
Verkfall 2016

Kjaradeilur: Bændasamtökin krefjast aðgerða strax
Bændasamtökin sendu í dag bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem þau lýsa því ástandi er komið upp vegna vinnudeilu BHM og ríkisins.

Enginn ferskur kjúklingur í Bónus: „Útlitið er ekki gott“
Verkfall dýralækna er farið að hafa mikil áhrif á daglegt líf neytenda.

Nota verkfall sem vopn
„Sjálf hafnaði ég atvinnuboði fyrr á árinu á dagdeild blóð- og krabbameinslækninga einfaldlega vegna þess að ég hafði ekki efni á því að vinna á dagdeild,“ skrifar Helga María Guðmundsdóttir.

Verkföll sögð óumflýjanleg
33 sáttamál eru í vinnslu hjá ríkissáttasemjara. Lítið þokast í viðræðum stóru félaganna og verkföll vofa yfir. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, telur ríkisstjórnina frekar þvælast fyrir en að liðka fyrir samningaviðræðum.

BHM skoðar leiðir til að herða verkfallsaðgerðir
Fátt virðist geta afstýrt tveggja sólahringa verkfalli tíu þúsund félagsmanna Starfsgreinasambandins eftir helgina.

Formaður VR óttast lög á verkfallið
Formaður Samtaka atvinnulífsins segir að verkalýðshreyfingin geti knúið „hvaða vitleysu“ í gegn í krafti verkfalla sem hún kýs að gera.


Ábyrgðin alltaf Landspítalans
Forstjóri Landspítalans segir ábyrgð á öryggi sjúklinga sameiginlega.

Sjúkrahússýking á tveimur deildum
Aðeins ein skurðdeild á Landspítalanum er opin. Hinum tveimur hefur verið lokað vegna sjúkrahússýkingar af völdum ónæmra enterókokka. Hreinsun stendur yfir.

Hjúkrunarfræðingar munu greiða atkvæði um verkfall
Atkvæðagreiðslan nær til rúmlega 2100 hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu.

Stefnir í 100 þúsund manna verkfall innan fárra vikna
Ríkissáttasemjari segir stöðuna í kjaraviðræðunum grafalvarlega. Ef ekki semst á næstum vikum gætu um 100 þúsund manns farið í verkfall.

Verkalýðsforingi vill ekki leyfa bensínsölu í gegnum sjálfsala meðan verkfalli stendur
„Þetta ekki sjálfbært þegar enginn er til að aðstoða fólk.“

Hvalfjarðargöngin opin í verkfalli og forsvarsmenn Spalar sakaðir um lögbrot
„Það er dapurt til þess að vita að svo vandað fyrirtæki sem Spölur er skuli ekki virða þau mannréttindi sem fólgin eru í verkfallsréttinum.“

Tíminn að renna út: Tilkynna þarf um vott dómnefndar í dag
Verkfall BHM setti þátttöku Íslendinga í Eurovision í uppnám.

Viðræður komnar í strand
Rúmlega 10 þúsund manns hófu verkfall á landsbyggðinni á hádegi. Jákvæður fundur í morgun en viðræður komnar í strand.

Samningafundi SGS og SA lokið
Verkfall hefst á meðal félagsmanna Starfsgreinasambandsins á hádegi.

Krefjast þess að SAK stöðvi verkfallsbrot
Félag lífeindafræðinga hefur sent Sjúkrahúsinu á Akureyri bréf þar sem þess er krafist að verkfallsbrotum sé hætt. Hjúkrunarfræðingar gangi í störf lífeindafræðinga. "Verðum að tryggja öryggi sjúklinga,“ segir framkvæmdastjóri lækninga.

Vantar fimm hundruð stofnanarými fyrir aldraða á næstu fimm árum
Stofnkostnaður er 12-15 milljarðar og heilbrigðisráðherra segir öldrun þjóðarinnar mikla áskorun.

Allt að tvö þúsund fyrirtæki skaðast af verkfalli á morgun
Rúmlega tíu þúsund manns hjá hátt í 2.000 fyrirtækjum senda vinnuveitendum aðvörunarskot með því að leggja niður vinnu víðs vegar um land á morgun.

Atvinnustarfsemi lamast á landsbyggðinni á morgun
Tíu þúsund verkamenn og verkakonur leggja niður vinnu á hádegi á morgun. Hefur mikil áhrif á alla ferðaþjónustu, fiskvinnslu, kjötvinnslu og fleiri atvinnugreinar.

Ísland verður vandræðaland
Langvarandi verkföll geta gert út af við ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Hótel og gistiheimili eru mjög viðkvæm fyrir verkfalli SGS sem hefst í vikunni. Miklar áhyggjur af langtímaáhrifum á ferðaþjónustu í landinu.

Engar undanþágur vegna slátrunar svína
Engar undanþágur hafa verið veittar vegna slátrunar svína síðan verkfall dýralækna hófst fyrir rúmri viku. Svínabændur hafa þungar áhyggjur og segja ástandið grafalvarlegt, en treysta sér ekki til að slátra dýrunum sjálfir.

Þarf að loka hótelum ef til verkfalls kemur
Um sjötíu prósent starfsmanna Keahótela eru í Starfsgreinasambandinu.

Geta ekki tryggt að sjúklingar verði ekki fyrir skaða vegna verkfalls
Sjúklingar á Landspítalanum finna í sífellt meiri mæli fyrir áhrifum verkfallsaðgerða BHM.

VR og Flói undirbúa aðgerðir
Hnútur kjaraviðræðna í landinu harðnaði í gær þegar slitnaði upp úr viðræðum hjá VR og stéttarfélögum að baki Flóabandalaginu við SA. Næsta skref félaganna er að leita heimildar félagsmanna til verkfallsboðunar.

Kjúklingakjötið er geymt í frysti
Framleiðendur kjúklingakjöts hafa fengið undanþágu til slátrunar á meðan á verkfalli dýralækna stendur til þess að tryggja velferð fuglanna. Grisjunin í búunum fer þannig fram að fuglunum er slátrað með hefðbundnum hætti í sláturhúsi, en afurðirnar settar í frysti í stað þess að fara á markað.

VR undirbýr verkfallsaðgerðir
„Við sjáum engan annan kost,“ segir formaður VR.

Sáttir við undanþágu en vilja lausn kjaradeilu
Bændasamtök Íslands segja að nauðsynlegt að veita dýralæknum undanþágu vegna svínaræktunar.

VR sleit einnig kjaraviðræðum
Allt stefnir í verkfall um 35 þúsund félagsmanna VR og Landssambands íslenskra verslunarmanna í lok maí.

Flóabandalagið búið að slíta kjaraviðræðum við SA
Formaður Eflingar segir allt stefna í verkfall hjá sínu fólki en um 21 þúsund manns tilheyra Flóabandalaginu.