Kína

Kína

Höfuðborg: Peking. Mannfjöldi: 1.409,0 milljónir (2025). Flatarmál: 9.596.961 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Varaði Trump við á­tökum vegna Taí­van

Xi Jinpin, forseti Kína, varaði Donald Trump, kollega sinn frá Bandaríkjunum, við átökum milli ríkjanna við upphaf fundar þeirra í morgun. Þá mun Xi hafa sagt Trump að ef hann heldi rangt á spöðunum varðandi Taívan, eyríkið sem Kínverjar gera tilkall til, gæti það leitt til „gífurlega hættulegs ástands“ og „átaka“.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Trump fer til Kína: „Við erum tvö stór­veldi“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent
Fréttamynd

Banna í­búða­kaup til öskugeymslu

Stjórnvöld í Kína hyggjast setja lög til að sporna við því að fjölskyldur fjárfesti í íbúðum til að geyma ösku ástvina sinna fremur en að koma hinum jarðnesku leyfum fyrir í þar til gerðum grafreit.

Erlent
Fréttamynd

Berg­dís nýr sendi­herra Ís­lands í Kína

Bergdís Ellertsdóttir tekur við stöðu sendiherra í Kína síðar á árinu. Hún hefur starfað við utanríkisþjónustu í hálfan fjórða áratug og var sendiherra í Bandaríkjunum áður en Svanhildur Hólm Valsdóttir tók við embættinu fyrir hálfu öðru ári.

Innlent
Fréttamynd

Hóta öllum mögu­legum arf­tökum Khamenei

Donald Trump forseti Bandaríkjanna útilokar ekki að senda bandaríska hermenn til Mið-Austurlanda en segist hafa nánast gjöreytt írönsku stjórninni. Á sama tíma er greint frá því á Guardian að nokkuð víðtæk samstaða hafi náðst um eftirmann æðsta leiðtoga Írans, Ayatollah Ali Khamenei. Það sagði Ayatollah Mohammadmehdi Mirbaqeri, meðlimur sérfræðingaráðsins, í dag, að sögn fréttastofunnar Mehr.

Erlent
Fréttamynd

Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu.

Erlent
Fréttamynd

Hraðlygni leið­sögu­maðurinn ekki eins­dæmi: „Ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur“

„Það má gera ráð fyrir því að það séu fleiri og fleiri tugir — ef ekki hundruð — svona aðilar sem eru starfandi á Íslandi,“ segir Þór Bínó, varaformaður deildar leiðsögufólks hjá VR, um mál bresks karlmanns sem vísað var úr landi eftir að hafa starfað sem leiðsögumaður án atvinnu- og dvalarleyfis og svo logið ítrekað að lögreglu um ferðir sínar á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Banda­rískur reynslu­bolti gómaður við að þjálfa Kín­verja

Bandarískur maður sem starfaði lengi hjá flugher Bandaríkjanna sem herþotuflugmaður hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að aðstoða kínverska herinn. Hann flaug bandarískum herþotum í rúma tvo áratugi og þar á meðal F-35 þotum og þjálfaði bandaríska flugmenn í flugi þeirra þota. Þá hefur hann einnig reynslu af bandarískum kjarnorkuvopnum.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lensk hjón búa um­kringd öryggis­vörðum

Snorri Sigurðsson og Kolbrún Anna Örlygsdóttir bjuggu ásamt börnum sínum á Hvanneyri þegar þau ákváðu að taka sér ársleyfi fyrir 15 árum af því að Snorra langaði til Danmerkur í endurmenntun. Þar leið fjölskyldunni vel, Snorri endurmenntaði sig við Háskólann í Árósum, Kolbrún fékk vinnu og krakkarnir undu sér vel. Þegar árið var á enda vildi Snorri heim, en ekki Kolla. Þau héldu atkvæðagreiðslu við eldhúsborðið heima - sem Snorri tapaði.

Lífið
Fréttamynd

Það sem Marco Ru­bio virðist ekki skilja

Samstaða meðal einræðisríkja er djúpstæðasta ógnin sem Bandaríkin og bandamenn þeirra, bæði í Evrópu og á Indó-Kyrrahafssvæðinu, standa frammi fyrir. Engu að síður var hvorki minnst einu orði á Rússland né Kína í ræðu Rubio.

Umræðan
Fréttamynd

„Þá er Ís­land kannski næsti biti“

Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. 

Innlent
Fréttamynd

Kín­verjarnir selja sig út úr Elkem

Kínverska félagið Bluestar hefur samið um sölu á öllum eignarhlut sínum í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðju á Grundartanga. Kaupverðið verður allt greitt með einni af þremur deildum Elkem, sem verður klofin frá félaginu, og enginn peningur fer á milli aðila. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstur Elkem á Grundartanga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Drauma­ferð til Kína um páskana

Það er ekki auðvelt að lýsa Kína í stuttu máli. Kína, sem er eitt stærsta ríki heims og nær yfir fimm tímabelti, er land ótrúlegra andstæðna, mannlífs, menningar og náttúrufegurðar. Þar má finna nútímalegar stórborgir og sveitasælu fortíðarinnar. Kínversk matargerð er fyrir löngu heimsþekkt og þar er úrvalið meira en margan grunar. Allt þetta og meira til stendur ferðalöngum til boða í 12 daga ferð Úrvals Útsýnar til Kína dagana 29. mars til 9. apríl.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Nýtt sam­komu­lag eða nýtt vopnakapphlaup?

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og meðlimir ríkisstjórnar hans eru að skoða hvort virkja eigi fleiri kjarnorkuvopn og íhuga mögulega tilraunasprengingu. Þetta hafa embættismenn Trumps gert ljóst á undanförnum dögum, síðan síðasti kjarnorkuvopnasamningurinn milli Bandaríkjanna og Rússlands rann sitt skeið í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Japanir halda í kjör­klefana

Japanir ganga í kjörklefann í dag eftir að Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, boðaði til skyndikosninga. Skoðanakannanir spá fyrir um afgerandi sigur flokks hennar.

Erlent
Fréttamynd

Neytandi njósnakláms varð fórnar­lamb

Maður sem var árið 2023 að fletta í gegnum miðil þar sem hann nálgaðist reglulega klám, rambaði óvænt á myndband af sjálfum sér hafa mök við kærustu sína. Þau höfðu verið tekin upp á laun í hótelherbergi sem þau gistu í í Shenzhen í Kína nokkrum vikum áður. Slíkur iðnaður þykir nokkuð umfangsmikill í Kína, þó yfirvöld þar hafi sett reglur sem ætlað er að taka á vandanum.

Erlent
Fréttamynd

Sendi Trump tóninn vegna Taí­van

Xi Jinping og Donald Trump, forsetar Kína og Bandaríkjanna, áttu langt símtal í gær þar sem þeir eru sagðir hafa rætt hin ýmsu málefni sem snúa að samskiptum ríkjanna. Meðal annars ræddu þeir stöðuna í Íran og í Úkraínu og væntanlega heimsókn Trumps til Kína í vor en forsetarnir virðast ósammála um helsta málefni viðræðnanna og tón þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Einungis einn her­foringi eftir í mið­stjórn kín­verska hersins

Xi Jinping, forseti Kína, hefur staðið fyrir miklum hreinsunum innan hersins. Margir háttsettir herforingjar hafa verið sviptir embættum og sakaðir um ýmis brot. Xi skipaði þá flesta sjálfur í stöður þeirra en síðan þá hafa þeir verið settir til hliðar og rannsakaðir fyrir hin ýmsu brot eins og spillingu.

Erlent
Fréttamynd

Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng.

Erlent