerða. Það mun meðal annars vera vegna þess að hann vildi ekki trufla sölu Nvidia en vöxtur fyrirtækisins á undanförnum árum hefur verið einn af burðarstólpum bandaríska hlutabréfamarkaðarins. Þá vildi Trump ekki heldur styggja Kínverja. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri frétt New York Times um málið. Kaupa flögur og leigja reiknigetuna til K'ina Samkvæmt heimildarmönnum NYT er Alice Huang, umrædd kona, enn undir yfirliti leyniþjónusta Bandaríkjanna og fyrirtæki hennar, sem heitir Megaspeed, hefur á þessu ári haldið áfram að kaupa tölvuflögur af Nvidia. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa takmarkað sölu bandarískra fyrirtækja á tölvuflögum til Kína frá árinu 2022. Forsvarsmenn nokkurra fyrirtækja hafa verið gómaðir við að smygla flögum til Kína en aðrir hafa sett upp lögleg fyrirtæki í ríkjum í Suðaustur-Asíu og reist þar gagnaver með bandarískum tölvuflögum og leigt reiknigetu þeirra til Kína. Megaspeed er eitt þessara fyrirtækja. Þetta hafa bandarískir embættismenn og þingmenn litið hornauga. Ríkisstjórn Joes Biden greip til aðgerða til að reyna að draga úr þessu en Trump hætti þeim þegar hann tók við embætti aftur. Segja innri rannsókn hreinsa Megaspeed af sök Jensen Huang mun ekki hafa formlegar upplýsingar um málið og leiðbeiningar um það hvernig hann gæti varið sig gegn njósnum, eins og gjarnan eru veittar fólki sem talið er að erlend ríki gætu reynt að njósna um eða hafa áhrif á. Huang fór með Trump til Kína fyrr á þessu ári og sat kvöldverð í Hvíta húsinu þegar Xi Jinping, forseti Kína, heimsótti Bandaríkin nú í haust. Í yfirlýsingu til NYT frá Nvidia segir að rannsókn fyrirtækisins hafi leitt í ljós að Megaspeed sé ekki að smygla flögum til Kína. Þá segir að samskipti Jensen Huang við Alice Huang (enginn skyldleiki) séu eðlileg. Hann eigi í sambærilegum samskiptum við þúsundir viðskiptavina Nvidia á ári hverju. Þá segir í yfirlýsingunni að ef yfirvöld Bandaríkjanna teldu hættuna raunverulega hefðu forsvarsmenn fyrirtækisins verið látnir vita. Huang og Huang sáust saman á bar í Taipei í Taívan í júní 2024. Það var eftir tæknisýningu og sátu þau og drukku viskí ásamt öðrum forsvarsmönnum gervigreindarfyrirtækja. Tæpu ári síðar sáust þau aftur saman og aftur ásamt forsvarsmönnum annarra fyrirtækja, í Taipei.
Bandaríkin Kína Gervigreind Donald Trump Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira