Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Árásin átti sér stað fyrir utan Hagkaup í Skeifunni.
Árásin átti sér stað fyrir utan Hagkaup í Skeifunni. Vísir/Vilhelm

Hópur ungra manna réðst á annan með barsmíðum í Skeifunni. Fórnarlambið var flutt á bráðamóttöku með minni háttar meiðsli.

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið að ræða sem réðust á annan.

Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að árásin hafi átt sér stað á bílastæði fyrir framan Hagkaup í Skeifunni. Tilkynning barst rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi.

Tveir eru taldir vera gerendur og eru þeir átján og sextán ára gamlir. Þar sem annar þeirra er barn var kallað til Barnaverndar vegna málsins. Maðurinn sem varð fyrir árásinni er átján ára gamall. 

„Þetta eru einhverjir sem venja komur sínar þangað og ráðast á einn,“ segir Skúli.

Sjúkrabíll var kallaður til og var hann með áverka á hné. Hann var fluttur á bráðamóttökuna til frekari aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×