„Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. júlí 2026 22:49 Eldar geisa í suðurhluta Evrópu. Samsett Skæðir gróðureldar í suðurhluta Evrópu eru birtingarmynd loftslagsbreytinga samkvæmt fagstjóra hjá Veðurstofu Íslands. Sömuleiðis er aukin hætta á Íslandi sem sést í lengra sumri.
Rúmlega þrjú hundruð þúsund íbúum hefur verið gert að rýma heimili sín vegna gróðurelda í Frakklandi og á Spáni. Í Frakklandi eru gróðureldarnir um fimmtán kílómetrum frá stórborginni Bordeaux og í Spáni eru þeir nærri Madríd. Hitabylgjur hafa verið tíðar í Evrópu síðustu sumur og nálgast önnur hitabylgja Spán. „Þetta er búið að vera töluvert erfitt sumar, fyrsta hitabylgjan kom strax í maí og það eru búnar að fylgja nokkrar hitabylgjur á eftir og þurrkar,“ segir Guðrún Nína Petersen, fagstjóri veðurlíkanaþróunar hjá Veðurstofu Íslands. „Þá er þetta sérstaklega slæmt á stöðum þar sem er þurrt fyrir og þú hefur þennan þurra, hlýja vind sem kemur og hann hreinlega dregur restina af rakanum úr jarðveginum og gróðrinum þannig það er allt mjög viðkvæmt á þessum svæðum.“ „Virðist ekkert vera að breytast“ „Árið í fyrra var það versta síðan mælingar hófust á gróðureldum,“ segir Guðrún Nína og bætir við að árið í ár sé ekki jafn slæmt. „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar, það er þetta veður þar sem við erum að fá þurrka og hitabylgjur sem valda þessu. En sömuleiðis hafa loftslagsbreytingar þau áhrif að þær geta breytt því hvernig skógurinn er samsettur og hvernig útbreiðslan á honum.“ Guðrún bendir á að loftslagsbreytingarnar lengi eldtímabilið og þar af leiðandi séu meiri líkur á gróðureldum. Stærri gróðureldum sé að fjölga hratt. „Við erum að sjá þessa stóru gróðurelda og þetta virðist ekkert vera að breytast. Með hlýnandi loftslagi er aukin hætta á hitabylgjum og þá er aukin hætta á gróðureldum.“ Hætta á Íslandi Guðrún segir að áhrif loftslagsbreytinganna sé einnig að finna hér á landi. „Það er aukin hætta hér, við erum að sjá að sumrin okkar eru að lengjast og þar af leiðandi er gróðrartímabilið lengra. Við sjáum það á skógunum okkar, hvernig þeir eru að vaxa. Þannig við þurfum vissulega að vera vakandi fyrir því hvernig við gróðursetjum og hvernig við högum okkur svo við lágmörkum hættuna,“ segir hún. Fyrst og fremst sé nauðsynlegt að takast á við loftslagsbreytingarnar. „Það er númer eitt, tvö, þrjú, fjögur og fimm. Við getum ekkert lokað augunum fyrir því að þetta eru einkenni loftslagsbreytinga.“
Gróðureldar Loftslagsmál Frakkland Spánn Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira