Spánn

Spánn

Höfuðborg: Madríd. Mannfjöldi: 48,6 milljónir (2025). Flatarmál: 505.990 ferkílómetrar.

Fréttamynd

„Ég er hrika­lega stoltur af honum“

Eftir að hafa fengið aðeins illt í föðurhjartað horfði Óskar Hrafn Þorvaldsson stoltur á son sinn Orra Stein Óskarsson vinna spænska konungsbikarinn með liði Real Sociedad í gærkvöldi.

Fótbolti

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fast­eignir á Spáni

Spánn hefur lengi verið draumaland Íslendinga sem vilja fjárfesta í fasteign erlendis, hvort sem markmiðið er að setjast þar að til lengri tíma eða dvelja hluta árs í sólinni. Íslendingar þekkja suður hluta Spánar vel eftir sólalandsferðir síðustu áratuga og kunna vel að meta spænska menningu, spænska matargerð, fallega náttúru og hagstætt verðlag. 

Lífið samstarf
Fréttamynd

Gefur lítið fyrir hótanir Trumps

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, dregur ekkert úr andstöðu sinni við árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran, þrátt fyrir að Bandaríkjaforseti hafi hótað að skera á viðskiptatengsli við Spán vegna hennar.

Erlent
Fréttamynd

Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims

Toppi kirkjunnar Sagrada Familia í Barselóna á Spáni hefur verið komið fyrir, 144 árum eftir að hafist var handa við að byggja hana. Hún er sú hæsta í heimi.

Erlent
Fréttamynd

Keyptu 250 fer­metra hús í Anda­lúsíu á fjöru­tíu milljónir

Rakel Eyfjörð Tryggvadóttir var einstæð móðir á Skagaströnd þegar hún kynntist Spánverja sem var að vinna í fiskvinnslu á Djúpavogi. Síðan þá hefur líf hennar snúist á hvolf, þau eru nú flutt til Andalúsíu þar sem þau fjárfestu í stóru húsi við Costa Tropical í Andalúsíu og ákváðu að ganga í heilagt víkingahjónaband undir funheitri Spánarsólinni.

Lífið
Fréttamynd

Taki þátt í skipu­lagningu frá Litla-Hrauni

Lögreglan telur sig hafa upprætt alþjóðleg glæpasamtök sem bera ábyrgð á stórum hluta þess kókaíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi á síðustu árum. Meðlimir samtakanna eru taldir hafa skipulagt innflutning á meðan þeir sátu inni á Litla-Hrauni. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi.

Innlent
Fréttamynd

Musk segir spænsk stjórn­völd hyggja á „þjóðar­morð“

Áform spænskra stjórnvalda um að veita þúsundum manna sem dvelja ólöglega í landinu tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi jafngilda „þjóðarmorði“ á hvítu fólki að mati Elons Musk, ríkasta manns heims. Allt að hálf milljón manna gæti fengið dvalarleyfi.

Erlent
Fréttamynd

Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana

Victoria Hart, 33 ára gömul þriggja barna móðir frá Bretlandi, var stungin til bana á heimili sínu á Spáni um helgina. Börn hennar voru heima þegar móður þeirra var ráðinn bani, en elsti sonur hennar sem er ellefu ára, mun hafa kallað eftir aðstoð. Sex ára tvíburadætur Hart voru einnig í húsinu en meintur árásarmaður er sagður hafa sjálfur gefið sig fram við lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

Vöruðu við slæmum skil­yrðum á brautinni

Stéttarfélag lestarstjóra á Spáni varaði í ágúst við bágu ástandi lestarteinanna á kafla þar sem eitt mannskæðasta lestarslys Evrópu í áttatíu ár varð í gær þegar minnst fjörutíu létust.

Erlent
Fréttamynd

Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni

Spænsk yfirvöld gáfu það út í morgun að tala látinna í lestarslysinu sem varð í suðurhluta landsins í gærkvöldi hafi hækkað upp í 39. Að minnsta kosti 73 voru fluttir á spítala og þar af voru 24 sagðir alvarlega slasaðir. Fjögur börn eru sögð á meðal þeirra slösuðu.

Erlent
Fréttamynd

Rann­saka á­sakanir á hendur Iglesias

Spænskir saksóknarar rannsaka nú áskanir um að Julio Iglesias, einn ástsælasti söngvari landsins, hafi beitt tvær fyrrverandi starfskonur sínar kynferðislegu ofbeldi. Iglesias, sem er á níræðisaldri, hefur ekki tjáð sig um ásakanirnar.

Erlent
Fréttamynd

Ragn­heiður fékk heila­blóð­fall á Spáni

Leikkonan Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni milli jóla og nýárs og hefur legið á spítala í Málaga síðan. Hún kemur heim til Íslands í læknisfylgd í dag og hefur í kjölfarið endurhæfingu.

Lífið
Fréttamynd

Fjöl­menni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sól­rúnu Diego að sjá

Snyrtifræðingurinn Gurrý Jónsdóttir hélt upp á 35 ára afmæli sitt á Tenerife á laugardag og tróðu þar upp Ingó veðurguð, Prettyboitjokkó og Himpsumhaps. Fjöldi góðra gesta mætti en athygli vakti að áhrifavaldurinn Sólrún Diego, sem heldur úti hlaðvarpinu Spjallinu með Gurrýju og Línu Birgittu, mætti ekki.

Lífið