Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Bjarki Sigurðsson skrifar 12. janúar 2026 21:58 Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir sérstakt að gæsluvarðhaldskröfunni sé hafnað, þó það gerist reglulega að slíkar kröfur séu ekki samþykktar. Vísir/Lýður Valberg Karlmaður sem er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára dreng neitar sök, en ber samt við minnisleysi. Afbrotafræðingur segir einkennilegt að gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum sé hafnað.
Helgi Bjartur Þorvarðarson var um miðjan september handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Hann hefur nú verið ákærður fyrir að brjótast inn til fyrrverandi samstarfskonu sinnar og brjóta þar á tíu ára syni hennar. Það vakti athygli þegar lögregla krafðist ekki gæsluvarðhalds yfir honum eftir handtökuna en þegar hann var ákærður á föstudag krafðist héraðssaksóknari þess að hann yrði hnepptur í varðhald. Dómari varð ekki við þeirri beiðni. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar. Ótti sem fylgir Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir ákvörðun dómara koma á óvart, en hún bendi til þess að ekki allar upplýsingar um málið hafi ratað í fjölmiðla. Ýmis skilyrði þurfi að uppfylla, til að mynda þurfi að liggja fyrir rökstuddur grunur um sekt, rannsóknarhagsmunir vera í húfi og hætta stafi af manninum. „Miðað við frásagnir foreldra í fjölmiðlum veltir maður fyrir sér hvort það hafi ekki verið metið að það er ákveðin hætta, eða ótti, sem fylgir því fyrir þennan þolanda að maðurinn sé laus og í sama nágrenni,“ segir Margrét. Skipti ekki máli hvort hann sé drukkinn eða ekki Helgi Bjartur sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins í morgun. Þar segist hann muna lítið eftir kvöldinu. Hann hafi fallið á áfengisbindindi þetta kvöld. Þótt hann muni ekkert séu ásakanirnar óskiljanlegar. Þær hafi sett líf hans og fjölskyldu hans í rúst. Hann sé ekki sekur um kynferðisbrot gegn drengnum. Hann óskar eftir því að málsmeðferð fái sinn lögbundna farveg. Þetta sé martröð sem hann muni bera með sér alla ævi. „Það svo sem kemur ekki mikið fram í yfirlýsingunni, annað en að hann hafi verið mjög drukkinn. En fólk er ábyrgt fyrir sínum gjörðum, sama hvort það sé undir áhrifum áfengis eða ekki,“ segir Margrét. Foreldrar drengsins segjast í samtali við Heimildina afar ósátt með Helga Bjart. Hann ætti að axla ábyrgð í stað þess að halda því fram að drengurinn sé að ljúga. Þau vilji að hann verði úrskurðaður í gæsluvarðhald, en á meðan hann gangi laus geti þau ekki náð bata og lifað eðlilegu lífi eftir hræðilegt áfall.
Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Hafnarfjörður Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira