Innlent

Sjö ára dómur

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sævar Hilmarsson í Héraðsdómi. 
Sævar Hilmarsson í Héraðsdómi.  Vísir

Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru báðir dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að Dettifossmálinu svokallaða. Skipverjarnir tveir sem komu að málinu fengu báðir fimm ára dóm. 

Þetta segir Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, saksóknari málsins, í samtali við fréttastofu. Dómurinn hefur ekki verið birtur. 

Sævar og Kastriot voru ákærðir fyrir innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínvökva frá Bremerhaven í Þýskalandi með fraktskipinu Dettifossi í apríl 2026. Saksóknari hafði krafist þess að þeir myndu hljóta átta og hálfs árs dóm. 

Kastriot Pepaj í dómsal.Vísir

Fréttastofa fjallaði ítarlega um málið þegar það var flutt fyrir héraðsdómi. Hægt er að lesa allar fréttirnar hér.

Magnús Gauti Magnússon og Björgvin Þór Björnsson, skipverjar á Dettifossi, fengu fimm ára dóm fyrir sinn hlut í málinu. Fyrir dómi lýstu þeir aðkomu sinni á málinu og lesa má um hana hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×