Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Freyja Þórisdóttir skrifar 28. október 2026 15:40 Farþegi sem var í annarri lestinni segist aðeins hafa lifað af vegna þess að hann var í veitingavagninum ásamt samstarfsmanni þegar áreksturinn varð, er fram kemur á vef danska ríkisútvarpsins. Myndin er úr safni. AP Þriggja daga þjóðarsorg stendur yfir næstu þrjá daga í Andalúsíu en hið minnsta 68 manns létu lífið þegar tvær hraðlestir rákust á í morgun. Samgönguráðherra Spánar hefur greint frá því að tvennt hafi leitt til slyssins, fyrst kerfisvilla og því næst ákvörðun um að önnur lestin mætti keyra áfram þrátt fyrir að vera á rauðu.
Áreksturinn átti sér stað nærri bænum Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu en alls voru 544 farþegar um borð í lestunum tveimur þegar áreksturinn varð. Áfram á rauðu Þá voru 397 manns í lest ríkislestarfélagsins RENFE en 147 í hinni sem var á vegum IRYO, einkarekins fyrirtækis. Nú liggur fyrir að ákvörðun hafi verið tekin um að RENFE-lestin mætti keyra áfram á rauðu ljósi eftir að hafa stöðvast á teinunum í kjölfar kerfisvillu. Alls hafi sex lestir staðið kyrrar vegna villunnar en Óscar Puente, samgönguráðherra Spánar, greindi frá því á blaðamannafundi að kerfisvillan hafi verið eitt af því sem leiddi til slyssins, er fram kemur í frétt The Guardian um málið. Því næst hafi umferðarstjórnstöð tekið yfir og verið í samskiptum við lestarstjórana. Þá hafi verið tekin ákvörðun um að RENFE-lestin mætti halda áfram en Puente hefur sagt að fyrirmælin um að hefja lestarumferð á ný hefðu ekki átt að vera gefin. Sá sem tók endanlega ákvörðun um að hefja hana sætir nú rannsókn, skrifar The Guardian jafnframt. Spænska þjóðin syrgir Þá var greint frá því í lifandi vakt danska ríkisútvarpsins að forseti héraðsins Castilla-La Mancha, Emiliano García-Page, hefði greint frá því að tala látinna hefði hækkað og í það minnsta 68 hefðu látið lífið í slysinu. Svo virðist sem vagn sjö í IRYO-lestinni hafi orðið verst úti í árekstrinum. Á blaðamannafundi í morgun greindi forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, frá því að hann ætlaði að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna slyssins. „Spánn syrgir og umvefur fórnarlömbin; ríkisstjórn Spánar, og ríkið allt, stendur með fórnarlömbunum og fjölskyldum þeirra,“ er haft eftir honum í umfjöllun The Guardian en þjóðarsorgin stendur yfir frá því á morgun og þar til á laugardaginn.
Spánn Samgönguslys Samgöngumál Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Sjá meira