Körfubolti

Sex hand­tekin vegna hrika­legs hneykslis í grískum körfu­bolta

Sindri Sverrisson skrifar
Vasiliki Tsaroucha hefur verið að dæma í EuroLeague og EuroCup. Vangelis Liolios er formaður gríska körfuboltasambandsins.
Vasiliki Tsaroucha hefur verið að dæma í EuroLeague og EuroCup. Vangelis Liolios er formaður gríska körfuboltasambandsins. Samsett/Getty

Umfangsmikið hneykslismál skekur nú grískan körfubolta og hafa fimm karlar og ein kona verið handtekin og ákærð. Í hópnum er sjálfur formaður gríska körfuboltasambandsins sem og fjórir körfuboltadómarar.

Fólkið hefur verið ákært fyrir sinn þátt í hagræðingu úrslita í grískum körfubolta og ólöglegri veðmálastarfsemi yfir langt tímabil.

Samkvæmt grískum miðlum nær málið til um það bil fimmtíu leikja á árunum 2016 til 2026, bæði í efstu deild Grikklands sem og í neðri deildum og jafnvel í leikjum yngri flokka og í skólakeppnum.

Í hópnum er meðal annars hin 44 ára gamla Vasiliki Tsaroucha sem handtekin var á alþjóðaflugvellinum í Aþenu í gær við komuna heim frá Tyrklandi þar sem hún dæmdi leik í EuroCup.

Tsaroucha hefur dæmt í Evrópukeppnum, þar á meðal EuroLeague, líkt og fyrrverandi dómararnir Ilias Koromilas, Petros Papapetrou og Tasos Piloidis sem verið hefur í dómaranefnd gríska körfuboltasambandsins. 

Allir hafa þeir verið handteknir og ákærðir sem og formaður sambandsins, Vangelis Liolios, og kaupsýslumaðurinn Giorgos Mavraganis.

Samkvæmt grískum miðlum hafa fundist yfir 930.000 evrur í reiðufé, eða yfir 125 milljónir króna, í húsnæði einhverra af dómurunum við rannsókn málsins.

Þá gerði lögreglan upptækar sex fartölvur, fjórtán síma, spjaldtölvur og minniskubba sem og körfuboltatreyjur og aðra safngripi tengda grískum körfuboltaliðum.

EuroLeague hefur gefið út að Tsaroucha, sú eina af dómurunum sem enn starfar við dómgæslu, sé komin í bann að minnsta kosti þar til að niðurstaða fæst í málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×