

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Logi kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar
Logi Einarsson var í dag kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Logi tekur við af Helgu Völu Helgadóttur sem hefur gegnt stöðunni frá því að kosið var til Alþingis í september á síðasta ári.

Bjarni verður áfram formaður
Bjarni Benediktsson verður áfram formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann vann formannskjörið gegn Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfisráðherra. Vann Bjarni kosningarnar með 59% greiddra atkvæða. Þórdís Kolbrún var kjörin varaformaður með 88 prósent atkvæða og Vilhjálmur Árnason er nýr ritari sjálfstæðisflokksins með 58 prósent atkvæða.

Mál föður ríkislögreglustjóra „óþægilegt“ og veki upp margar spurningar
Þingmaður Viðreisnar segir meinta ólöglega vopnasölu föður ríkislögreglustjóra og takmarkaða rannsókn lögreglu á henni mjög óþægilega. Efla þurfi eftirlit með störfum lögreglu svo traust almennings á henni rýrni ekki.

Læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili tóku þátt í brottvísuninni
Við brottflutning fimmtán hælisleitenda í vikunni voru, auk lögreglu, læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili. Leiguflugvél var fengin undir fólkið. Stjórnarráðið segir að lögum hafi verið fylgt út í ystu æsar.

Lögin ekki vandamálið heldur framkvæmdin
Þingmaður Pírata segir ekkert í Útlendingalögum skikka stjórnvöld til að framkvæma brottflutning með jafn mikilli hörku og gert var í vikunni. Það veki furðu að ríkisstjórnin ýti eftir nýrri útlendingalöggjöf þegar forsætisráðherra telur mikla sátt ríkja um núgildandi lög.

Ætlar að skipta Loga inn fyrir Helgu Völu
Kristrún Frostadóttir, nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar, stefnir að því að Logi Einarsson verði nýr þingflokksformaður flokksins. Þetta herma heimildir fréttastofu.

„Afætur“
Fólk ætti að hlusta á Magnús Ingvason, skólameistara FÁ, i viðtali á RÚV í gær. Hann talar um Írösku systurnar Yasameen og Zahraa sem stunduðu nám við skólann í eitt og hálft og stóðu sig afburða vel. Lögðu sig fram um að læra íslensku og voru góðir námsmenn, enda ekki sjálfgefið að það tækifæri fáist í Grikklandi, hvað þá Írak.

Ungliðahreyfing VG gagnrýnir þingmenn sína
Framkvæmdastjórn Ungra vinstri grænna fordæmir brottflutning hælisleitenda sem framkvæmdur var aðfaranótt fimmtudags. Stjórnin spyr hvort þingmönnum flokksins finnist vinnubrögð í málinu vera viðunandi.

Fjölmennt á Austurvelli
Nokkuð stór hópur hefur safnast saman til að mótmæla meðferð stjórnvalda á flóttafólki sem var sent úr landi með leiguflugvél til Grikklands í nótt.

Svandís ávarpar aðildarríkjafund í Egyptalandi
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra verður fulltrúi Íslands á tuttugasta og sjöunda aðildarríkjafundi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP27). Fundurinn stendur nú yfir í Sharm El Sheikh í Egyptalandi.

Þýðing nagladekkjagjalds?
Síðustu daga hefur umræða um svokallað „nagladekkjagjald“ litið dagsins ljós eftir að Umhverfisstofnun viðraði hugmyndir um slíkt gjald. Sú hugmynd gengur út á það að sveitarfélögum verði veitt heimild til að rukka ökumenn um gjald þegar þeir keyra á vegum þess á nagladekkjum.

Leggja fram frumvarp um sorgarleyfi eftir andlát maka
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um sorgarleyfi. Í frumvarpinu felst að einstaklingar sem misst hafa maka og eru foreldrar barna yngri en 18 ára fái heimild til að taka allt að sex mánaða leyfi frá störfum og greiðslur frá Vinnumálastofnun á meðan.

Telja hálfan milljarð vanta inn í rekstur Sjúkrahússins á Akureyri
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri telur að hálfan milljarð vanti inn í grunnrekstur stofnunarinnar svo hægt sé að halda áfram að veita sömu þjónustu og áður.

Íslandsbankaskýrslunni enn og aftur frestað
Afhendingu á skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka hefur verið frestað á ný. Til stóð að afhenda skýrsluna fyrir helgi en ekkert verður úr því.

Styðjum konur í Íran
Í síðustu viku var efnt til sérstakrar umræðu á Alþingi um stöðuna í Íran. Þar voru áhyggjur og hugmyndir viðraðar um stöðu kvenna í Íran, og tók undirrituð þátt í þeim umræðum. Fregnir af hrottalegum aðstæðum í Íran berast um allan heim.

Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokks styðja Bjarna
Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins styðja Bjarna Benediktsson í formannsslagnum sem framundan er í aðdraganda landsfundar flokksins um næstu helgi.

Samfylkingin skuldi þjóðinni að gefa Sjálfstæðisflokknum frí
Formaður þingflokks Samfylkingarinnar útilokar ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn á komandi árum. Gefa þurfi Sjálfstæðisflokknum frí. Samfylkingin sé hins vegar fjöldahreyfing og þetta aðeins hennar skoðun.

„Þá er mínum tíma í stjórnmálum bara lokið“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ef hann muni tapa væntanlegum formannaslag í Sjálfstæðisflokknum sé tíma hans í íslenskum stjórnmálum lokið. Bjarni segist hafa rætt við Guðlaug Þór Þórðarson, orkumálaráðherra, um það hvort sá síðarnefndi ætli að bjóða sig fram til embættis formanns Sjálfstæðisflokksins.

Velti vöngum yfir því af hverju stjórnarflokkarnir væru í ríkisstjórn
Ríkisbáknið vex og vex og ekki bara regluverkið heldur líka umfang ríkissjóðs. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í ræðu sinni á flokksráðsfundi sem haldinn var á Egilsstöðum í gær.

Bein útsending: Ræða Sigmundar Davíðs á flokksráðsfundi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, mun flytja ræðu sína á flokksráðsfundi Miðflokksins klukkan 13:10. Hægt verður að fylgjast með ræðunni í beinni útsendingu í spilaranum að neðan.

„Það er sóknarkraftur í jafnaðarmönnum, meðan höfuðandstæðingurinn logar stafna á milli“
Nýr formaður Samfylkingarinnar ætlar að endurreisa velferðakerfið. Varaformaðurinn segir á dagskrá að sækja um aðild að Evrópusambandinu, kanna þurfi þjóðarvilja. Algjör endurnýjun er á forystu Samfylkingarinnar. Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram á Grand hótel í dag.

Stefnt að því að skemmtiferðaskip tilkynni leiðina að næstu höfn
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, stefnir að því að leggja fram frumvarp á vorþingi sem felur í sér ákvæði um að skemmtiferðaskip þurfi að tilkynna um áætlaða leið að næstu höfn hér á landi.

Svandís dregur svar sitt um erfðablöndun eldislaxa og villtra til baka
Svandís Svavarsdóttir ráðherra hefur gefið út tilkynningu á vef matvælaráðuneytisins þar sem hún leiðréttir svar við fyrirspurn Brynju Dan Gunnarsdóttur þess efnis að ekki séu staðfest tilvik um erfðablöndun eldislaxa og villtra. Það sé rangt.

„Mjög íþyngjandi kostnaður“
Kostnaður við tannréttingar er íþyngjandi fyrir foreldra að mati stjórnarandstöðuþingmanns sem vill að þær verði gjaldfrjálsar. Umboðsmaður barna segir dæmi um að foreldrar hafi þurft að neita börnum sínum um tannréttingar vegna fjárhags fjölskyldunnar.

Svandís fari með fleipur um erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa
Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur, sérfræðingur um laxfiska, segir Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra hreinlega fara með rangt mál þegar hún heldur því fram að ekki liggi fyrir staðfest erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa.

Ekki hægt að ræða fundinn vegna almannahagsmuna
Dómsmálaráðherra segir almannahagsmuni koma í veg fyrir að hann geti upplýst um efni fundarins sem aðstoðarmaður hans sat um Samherjamálið með namibískri sendinefnd. Hann hafnar gagnrýni yfirmanns vinnuhóps OECD gegn mútum um að staða rannsóknarinnar sé nánast vandræðaleg fyrir Ísland.

Bjarni segir allt forystufólk bera ábyrgð á stöðu Sjálfstæðisflokksins
Guðlaugur Þór Þórðarson útilokar ekki að hann bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund flokksins í næstu viku enda væri flokkurinn í alvarlegri stöðu fylgislega séð. Bjarni Benediktsson segir fylgi flokksins á ábyrgð allra frambjóðenda sem hver um sig þurfi að horfa á útkomuna í sínu kjördæmi.

Betri framtíð fyrir börnin okkar
Á fyrstu árum barns er lagður grunnur að lífi þess til framtíðar. Margvíslegir þættir geta raskað tilveru barna og mikilvægt er að börn fái aðstoð sem fyrst á lífsleiðinni áður en vandi ágerist með skaðlegum og óafturkræfum afleiðingum.

Bein útsending: Sérstök umræða um Samherjamálið
Sérstök umræða um rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands fer fram á Alþingi klukkan ellefu í dag. Horfa má á umræðuna í beinni útsendingu hér að neðan.

Blaðamannafundurinn sem þurrkaði upp milljarða
Eftir lokun markaða á fimmtudag hélt fjármálaráðherra blaðamannafund þar sem hann kynnti að Íbúðalánasjóður færi að óbreyttu í þrot eftir 12 ár og að þá myndi reyna á ríkisábyrgð. Samkvæmt þessari sviðsmynd liggur líka fyrir að næstu 12 árin á sjóðurinn fyrir skuldbindingum sínum.