Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Valur Páll Eiríksson skrifar 22. október 2026 13:30 Amin Cosic varð í gær nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu. Samsett/Getty Amin Cosic varð í gær nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu. Sá fyrsti spilaði leik árið 1998. Menn hafa spilað mismikið í keppninni, flestir fyrir FCK, og flestir aðeins eina leiktíð.
erlendis Landslið karla í fótbolta Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira
Nítján Íslendingar hafa spilað í Meistaradeild Evrópu og þeir eru tveir í keppninni í ár; Hákon Arnar Haraldsson með Lille og Amin Cosic sem þreytti frumraun sína í keppninni í gær. Sjö af 19 hafa spilað fyrir FC Kaupmannahöfn í keppninni og langflestir hafa aðeins spilað eina leiktíð í keppninni. Eiður Smári Guðjohnsen er markahæstur Íslendinga með sjö mörk og er einn aðeins fjögurra sem hafa skorað mark. Saga hvers og eins í keppninni er rakin hér að neðan, í tímaröð frá fyrsta leiks hvers og eins. Aðeins eru taldir með leikir í riðlakeppni eða deildarkeppni Meistaradeildarinnar og ekki leikir í forkeppni. 1. Árni Gautur Arason (Rosenborg) 21 leikur (1998-2003) Árni Gautur í búningi Rosenborg í leik gegn Lyon í Meistaradield Evrópu árið 2002.Vísir/Getty Árni Gautur var hluti af Rosenborgarliði sem réði yfir norskum fótbolta á tíunda áratugnum og á byrjun 21. aldarinnar. Hann var varamarkvörður fyrir Jörn Jamtfall tímabilið 1998 til 1999 en spilaði þó tvo af sex leikjum liðsins í riðlakeppninni í 3-0 sigri og 3-0 tapi fyrir Galatasaray. Hann spilaði alls 21 leik í keppninni fyrir norska liðið frá 1998 til 2002 og komst einu sinni með liðinu áfram í milliriðil, sem þá var í keppninni, og varði markið í töpum fyrir Dýnamó Kíev, Bayern Munchen og Real Madrid vorið 2000. 2. Eyjólfur Sverrisson (Hertha Berlín) 11 leikir (1999-2000) Eyjólfur tekst á við Luis Figo í leik við Barcelona árið 2000.EPA Eyjólfur Sverrisson tók þátt í Meistaradeildinni með Herthu Berlín veturinn 1999 til 2000. Hann spilaði ellefu leiki er liðið komst, líkt og Rosenborg, áfram í milliriðil það tímabil. Hann var meðal annars í vörninni í 1-0 sigri á AC Milan í Berlín og atti þá einnig kappi við Chelsea, Barcelona, Porto og Spörtu Prag. 3. Helgi Sigurðsson, Panathinaikos 1 leikur (2000-2001) Helgi Sigurðsson fagnar marki með Panathinaikos.vísir/gazetta.gr Helgi Sigurðsson var leikmaður Panathinaikos um aldamótin er gríska liðið komst í Meistaradeildina. Hann var utan hóps í flestum leikja liðsins er það fór áfram í milliriðil. Hann sat á bekknum í jafnteflum við Valencia og Manchester United í milliriðlinum og spilaði svo 18 mínútur í síðasta leik liðsins í keppninni við Valencia á Mestalla á Spáni. 4. Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea og Barcelona 45 leikir, 7 mörk (2003-2009) Eiður skoraði gegn Liverpool á Anfield vorið 2007 en það dugði skammt.Getty Lang leikjahæstur Íslendinga og sá eini sem hefur unnið keppnina. Hann hafði tækifæri til að spila fyrstur allra þegar hann var 16 ára í aðalliði PSV haustið 1997 en meiðsli höfðu sitt að segja og Eiður orðinn feitur í KR sumarið eftir. Hann tók stór skref fram á við frá þeim svarthvítu í Frostaskjólinu og var kominn í Meistaradeildina undir stjórn Claudio Ranieri með Chelsea veturinn 2003-04 eftir að Jesper Grönkjær hafði tryggt liðinu Meistaradeildarsæti í lokaumferðinni árið áður. Roman Abramovich mætti með veskið sumarið fyrir og stjörnum prýtt Chelsea-lið fór alla leið í undanúrslit en tapaði þar fyrir Mónakó vorið 2004. Eiður Smári átti þá martraðarklúður í blálokin gegn Liverpool í undanúrslitum vorið 2005 þegar liðið féll úr leik á Anfield og liðið datt út í 16-liða úrslitum fyrir Barcelona vorið 2006. Eiður Smári vann keppnina árið 2009.Getty Eiður fór frá Chelsea til Barcelona sumarið 2006 en féll aftur út í 16-liða úrslitum vorið 2007, í þetta sinn fyrir Liverpool þar sem Eiður skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri á Anfield en Barcelona féll út vegna útivallarmarkareglunnar. Aftur voru ensk lið að stríða Eiði vorið 2008 þegar Barcelona féll úr keppni fyrir Manchester United í undnaúrslitum á síðustu leiktíð Frank Rijkaard með liðið. Það kom svo að því á fyrstu leiktíð Pep Guardiola, sem var jafnframt síðasta leiktíð Eiðs með Barcelona og hans síðasta í Meistaradeildinni, að liðið vann keppnina vorið 2009 eftir sigur á Manchester United í úrslitaleik. 5. Sölvi Geir Ottesen (FC Kaupmannahöfn) 3 leikir (2010-2011) Sölvi Geir Ottesen kom FCK í riðlakeppnina en missti af stórum hluta hennar vegna meiðsla.Mynd/Nordic Photos/Getty Sá fyrsti af mörgum Íslendinga á þessum lista sem þreytti frumraun sína með FCK í Meistaradeildinni. Sölvi Geir hafði skorað sigurmarkið fyrir danska liðið gegn Rosenborg í forkeppninni sem kom þeim dönsku í riðlakeppnina haustið 2010. Þegar í riðlakeppnina var komið tókst Sölva aðeins að spila þrjá leiki af sex og aðeins einn í byrjunarliði, í 1-0 sigri á Rubin Kazan á Parken í fyrsta leik. Hann spilaði blálokin í 1-1 jafntefli við Barcelona og síðasta korterið í 3-1 sigri á Panathinaikos. FCK fór áfram í 16-liða úrslit en Sölvi missti af báðum leikjum gegn Chelsea eftir aðgerð þar sem enska liðið felldi FCK úr keppni. Íslendingar í Meistaradeild Evrópu, eftir fjölda leikja. Eiður Smári Guðjohnsen, 45 leikir, 7 mörk Árni Gautur Arason, 21 leikur Eyjólfur Sverrisson, 11 leikir Kolbeinn Sigþórsson, 11 leikir Hákon Arnar Haraldsson, 9 leikir** Viktor Bjarki Daðason, 6 leikir, 3 mörk* Arnór Sigurðsson, 6 leikir, 2 mörk* Ragnar Sigurðsson, 6 leikir Rúrik Gíslason, 6 leikir Orri Steinn Óskarsson, 6 leikir* Kári Árnason, 5 leikir Birkir Bjarnason, 5 leikir Mikael Neville Anderson, 5 leikir* Ísak Bergmann Jóhannesson, 5 leikir* Alfreð Finnbogason, 3 leikir, 1 mark Sölvi Geir Ottesen, 3 leikir Hörður Björgvin Magnússon, 3 leikir* Helgi Sigurðsson, 1 leikur Amin Cosic, 1 leikur** *Leikmenn enn að spila **Leikmenn í keppninni í ár 6. Kolbeinn Sigþórsson (Ajax) 11 leikir (2011-2015) Kolbeinn Sigþórsson var liðsfélagi Christian Eriksen hjá Ajax og þeir spiluðu saman í Meistaradeildinni.Mynd/Nordic Photos/Getty Kolbeinn Sigþórsson tókst ekki að komast á blað með Ajax á árum sínum í Meistaradeildinni og missti af fjölmörgum leikjum vegna meiðsla. Hann spilaði fyrstu leikina haustið 2011 en missti af fjórum vegna meiðsla og missti af öllum Meistaradeildarleikjum liðsins árið eftir. Hann spilaði fimm af sex leikjum liðsins í riðlakeppninni haustið 2013, meðal annars gegn Barcelona og AC Milan og spilaði þá einnig tvisvar við Barcelona og eini sinni gegn PSG er liðið féll út í riðlakeppninni haustið 2014. 7. Ragnar Sigurðsson (FC Kaupmannahöfn) 6 leikir (2013-14) Ragnar Sigurðsson tekst á við Karim Benzema í Meistaradeildinni með FCK. Ragnar Sigurðsson spilaði alla sex leikina í miðri vörn danska stórliðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar haustið 2013. Hann lagði upp markið í 1-1 jafntefli við Juventus á Parken í fyrsta leik og lagði einnig upp í 3-1 tapi fyrir sama liði í Tórínó. Eini sigurinn kom gegn Galatasaray á Parken en liðið tapaði svo tveimur leikjum gegn Real Madrid. 8. Rúrik Gíslason (FC Kaupmannahöfn) 6 leikir (2013-14) Rúrik Gíslason er einn margra Íslendinga sem hefur leikið í Meistaradeildinni fyrir FCK.Nordicphotos/Getty Rúrik Gíslason spilaði með Ragnari haustið 2013 og byrjaði fimm af sex leikjum. Hann lagði upp sigurmarkið í 1-0 sigrinum á Galatasaray á Parken í nóvember það árið. Hann spilaði því einnig gegn Real Madrid á Santiago Bernabéu. 9. Kári Árnason (Malmö) 5 leikir (2015-16) Kári eltist við Zlatan Ibrahimovic í Meistaradeildinni.vísir/getty Kári var orðinn 33 ára þegar hann þreytti frumraun sína í Meistaradeildinni haustið 2015. Malmö komst þá í riðlakeppnina og var í engum smá riðli með PSG, Real Madrid og Shakhtar Donetsk. Kári lenti í honum kröppum með sænska liðinu og honum er eflaust eftirminnilegt 8-0 tap fyrir Real Madrid í lokaleik riðilsins í Malmö. Hann var þó hluti af liðinu sem vann góðan 1-0 sigur á Shakhtar á heimavelli en liðið tapaði hinum leikjunum stórt. Kári fékk rautt í 4-0 útitapi fyrir Shakhtar og missti því af 5-0 tapi fyrir PSG í París í næsta leik. Malmö lauk riðlinum með markatöluna 1-21. 10. Alfreð Finnbogason (Olympiakos) 3 leikir, 1 mark (2015-2016) Alfreð Finnbogason fagnar hér sigurmarki sínu á móti Arsenal.Vísir/AFP Alfreð Finnbogason kom víða við á sínum ferli en einu leikir hans í Meistaradeild Evrópu komu haustið 2015 þegar hann var á láni frá Real Sociedad á Spáni. Hann kom inn á sem varamaður gegn Arsenal á Emirates-vellinum í fyrsta leiknum og skoraði sigurmarkið í 3-2 útisigri þeirra grísku. Hann spilaði hins vegar aðeins 14 mínútur í viðbót í leikjunum fjórum sem eftir voru í keppninni. Hann kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri á Dinamo Zagreb og spilaði síðustu fjórar mínúturnar í 3-0 tapi fyrir Arsenal í síðari leik liðanna í Aþenu. 11. Birkir Bjarnason (Basel) 5 leikir (2016-2017) Birkir Bjarnason spilaði gegn stórliðum með Basel haustið 2016.vísir/getty Eftir frækinn árangur Íslands á EM 2016 skipti Birkir til Basel í Sviss og fór með liðinu í Meistaradeildina. Liðið var í riðli með Ludogorets, Arsenal og PSG en tókst ekki að vinna leik eftir töp fyrir stórliðunum tveimur og tvö jafntefli við Ludogorets. Birkir var í byrjunarliðinu fyrstu fimm leikina en sat allan tímann á bekknum í tapi fyrir Arsenal í Sviss í lokaleiknum. 12. Arnór Sigurðsson (CSKA Moskva) 6 leikir, 2 mörk (2018-2019) Arnór Sigurðsson í leiknum á móti Real Madrid. Hér þakkar hann Gareth Bale fyrir leikinn.Getty/ Denis Doyle Arnór stökk með látum fram á heimssviðið með CSKA Moskvu í Meistaradeildinni aðeins 19 ára gamall haustið 2018. Hann spilaði alla sex leiki liðsins í riðlakeppninni gegn Viktoria Plzen, Roma og Real Madrid. Hann skoraði í 2-1 tapi fyrir Roma í fjórða leik liðsins í riðlinum og bætti um betur þegar hann skoraði eitt markanna í mögnuðum 3-0 sigri á Real Madrid á Santiago Bernabeu í desember 2018. Sá leikur reyndist hins vegar hans síðasti í keppninni, í það minnsta hingað til. 13. Hörður Björgvin Magnússon (CSKA Moskva) 3 leikir (2018-19) Hörður Magnússon og Arnór Sigurðsson.vísir/getty Hörður Björgvin spilaði þrjá leiki í sömu riðlakeppni og Arnór með rússneska liðinu haustið 2018. Hann missti af einum leikjanna vegna meiðsla og var þá í banni í tapi fyrir Viktoria Plzen eftir að hafa fengið rautt gegn Roma í leiknum á undan. Hann spilaði hins vegar allar 90 mínúturnar í sigrinum frækna á Real Madrid á Bernabéu. 14. Mikael Neville Anderson (Midtjylland) 5 leikir (2020-2021) Mikael fékk treyju frá Mohamed Salah.Getty Mikael Neville var í liði Midtjylland sem fór í riðlakeppnina haustið 2020 og mætti þar Ajax, Atalanta og Liverpool sem höfðu unnið keppnina 2019. Mikael byrjaði einn leik, jafntefli gegn Atalanta á Ítalíu, og vakti þá athygli þegar hann lenti í vandræðum við að klæða sig í treyjuna áður en hann kom inn af bekknum í 1-1 jafntefli við Liverpool í lokaleik riðilsins þar sem Midtjylland endaði í neðsta sæti með tvö stig. 15. Ísak Bergmann Jóhannesson (FC Kaupmannahöfn) 5 leikir (2022-23) Ísak tekst á við Aymeric Laporte.Getty Ísak byrjaði fjóra leiki og kom inn sem varamaður í einum er FCK var í riðlakeppninni haustið 2022. FCK var í gríðarsterkum riðli með Dortmund, Sevilla og Manchester City en náði í stig á heimavelli gegn þeim öllum og Ísak byrjaði alla þrjá leikina þar sem liðið náði í stig. 16. Hákon Arnar Haraldsson (FC Kaupmannahöfn og Lille) 9 leikir (2022-2026) Hákon lék með Ísaki í keppninni 2022 og er þar í ár með Lille.Getty Hákon Arnar er einn tveggja Íslendinga sem er í Meistaradeildinni þennan veturinn. Hann spilaði með Ísaki Bergmann í liði FCK haustið 2022 og tók þátt í öllum sex leikjunum og byrjaði þrjá. Þar á meðal var 1-1 jafntefli við Dortmund á Parken þar sem Hákon Arnar skoraði eina mark FCK. Hákon er þá að taka þátt í Meistaradeildinni í annað sinn í ár, nú með Lille frá Frakklandi. Hann lagði upp annað marka liðsins í 2-4 tapi fyrir Galatasaray í gærkvöldi en Lille hefur tapað öllum þremur hingað til, einnig gegn Real Betis og Arsenal. 17. Orri Steinn Óskarsson (FC Kaupmannahöfn) 6 leikir (2023-2024) Orri þakkar áhorfendum eftir að FCK tapaði í 16-liða úrslitum á Etihad-vellinum fyrir Manchester City.Getty Haustið eftir að Skagamennirnir Ísak Bergmann og Hákon Arnar léku með FCK í riðlakeppninni voru þeir báðir horfnir á braut frá dönsku höfuðborginni en Orri Steinn Óskarsson var kominn inn í aðalliðið. Hann kom inn á sem varamaður í fimm af sex leikjum í riðlakeppninni þar sem FCK var ásamt Galatasaray, Bayern Munchen og Manchester United. Orri spilaði meðal annars 20 mínútur í frábærum 4-3 heimasigri á Manchester United. Orri byrjaði þá leik við Manchester City í 16-liða úrslitum en FCK tapaði 3-1 í Manchester, þar sem Orri lagði þó upp eina markið, en FCK tapaði einvíginu samanlagt 6-2. 18. Viktor Bjarki Daðason (FC Kaupmannahöfn) 6 leikir, 3 mörk (2025-2026) Leikmenn FCK fagna marki Viktors Bjarka á Nývangi.Getty Viktor Bjarki var aðeins 17 ára gamall þegar hann spilaði fyrsta Meistaradeildarleikinn og skoraði í 2-4 tapi fyrir Dortmund á Parken. Hann skoraði einnig í 3-2 sigri á Kairat Almaty og þriðja markið kom í sjötta leiknum í 1-4 tapi FCK fyrir Barcelona á Nývangi. 19. Amin Cosic (Viking) 1 leikur (2026-2027) Michael Olise og Amin Cosic eftir leik Viking og Bayern MunchenMynd: Amin Cosic á Instagram Í gærkvöld bættist Amin Cosic á listann sem nítjándi Íslendingurinn til að spila leik í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á síðasta korterið í 4-1 tapi Viking frá Stafangri gegn Aston Villa á Villa Park á Englandi.
Íslendingar í Meistaradeild Evrópu, eftir fjölda leikja. Eiður Smári Guðjohnsen, 45 leikir, 7 mörk Árni Gautur Arason, 21 leikur Eyjólfur Sverrisson, 11 leikir Kolbeinn Sigþórsson, 11 leikir Hákon Arnar Haraldsson, 9 leikir** Viktor Bjarki Daðason, 6 leikir, 3 mörk* Arnór Sigurðsson, 6 leikir, 2 mörk* Ragnar Sigurðsson, 6 leikir Rúrik Gíslason, 6 leikir Orri Steinn Óskarsson, 6 leikir* Kári Árnason, 5 leikir Birkir Bjarnason, 5 leikir Mikael Neville Anderson, 5 leikir* Ísak Bergmann Jóhannesson, 5 leikir* Alfreð Finnbogason, 3 leikir, 1 mark Sölvi Geir Ottesen, 3 leikir Hörður Björgvin Magnússon, 3 leikir* Helgi Sigurðsson, 1 leikur Amin Cosic, 1 leikur** *Leikmenn enn að spila **Leikmenn í keppninni í ár
Íslendingar erlendis Landslið karla í fótbolta Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira