Erlent

Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Af Biminieyju Bahamaeyja.
Af Biminieyju Bahamaeyja. Getty

Bresk kona lést á Bahamaeyjum eftir að hafa reynt að bjarga tveimur sonum sínum þegar sterkur straumur bar þá frá landi. Eiginmaður hennar segir hana hafa haldið í annan drenginn þar til honum var bjargað en þá ekki haft orku til að bjarga sér sjálfri.

Leanne Gregory var að snorkla ásamt fjölskyldu sinni við eyjuna Bimini á þriðjudag þegar drengirnir voru gripnir af straumnum. Báðum börnunum var bjargað úr sjónum en ekki tókst að bjarga móður þeirra, að því er breska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Bahamaeyjum.

Missirinn ólýsanlegur

Nathan Gregory, eiginmaður hennar, segir missinn ólýsanlegan fyrir fjölskylduna.

„Hún var hreinasta og ótrúlegasta eiginkona, móðir og vinkona sem gengið hefur á þessari jörð,“ skrifaði hann á Facebook.

Hann sagði eiginkonu sína hafa verið æskuástina sína og sálufélaga. Þau höfðu verið saman í 22 ár.

„Strákarnir mínir þurftu að verða vitni að einhverju sem enginn, á hvaða aldri sem er, ætti að þurfa að sjá. En þeir vita að mamma þeirra dó sem algjör hetja.“

Hetja í lífi og dauða

Nathan hefur stofnað söfnun til stuðnings sonum þeirra eftir slysið. Þar lýsir hann því hvernig Leanne hafi haldið í annan drenginn þar til björgun barst.

Hann segist þakklátur fyrir að synir þeirra hafi komist lífs af.

„Ég verð bara að vera þakklátur fyrir hetjuna sem hún var, bæði í lífi og dauða.“

Lögreglunni á Bahamaeyjum barst tilkynning skömmu eftir klukkan tíu að staðartíma á þriðjudag um meðvitundarlausa konu við ferjubryggjuna á North Bimini. Leanne hafði þá verið flutt þangað úr sjónum og var endurlífgun reynd á henni. Hún var síðan flutt á heilsugæslustöð þar sem hún var úrskurðuð látin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×