Samgönguslys

Fréttamynd

Stúlkan frá Ír­landi en bú­sett hér á landi

Tæplega nítján ára stúlka sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags var frá Írlandi en búsett hér á landi þar sem hún undi hag sínum vel. Talið er að bíllinn hafi verið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða áður en slysið varð.

Innlent
Fréttamynd

Lík­lega á yfir tvö hundruð kíló­metra hraða

Bíllinn sem þrjú ungmenni voru í þegar hann hafnaði utan vegar á Krýsuvíkurvegi með þeim afleiðingum að öll þrjú létust var á yfir tvö hundruð kílómetra hraða þegar slysið varð. Eldur kviknaði í bílnum þar sem hann lenti í hrauninu. Þrír bílar til viðbótar voru á vettvangi þegar slysið varð, en eitt ungmennanna var erlendur ríkisborgari.

Innlent
Fréttamynd

Minningarstundir vegna andlátanna

Minningarstund verður haldin í Lágafellskirkju vegna andláts Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur. Einnig verður minningarstund um Benjamín Guðmundsson í Háteigskirkju. Þau létust bæði í umferðarslysi á Krísuvíkurvegi aðfaranótt mánudags.

Innlent
Fréttamynd

Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er

Búið er að bera kennsl á mann sem lést í bílslysi í Þrengslunum sunnudagskvöldið 26. júlí síðastliðinn. Það var þó lögreglu erfiðara en oft, og þurfti hún að afla dómsúrskurðar til þess að framkvæma réttarkrufningu til þess að fá úr því skorið.

Innlent
Fréttamynd

Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna

Áhættuleikkonan Arna Magnea Danks lenti í mótorhjólaslysi á sunnudaginn, fótbrotnaði illa og þarf að fara í tvær aðgerðir. Hún var á mótorhjólinu í Gleðigöngunni á laugardaginn og var á leið með það í bílskúr þegar hún lenti í slysi á Sæbrautinni.

Lífið
Fréttamynd

Hafnaði úti í fjöru

Bíll hafnaði út í fjöru við Gufunes rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn alvarlega slasaður.

Innlent
Fréttamynd

Horfðu á bílinn velta niður fjallið

Fjölskylda á ferðalagi um Vestfirði reiknaði með því versta þegar hún horfði á bíl velta niður hlíðar Bolafjalls um þrjúleytið í dag. Fólkið trúði ekki sínum eigin augum þegar það sá konu skríða út úr bílflakinu sem var í algjörri klessu. Ótrúlegt en satt er konan aðeins slösuð á handlegg.

Innlent
Fréttamynd

Bana­slys í Þrengslunum

Laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells. Einn lést í slysinu. 

Innlent
Fréttamynd

Á sjúkra­hús eftir að hafa flogið af mótor­hjólinu

Mótorhjólaslys átti sér stað í Kópavogi seint í kvöld og var ökumaður fluttur slasaður á bráðamóttöku með sjúkrabíl eftir að hafa flogið af hjólinu. Hann var með meðvitund en atvikið átti sér stað á veginum við Kópavogslæk í átt að Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Reið en þakk­lát fyrir lífs­björgina

Kona á rafhlaupahjóli sem fékk alvarlegt höfuðhögg og marðist illa í andliti vegna sandgryfju við gangbraut segist þakklát fyrir að vera á lífi. Ótrúlegt sé að ekki hafi verið brugðist við eftir að ítrekað var bent á lélegan frágang á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi

Ferju á vegum hins opinbera hvolfdi undan ströndum Gvæjana. Farþegar voru hundrað og sextán og í áhöfn voru sautján. Staðfest hefur verið að sextíu og sjö hafi verið bjargað en fjölda manns er enn saknað.

Erlent
Fréttamynd

Enginn al­var­lega slasaður eftir bílveltuna

Mennirnir þrír sem voru í bílnum sem valt fram af vegi í Skötufirði á tólfta tímanum í dag eru ekki alvarlega slasaðir. Ökumaður sem átti leið hjá bauð þeim að sitja inni í bíl hjá sér þar til hjálp bærist.

Innlent
Fréttamynd

Búið að opna Holta­vörðu­heiði aftur

Umferð um Holtavörðuheiði er farin að flæða á ný eftir að henni var lokað vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð myndaðist á heiðinni. Vegagerðin benti ökumönnum á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði.

Innlent
Fréttamynd

Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“

Ekki eru allir á sama máli um hvort hjóla megi yfir á rauðu ljósi. Í umferðarlögum kveður þó skýrt á um að ökumönnum sé „óheimilt að aka gegn rauðu umferðarljósi. Við rautt ljós skal ökutæki stöðvað áður en komið er að stöðvunarlínu eða, ef stöðvunarlínu vantar, umferðarljósastólpa.“ 

Innlent