
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Næðum ekki hjarðónæmi án alvarlegra afleiðinga
Hjarðónæmi við kórónuveirunni næst ekki án alvarlegra afleiðinga og enginn vísindalegur rökstuðningur hefur verið settur fram fyrir hugmyndum um að aflétta sóttvarnaaðgerðum og treysta á náttúrulegt hjarðónæmi, að sögn íslenskra sérfræðinga.

Handtekinn grunaður um þjófnað og brot á sóttkví
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti tvívegis í gærkvöldi að hafa afskipti af fólki fyrir brot á sóttvarnarlögum.

Leikstjóri argar og gargar vegna opnunar líkamsræktarstöðva
Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri, segir þá aðgerð heilbrigðisráðherra að heimila líkamsræktarstöðvum að standa fyrir hóptímum splundra allri samstöðu.

Segir marga hafa verið í sóttkví við greiningu í gær sé áhöfnin tekin út fyrir mengið
Sóttvarnalæknir lagði til í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra að líkamsræktarstöðvar yrðu áfram lokaðar. Hann segir að margir hafi verið í sóttkví í gær séu skipverjarnir teknir út fyrir mengið.

Frændsystkin í einangrun sakna foreldra sinna: „Allt út af smiti á líkamsræktarstöð“
Móðir 7 ára stúlku sem smitaðist af Covid19 í gegn um líkamsræktarstöð segir ábyrgðarlaust af ráðherra að heimila opnun stöðvanna. Hún hefur ekki hitt dóttur sína í þrjár vikur.

Guðni: Mjög erfið ákvörðun og enginn áberandi góður kostur í stöðunni
Guðni Bergsson útskýrir afstöðu KSÍ að ætla að klára Íslandsmótin í knattspyrnu.

110 smit rakin beint til líkamsræktarstöðva og annarra íþrótta
Þar eru ekki meðtalin afleidd smit sem væntanlega hlaupa á hundruðum.

KSÍ ætlar að klára Íslandsmótið
Svo lengi sem takmarkanir á æfingum og keppni verði afnumdar eigi síðar en 3. nóvember ætlar KSÍ að klára Íslandsmótið í fótbolta.

UNICEF: Undirbýr stóru stundina þegar bóluefni verður tilbúið
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kaupir sprautur og annan nauðsynlegan búnað til að vera undirbúin þegar bóluefni gegn COCID-19 verður tilbúið.

Stjórnvöld sökuð um virðingarleysi gagnvart lýðræðinu
Það er virðingarleysi gagnvart leikreglum lýðræðisins og valdaskiptingu samfélagsins að þingið skuli ekki hafa komið í ríkari mæli að ákvörðunum stjórnvalda í faraldrinum að mati Reimars Péturssonar, lögmanns.

„Ekki borin virðing fyrir fjölmennustu fjöldahreyfingu landsins“
Formaður Körfuknattleikssambands Íslands segir að ekki sé borin virðing fyrir íþróttahreyfingunni í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Hann kallar eftir betra samtali við yfirvöld.

Þýskur maður beitti piparúða á hjólreiðafólk til að tryggja fjarlægðarmörk
Lögregla í Þýskalandi hafði í gær afskipti af 71 árs gömlum þýskum karlmanni sem hafði beitt piparúða á fólk sem hann taldi koma of nálægt sér og ekki virða boðuð fjarlægðarmörk.

Enn fjölgar smitum hjá félagi Alberts
Ekki er vitað hvort leikur AZ Alkmaar og Napoli í Evrópudeildinni á fimmtudaginn geti farið fram vegna kórónuveirusmita hjá hollenska liðinu.

Æfingar leyfðar en húsin lokuð
Hver mega æfa, hvað má æfa og hvar má æfa íþróttir á höfuðborgarsvæðinu í dag? Upplýsingar um það hafa verið misvísandi og staðan er óskýr.

Stútfullt í tíma í World Class en Hreyfing hættir við að opna
Forsvarsmenn líkamsræktarstöðvarinnar Hreyfingar hafa ákveðið að opna ekki fyrir hóptíma í stöð sinni. Fullt er í flesta hóptíma í World Class í dag.

Rakningarteymið skoðaði ekki hvað fólk keypti á barnum
Fjallað var um heimildir sóttvarnarlæknis til aðgangs að persónuupplýsingum við rakningu á kórónuveirusmitum á fundi allsherjar- og menntamálanefndar í morgun.

Nokkurra vikna slappleiki og 19 skipverjar með Covid-19
Nú um hádegisleytið tekur heilbrigðisstarfsfólk á Vestfjörðum á móti áhöfn frystiskipsins Júlíusar Geirmundssonar Ís 270 á Ísafirði en langflestir skipverjar eru smitaðir af Covid-19. Til greina kemur að opna tímabundið farsóttarhús á Vestfjörðum.

Segist ekki hafa látið undan þrýstingi með opnun líkamsræktarstöðva
Heilbrigðisráðherra segist ekki hafa látið undan þrýstingi með opnun líkamsræktarstöðva. Hún hefur farið yfir málið með sóttvarnalækni.

Flykkjast í golf og vellirnir enn grænir
Golfvellir á höfuðborgarsvæðinu opnuðu að nýju í dag eftir tíu daga lokun vegna tilmæla sóttvarnayfirvalda.

62 innanlandssmit og minnihluti í sóttkví
62 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Hlutfall þeirra sem voru í sóttkví við greiningu er umtalsvert lægra en verið hefur síðustu daga.

Smitsjúkdómalæknir setur spurningarmerki við að hundruð barna fari í sóttkví ef eitt barn greinist
Bryndís Sigurðardóttir ræddi kórónuveirufaraldurinn í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Benti hún meðal annars á að börn virðist smita minna sín á milli og að ekkert bendi til þess að þau börn sem smitast muni eiga við langtímavandamál að stríða vegna veirunnar.

Þórólfur sóttvarnalæknir og Gummi Gumm „alveg eins“
„Þeir eru bara alveg eins,“ segir Rúnar Sigtryggsson um Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og Guðmund Guðmundsson landsliðsþjálfara í handbolta.

Áhrif og viðbrögð heimsfaraldurs efst á baugi þróunarnefndar
Áhrif heimsfaraldursins á þróunarríki og viðbrögð alþjóðasamfélagsins voru efst á baugi þróunarnefndar Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ár.

Vilja opna tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða í Oddsson hótelinu
Sóltún Öldrunarþjónusta hefur boðið heilbrigðisráðuneytinu að reka Oddsson hótel sem tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða.

Veruleg aukning í verslun á milli ára
Veruleg aukning var í innlendri verslun hér á landi í septembermánuði á milli ára. Á sama tíma og verslun eykst minnkar bæði neysla á þjónustu og neysla erlendis.

Gera ráð fyrir verulegri viðspyrnu næsta haust
Í þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans fyrir árin 2020-2023 er gert ráð fyrir að landsframleiðslan dragist saman um 8,5 prósent á árinu 2020 vegna kórónuveirufaraldursins.

Strákarnir okkar fara á hótel og þurfa undanþágu til æfinga
Handknattleikssamband Íslands mun sækja um undanþágu til að „strákarnir okkar“ í íslenska landsliðinu nái að æfa saman fyrir komandi landsleiki í nóvember.

Hvernig erum við búin undir þessa kreppu?
Kórónukreppan mun renna sitt skeið. Óvíst er þó hvenær viðspyrnan hefst og í hvaða ástandi íslenska hagkerfið verður þegar þar að kemur. Ólíkt fyrri kreppum höfum við óvenju mikið svigrúm til að draga úr neikvæðum áhrifum hennar að þessu sinni.

Nýjar reglur um samkomutakmarkanir hafa tekið gildi
Tveggja metra nándarregla hefur nú gengið í gildi um allt land.

„Reglurnar þurfa að vera miklu skýrari“
Hrafnhildur Arnardóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Greiðunnar, segir mikinn skort á upplýsingagjöf til rekstraraðila sem hafa þurft að loka vegna samkomutakmarkana.