Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. október 2026 16:49 Valgerður gætir hagsmuna konunnar í málinu. Réttargæslumaður konu sem slasaðist alvarlega eftir að hafa farið á fund við karlmann til að stunda kynlíf er verulega hissa á viðsnúningi í málinu fyrir íslenskum dómsmálum. Hún segir mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar.
Umræddur dómur var kveðinn upp í Landsrétti í gær. Karlmaður, sem áður hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, var ákærður í annað sinn fyrir nauðgun og dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann áfrýjaði málinu til Landsréttar sem klofnaði í málinu. Tveir dómarar sýknuðu hann en sá þriðji vildi staðfesta sakfellingu. Enn óvinnufær Valgerður Valdimarsdóttir er réttargæslumaður umræddrar konu sem hún segir þremur árum síðar enn óvinnufæra. Líkamlegar afleiðingar hafi verið miklar en ekki síður andlegar. Konan sæki enn sjúkraþjálfun enda stórsköðuð eins og eftir slæmt bílslys. Í dóminum er vísað til samskipta fólksins á Instagram þar sem maðurinn hafði greint konunni frá því að hann hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Landsréttur taldi að af samskiptunum mætti ráða að konan hafi gert sér grein fyrir áhuganum og fyrir dómi sagði hann að þau hefðu rætt um mörk og sammælst um öryggisorð. Konan lýsti samskiptunum hins vegar á allt annan hátt og sagði að þau hefðu lítið rætt saman í eigin persónu. Hissa á niðurstöðunni Í ákæru er því meðal annars lýst að maðurinn hafi slegið konuna í andlitið, þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar, tekið hana hálstaki og haldið kodda yfir andliti hennar. Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind og heyrnartap. „Ég er mjög ósammála þessari niðurstöðu og mjög hissa á henni,“ segir Valgerður. Hún minnist þess þegar hringt var í hana frá Neyðarmóttöku Landspítalans þar sem konan var komin. Hjúkrunarfræðingarnir hefðu sjaldan séð aðra eins áverka í kynferðisbrotamáli. Samþykki ekki opið leyfi „Það var talið að hún hefði samþykkt að taka þátt í harkalegu kynlífi. En þetta er svo langt um fram það,“ segir Valgerður og veltir fyrir sér hve langt maðurinn hefði getað gengið. Þó að konan hafi sagst vera til í harkalegt kynlíf þá sé það ekki opið leyfi fyrir hverju sem er. „Hún samþykkti ekki það sem átti sér stað,“ segir Valgerður. „Þetta leggur línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk. Það er skrýtin lína lögð með þessu.“ Vill fá málið fyrir Hæstarétt Athygli vekur að kona dæmdi í málinu fyrir héraði og sakfelldi manninn. Landsréttur var skipaður þremur dómurum, tveimur körlum og einni konu. Konan vildi sakfella en karlarnir sýkna. Valgerður segir mikilvægt að málið fari fyrir Hæstarétt enda sé mikilvægt að lína sé lögð í svona málum. „Það er mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi. Mér finnst mikilvægt að þetta verði endurskoðað.“
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Fleiri fréttir Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Sjá meira