Handbolti

Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“

Sindri Sverrisson skrifar
Sérsveitin hefur sett sterkan svip á stórmót síðustu ára.
Sérsveitin hefur sett sterkan svip á stórmót síðustu ára. vísir / vilhelm

Sérsveitin, stuðningsmannasveit Íslands í handbolta, hefur neyðst til að hætta við að mæta á HM karla í janúar. Kostnaði og miðamálum er um að kenna.

Sérsveitin hefur sett afar sterkan svip á stórmót síðustu ára og hjálpað til við að skapa magnaða stemningu hjá þúsundum Íslendinga á mótunum. Hún verður á svæðinu þegar stelpurnar okkar spila á EM í Rúmeníu í byrjun desember en mun ekki mæta á HM karla í Þýskalandi í janúar.

„Bæði er erfitt að fá miða á alla leikina og svo er þetta dýrt. Síðasta mót stóð rosalega lengi yfir svo það kostaði ansi mikið,“ segir Sonja Steinarsdóttir, sérsveitarmeðlimur, sem fylgt hefur strákunum okkar á svo til öll mót frá og með HM 2019. Karlalandsliðið komst alla leið í úrslitahelgina á EM í byrjun þessa árs, spilaði bæði í Svíþjóð og Danmörku, og endaði í 4. sæti.

„Við höfum fengið hjálparhönd héðan og þaðan úr samfélaginu, frá fyrirtækjum og handknattleikssambandinu, en það er bara minna af því í boði núna. Það eru allir að halda að sér höndum,“ segir Sonja um ástæður þess að Sérsveitin missir af HM í janúar.

Eins og fyrr segir verður Sérsveitin þó á staðnum á EM kvenna í byrjun desember og segir Sonja að ellefu meðlimir muni ferðast til Rúmeníu.

„Það er töluvert dýrara að fara á karlamótin en kvennamótin. Miðaverðið er dýrara hjá körlunum og svo eru stelpurnar í ódýru landi núna,“ segir Sonja.

En hvernig er að hugsa til þess að þurfa að láta sér nægja að fylgjast með í sjónvarpinu í janúar?

„Það verður mjög erfitt að vera bara heima. Við erum mörg í Sérsveitinni sem höfum verið á nær öllum mótum frá og með HM 2019 þannig að þetta verður vissulega mjög sérstakt. Við höfum haldið fyrirpartý og komið stuðningsmönnum saman fyrir leiki, kynnst fullt af fólki og þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt. Við elskum öll handbolta og það er ótrúlega gaman að styðja landsliðin okkar en því miður verðum við ekki á þessu móti.

Þetta er svo mikið tilhlökkunarefni í janúar, þegar það er ekkert að gerast. Janúar hefur alltaf verið gleðisprengja og maður verður núna að búa hana til á annan hátt heima. Það er alltaf gaman að horfa á handbolta, hvort sem maður er á staðnum eða ekki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×