Birgitta Líf hefði mátt sýna meiri nærgætni eftir havaríið á Ibiza Eiður Þór Árnason og Freyja Þórisdóttir skrifa 1. október 2026 00:09 Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class, var í umræddri ferð. Samsett Ungar konur sem fóru í ferð til Ibiza á vegum World Class og Úrval Útsýnar gagnrýna hvernig fulltrúar líkamsræktarstöðvarinnar brugðust við eftir að talið var að eldur hefði kviknað í skemmtibáti sem tekinn var á leigu á sunnudag.
Þetta segja Nína Dögg Hilmarsdóttir, Natalía Nótt Helgadóttir, Matthildur Bolladóttir og Nadía Hólm Elísdóttir sem allar voru um borð í bátnum. Þær eru á aldrinum 21 til 24 ára. Ferðin hafi verið farin undir merkjum World Class Pilates Club og World Class séð um dagskrá ferðarinnar. Hún náði yfir þrjár nætur og var bátsferðin ekki hluti af upphaflegri dagskrá, að sögn kvennanna. Þess í stað hafi Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class, og Anna Bergmann, pilatesþjálfari og markaðsstjóri World Class, stungið upp á bátsferðinni og séð um skipulag. Þátttakendur hafi svo fengið aukareikning fyrir kostnaðinum frá Laugum ehf., rekstrarfélagi World Class. Klippa: Hamagangur í Ibiza-ferð World Class Fyrri hluti siglingarinnar gekk vel að sögn kvennanna og komu þær við á eyju þar sem þær fengu sér að borða. Það hafi svo verið í bakaleiðinni sem eitthvað fór að fara úrskeiðis. Skipstjórinn hafi skyndilega stöðvað bátinn eftir um tuttugu til þrjátíu mínútna siglingu og þær byrjað að finna brunalykt. Gert lítið úr vandanum áður en þeim var skipað að hoppa út í sjó „Við héldum að þetta væri að koma annars staðar frá og pældum fyrst ekki mikið í því. Síðan byrjaði að koma hvítur reykur og við létum skipstjórann vita af því. Hann sagði fyrst að þetta væri ekkert til að hafa áhyggjur af því bátar ofhitni stundum,“ segja þær fjórar í skriflegu svari til Vísis. „Reykurinn fór síðan að aukast og verða dekkri. Þá fór skipstjórinn að hringja eftir aðstoð en náði ekki á neinn. Þarna var hann orðinn mjög stressaður og ein úr hópnum lét vita að hún væri ekki synd. Reykurinn varð svo svartur og þá sagði skipstjórinn að við yrðum að hoppa strax frá borði og synda í burtu frá bátnum.“ Þarna hafi enginn bátur verið nálægur og þær komist að því að hvorki væru björgunarvesti né björgunarhringur um borð. Einhverjir farþegar hafi þá stokkið út í sjóinn og þar á meðal ein sem var ósynd. Flotbretti hafi verið um borð og þær stuðst við það til að halda sér á floti og hjálpa þeirri sem kynni ekki að synda. Óttast sprengjuhættu „Sem betur fer kom fljótlega bátur að og þegar við vorum að reyna að synda að honum rak bátinn okkar alltaf að okkur og rakst á okkur,“ segir í svari farþeganna fjögurra. Fólk hafi verið hrætt um að báturinn kynni að springa. Áhöfn bátsins sem kom til aðstoðar var ótengd bátaleigunni, að sögn kvennanna. „Hann var heppilega að sigla fram hjá og heyrði okkur kalla á hjálp. Í bátnum voru aðrir spænskir ferðamenn sem höfðu leigt sér þennan bát fyrir daginn.“ Á leiðinni yfir í hinn bátinn hafi sími, hleðslubanki, töskur og skartgripir meðal annars farið út í sjó. Þegar þær voru komnar yfir hafi þær svo látið fólkið í hinum bátunum vita af því sem hafði gerst. Hafi ekki litið á þær „Skipstjórarnir á hinum bátunum frá fyrirtækinu létu vita að við þyrftum aðstoð. Hinir þrír bátarnir komu til okkar og athuguðu með okkur nema báturinn sem Birgitta og Anna voru á. Þau komu og stoppuðu í smá stund en enginn leit einu sinni á okkur.“ Þær gera athugasemd við að enginn hafi tekið á móti þeim á bryggjunni þegar þær komu í land, hvorki frá World Class né bátaleigunni. Þess í stað hafi þær verið beðnar um að hitta Birgittu og Önnu síðar í gestamóttöku hótelsins. „Við upplifðum hittinginn sem við værum að trufla þær enda áttu þær bókað borð á veitingastað. Þær sögðust vera til staðar fyrir okkur en það væri ekkert meira sem yrði gert það kvöld. Við áttum að hittast aftur eftir æfinguna morguninn eftir og þær ætluðu að gera [spjallhóp] fyrir okkur, sem vorum í bátnum, til að ræða þessa hluti. Ekkert af þessu var gert.“ Þess í stað hafi þeim síðar einfaldlega verið bent á að hafa samband við bátaleiguna. Þetta hafi svo ekki verið rætt frekar fyrr en þær sendu tölvupósta á ferðaskrifstofuna Úrval Útsýn og World Class „til að fá útskýringar á ýmsum hlutum og láta vita hvað hefði betur mátt fara og fengum frekar leiðinleg svör á móti.“ Sýnt skort á nærgætni Nína, Natalía, Matthildur og Nadía vilja árétta að þær líti ekki svo á að Birgitta, Anna eða World Class beri ábyrgð á bátaatvikinu sjálfu. „Gagnrýni okkar beinist að framkomu þeirra sem stóðu að ferðinni og viðbrögðum þeirra, eða skorti á viðbrögðum, í kjölfarið. Að okkar mati var framkoman ófagmannleg og sýndi skort á nærgætni og tillitssemi gagnvart þeim sem urðu fyrir áfallinu. Fjórar af þeim sex konum sem lentu í atvikinu voru einar á ferð og þekktu enga aðra í hópnum. Þær höfðu því engan nákominn sér til stuðnings þegar áfallið fór að segja til sín, en hjá flestum okkar gerðist það ekki fyrr en um kvöldið.“ Þær hefðu viljað finna fyrir meiri stuðningi eða boð um aðstoð. Einföld afsökunarbeiðni hafi verið nóg en í staðinn hafi þeim liðið eins og það hafi verið gert lítið úr upplifun þeirra. „Okkur finnst einfaldlega sjálfsagt að sýna fólki umhyggju og vera til staðar þegar það lendir í svona aðstæðum.“
Ferðalög Spánn Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Birgitta Líf hefði mátt sýna meiri nærgætni eftir havaríið á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira