Bandaríkin

Glee-stjörnu saknað eftir að sonur hennar fannst einn á báti
Söng- og leikkonan Naya Rivera er talin af eftir að fjögurra ára sonur hennar fannst einn á báti úti á stöðuvatninu Lake Piru í suðurhluta Kaliforníu.

„Þú munt drepa mig, maður“
Bandaríski fyrrverandi lögreglumaðurinn Derek Chauvin, sem varð valdur að dauða George Floyd í Minneapolis í Minnesota í Bandaríkjunum í lok maí á þessu ári, sagði Floyd ítrekað að hætta að tala á meðan hann hélt hné sínu að hálsi hans í nærri átta mínútur.

Sóttvarnastofnun endurskoðar tilmæli eftir óánægju Trump
Leiðbeiningar sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna varðandi opnun skóla í kórónuveirufaraldrinum verða endurskoðaðar eftir að Donald Trump forseti gagnrýndi þær fyrir að vera of strangar í dag. Forsetinn hótaði jafnframt að stöðva fjárveitingar til skóla sem vilja ekki opna að fullu í haust.

Kveikt var í styttu af Melania Trump
Kveikt var í viðarskúlptúr af Melaniu Trump forsetafrú Bandaríkjanna nærri Sevnica, heimabæ hennar í Slóveníu aðfaranótt 4. júlí, þjóðhátíðardag Bandaríkjanna.

Vitni úr þingrannsókn á Trump hættir í hernum vegna kúgunar og hefndaraðgerða
Undirofursti í Bandaríkjaher sem bar vitni í rannsókn Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum Donalds Trump forseta í fyrra tilkynnti að hann ætlaði að hætta í hernum í dag. Vísaði lögmaður hans til „ógnana“ og „hefndaraðgerða“ af hálfu forsetans.

Klipptu Trump út af mynd með Epstein og Maxwell
Bandaríska fréttastofan Fox News hefur beðist afsökunar á að hafa klippt Donald Trump Bandaríkjaforseta út af mynd sem notuð var í umfjöllun um barnaníðinginn Jeffrey Epstein og samstarfskonu hans og vinkonu, Ghislaine Maxwell.

Deutsche Bank sektaður vegna tengsla við Epstein
Deutsche Bank, einn stærsti banki heims, hefur verið sektaður um 150 milljónir Bandaríkjadala, eða um 21 milljarð íslenskra króna fyrir að hafa ekki haft nægilegt eftirlit með viðskiptum barnaníðingsins Jeffrey Epstein sem fóru fram í gegn um bankann.

Frænka Trump segir lygar vera lífsstíl hans
Bróðurdóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta fullyrðir að fyrir honum séu lygar lífsstíll og að andlegir sjúkleikar séu ógn við heiminn á tíma faraldurs og efnahagsþrenginga.

Bandaríkin tilkynna WHO um úrsögn sína
Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur tilkynnt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) formlega um úrsögn sína.

Orlando Bloom leit við í sendiráði Bandaríkjanna við Laufásveg
Sendiherra Bandaríkjanna hér á landi Jeffrey Ross Gunter fékk skemmtilega heimsókn í sendiráðið við Laufásveg 21 í dag.

Fá ekki að spila eftir að tíu leikmenn greindust með kórónuveiruna
FC Dallas verður ekki með í MLS-deildinni þetta tímabilið eftir að tíu leikmenn og einn meðlimur þjálfarateymisins greindust með kórónuveirusmit.

Bandaríkin íhuga að banna TikTok
Stjórnvöld í Bandaríkjunum íhuga nú að banna smáforritið TikTok í landinu, auk annarra kínverskra smáforrita.

Segir skilið við sápuna eftir 37 ár á skjánum
Bandaríska leikkonan Kristian Alfonso hefur tilkynnt að hún sé nú hætt að leika í sápuóperunni Days of Our Lives eftir 37 ár á skjánum.

Fleiri saka Epstein um misnotkun í kjölfar handtöku Maxwell
Fleiri hafa nú stigið fram og ásakað barnaníðinginn Jeffrey Epstein um að hafa brotið á sér. Ásakanirnar líta dagsins ljós í kjölfar þess að Ghislaine Maxwell, sem var nátengd Epstein áður en hann fyrirfór sér í fangaklefa sínum í ágúst í fyrra, var handtekin.

Ákærð fyrir að reyna að siga lögreglunni á svartan mann
Hvít kona sem reyndi að siga lögreglunni á svartan mann sem bað hana um að setja hundinn sinn í ól í New York í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir athæfi sitt. Í myndbandi af atvikinu hótar hún manninum því að hringja á lögregluna og segja að svartur maður sé að ógna lífi hennar.

Mögulegt varaforsetaefni Demókrata smituð af veirunni
Tilfelli kórónuveiru halda áfram að aukast í Bandaríkjunum og nú hefur borgarstjóri Atlanta borgar, sem nefnd hefur verið sem mögulegt varaforsetaefni Demókrata, smitast af veirunni.

Kántrí-goðsögnin Charlie Daniels látinn
Kántrí-tónlistarmaðurinn Charlie Daniels, sem þekktastur er fyrir lag sitt The Devil Went Down to Georgia, er látinn 83 ára að aldri.

Umsjónarmaður barnaníðsvefs ekki framseldur til Bandaríkjanna
Son Jong-woo, maðurinn á bakvið barnaníðsvefinn Welcome to Video, verður ekki framseldur til Bandaríkjanna.

Broadway-stjarna lést eftir baráttu við Covid-19
Broadway-leikarinn Nick Cordero lést í gær af völdum Covid-19. Hann var 41 árs.

Kórónuveirutilfellum á heimsvísu aldrei fjölgað meira
Tilfellum kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 sjúkdómnum hefur aldrei fjölgað meira á heimsvísu en síðasta sólarhringinn, samkvæmt upplýsingum frá WHO.

Öfgahægrimenn létu glepjast af gabbi á þjóðhátíðardaginn
Hópar vopnaðra öfgahægrimanna söfnuðust saman á söguslóðum við Gettysburg í Bandaríkjunum á þjóðhátíðardaginn í gær vegna orðróma um að svonefndir andfasistar ætluðu sér að brenna bandaríska fána þar. Þar gripu þeir þó í tómt því fánabrennan virðist hafa verið samfélagsmiðlagabb.

Mögulegt framboð Kanye ætti strax undir högg að sækja
Ólíklegt er að tónlistarmanninum Kanye West tækist að komast á kjörseðilinn í Bandaríkjunum í haust jafnvel þó að honum sé alvara með því að bjóða sig fram til forseta. Framboðsfrestur fyrir óháða frambjóðendur er þegar liðinn í nokkrum ríkjum.

Mótmælandi sem ekið var á í Seattle látinn
Kona á þrítugsaldri sem stóð í hópi mótmælenda þegar ökumaður ók bíl sínum á fólkið í Seattle í Bandaríkjunum er látin af sárum sínum. Annar mótmælandi liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahúss. Ökumaðurinn er í haldi lögreglunnar.

Trump heldur því fram að 99 prósent kórónuveirusmita séu „algjörlega skaðlaus“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt því fram að 99 prósent kórónuveirusmita í Bandaríkjunum væru skaðlaus, í ávarpi þar sem hann fagnaði þjóðhátíðaradegi Bandaríkjanna í gær, 4. júlí.

Kanye West segist ætla að bjóða sig fram til forseta
Svo virðist sem að bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West hafi í hyggju að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tísti frá West.

Rasískir undirtónar Trump skjóta repúblikönum skelk í bringu
Frammámenn í Repúblikanaflokknum er sagðir óttast um afdrif flokksins í kosningum í haust vegna þess hversu hart Donald Trump forseti gengur nú fram í að ala á kynþáttaóróa í landinu.

Engin áform um að ræða við Washington
Norður-kóresk yfirvöld hafa áréttað að engin áform sé uppi um að hefja viðræður um kjarnorkuvopnamál við yfirvöld í Washington. Ekki nema að Bandaríkjastjórn láti af því sem kallað eru fjandsamlegum stefnum í málefnum Norður-Kóreu.

Vinkona Maxwell segir að Ghislaine muni ekkert gefa upp um Andrés
Andrés Bretaprins þarf engar áhyggjur að hafa af Ghislaine Maxwell hafi vinkona hennar, fjárfestirinn fyrrverandi Laura Goldman, rétt fyrir sér en hún segir að Maxwell myndi aldrei segja yfirvöldum neitt um samband prinsins við Jeffrey Epstein.

„Endalaus stórskotahríð haturs“ í „vinalegasta heimabæ Flórída“
Ímynd The Villages, samfélagi eldri borgara norðvestur af Flórída í Bandaríkjunum, sem „vinalegasti heimabær Flórída“ er brátt að hverfa eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, endurtísti tísti þar sem sjá mátti eldri stuðningsmann hans kalla fullum hálsi „hvít vald“ (e. White Power) við heimili eldri borgara í The Villages.

Tengdadóttir Bandaríkjaforseta smituð af kórónuveirunni
Fyrrverandi fjölmiðlakonan Kimberly Guilfoyle hefur greinst smituð af kórónuveirunni en hún er kærasta Donalds Trump yngri, elsta sonar Bandaríkjaforseta. Guilfoyle hefur starfað innan forsetaframboðs Trump fyrir kosningarnar sem haldnar verða í nóvember.