Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. október 2026 15:27 Sólveig Anna segir Höllu Gunnarsdóttur og félaga í VR hafa komist upp með ýmislegt. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambandsins í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka og láglaunafólks. Því muni fylgja alvarlegar afleiðingar.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í færslu Sólveigar Önnu á samfélagsmiðlinum Facebook. Líkt og fram hefur komið verður nýr forseti ASÍ kjörinn á þingi sambandsins í næstu viku en það mun fara fram á Hilton Reykjavík 14. til 16. október. Sólveig segir sig og félaga sína í Eflingu hafa frá 2018 lagt áherslu á að koma heiðarlega fram í kjaraviðræðum, þau hafi aldrei spilað leiki eða hótað því sem ekki væri hægt að standa við. Sólveig segir atburði síðustu daga og vikna hafa afhjúpað ýmislegt, meðal annars hverjum sé umbunað og fyrir hvað. Hún segir meðal annars að forysta Eflingar hafi skoðað efnahagslega stöðu þjóðfélagsins, sett sér skýr markmið og ekki vikið frá því að ná árangri. „Sama er ekki hægt að segja um forystu VR og fagfélaganna. Þar hefur ekki farið fyrir samkvæmni eða stefnufestu, því fer fjarri. Kröfur um launahækkanir og fleiri orlofsdaga voru settar fram og þeim haldið á lofti með herskáum hætti og stöðugum yfirlýsingum um að samningum yrði sagt upp yrðu SA ekki við þeim. Þegar enginn árangur náðist þar breyttist tóninn; „tillögur sem kosta mikið, tillögur sem kosta lítið, tillögur sem kosta ekkert“; svohljóðandi var kröfugerð stærsta stéttarfélags landsins og fylgitungla nokkrum dögum fyrir mögulega uppsögn; ég hef ekki mikla samúð með SA en það getur ekki verið auðvelt að eiga í samskiptum við mjög baráttu-glaðan hóp formanna sem aðspurðir um helstu kröfur svara eins og þeir komi frá annarri og hingað til óþekktri plánetu.“ VR hafi samt verið verðlaunað Sólveig segir að síðasta útspil valdamesta fólks félaga Alþýðusambands Íslands hafi verið að keyra um bæinn með skottið fullt af kjarasamningsuppsögnum, það næst síðasta að hóta ófriði á opinberum vinnumarkaði. Að lokum hafi Halla Gunnarsdóttir formaður VR skrifað undir samning við SA eina mínútu í dómsdag. „En þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir að þeim sem fylgdust með í sífellt meiri forundran hefði á endanum aðeins verið boðið upp á all sizzle and no steak, fengu formaður VR og forysta fagfélaganna samt verðlaun, bæði frá SA og frá stjórnvöldum. Þau fengu að láta sem samninga-snilligáfa þeirra hefði á síðustu stundu knúið fram frábæra viðbót við aðgerða-yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar – forsætisráðherra var tilbúin til að liðsinna formanni VR við að klifra niður úr klifurgrindinni sem hún var föst í með því að halda því fram eins og ekkert væri á blaðamannafundi sem haldinn var til að tilkynna um frið á vinnumarkaði, að sérstakur vaxtabótaauki hefði verið skrifaður upp á síðustu stundu til að friða formanninn,“ skrifar Sólveig. „Forsætisráðherra veit jafnvel og ég og Vilhjálmur Birgisson og um tuttugu aðrir, þeirra á meðal fyrrnefndur formaður að þessi liður var skrifaður inn í lokayfirlýsingu stjórnvalda, sem send var okkur kl. 21.09 af ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins, í tölvupósti merktum ÁRÍÐANDI, þar sem fram kom að við yfirlýsinguna hefðu bæst við „töluliðir 12 og 13“ - þeir fjalla um fyrrnefndan vaxtabótaauka og svo um frumvarp vegna tómlætis, sem að Villi hefur barist fyrir árum saman. Báðir þessir liðir bættust við í samtölum okkar Villa við forsætisráðherra og fjármálaráðherra fyrr þann dag.“ Halla komist upp með ýmislegt Sólveig segir Höllu komast upp með ýmislegt. Hún komist upp með að hækka eigin laun um mörg hundruð þúsund krónur, hún komist upp með að beita sér gegn því að einhver árangur náist í að bæta starfsaðstæður verkakvenna sem vinni á leikskólum borgarinnar, félagsmanna Eflingar. „Hún kemst upp með að hóta ófriði á opinberum vinnumarkaði án þess að formaður BSRB eða formaður BHM segi aukatekið orð til að leiðrétta vitleysuna. Hún kemst upp með að tala um embætti varaforseta ASÍ eins og hvert annað djók sem engu máli skipti. Og hún ætlar að reyna að komast upp með að fá þing ASÍ til að samþykkja í næstu viku að varaforsetum ASÍ verði fækkað niður í einn, til að hún geti verið án afskipta frá fulltrúum verkafólks þegar hennar frambjóðandi er orðinn forseti ASÍ og hún eini varaforsetinn. Hún kemst upp með að draga SA og stjórnvöld á asnaeyrunum án afleiðinga; SA og stjórnvöld ákveða að verðlauna hana fyrir það, í stað þess að halda trúnað við forystu verka og láglaunafólks.“ „Og hún kemst upp með að hafa án vottar af skynsemi hótað átökum og verkföllum, þegar að SA og öll íslensk valdastétt er aðeins að bíða eftir réttu tækifæri til að láta láta kné fylgja kviði í orustunni um vinnumarkaðslöggjöfina, auknar heimildir ríkissáttasemjara og skerðingu á verkfallsréttinum. Engum andmælum er hreyft við ruglinu, allir láta sem að keisarinn sé fullklæddur. Það er staðan – sama hvort fólk getur viðurkennt hana eða ekki.“ Segir því munu fylgja alvarlegar afleiðingar Sólveig Anna segir ljóst að félagsfólk Eflingar, stjórn, trúnaðarráð og formaður geti ekki treyst því að Samtök atvinnulífsins eða stjórnvöld komi heiðarlega fram eða að ábyrgð og heilindi Eflingar séu metin þeim til tekna. „Við höfum hafnað klækjum og prettum hefðbundinna stjórnmála og fyrir það hefur okkur verið launað með klækjum og prettum. Því munum við aldrei gleyma – af því verða alvarlegar afleiðingar. Við höldum áfram að byggja upp félagið okkar, öflugustu baráttusamtök verkafólks á Íslandi. Við höldum áfram að vinna með og fyrir ræstingafólk, starfsfólk leikskóla, hjúkrunarheimila, veitingastaða. Við höldum áfram að standa með Wolt sendlum í baráttu þeirra fyrir réttlæti. Við höldum áfram að skoða, greina og skilja þær aðstæður sem okkur er boðið upp á og hvaða taktík og strategíu við ætlum að beita í baráttu okkar fyrir réttlæti,“ skrifar Sólveig Anna. „Við mætum til leiks á þing ASÍ í næstu viku og munum þar fylgjast með tilraunum formanns VR í að sölsa undir sig sambandið – sú sýning verður enn einn lærdómurinn fyrir okkur um þá raunverulegu andspyrnu og mótspyrnu sem þau sem berjast fyrir hagsmunum verkafólks mæta ávallt.“
Kjaramál ASÍ Vinnumarkaður Stéttarfélög Tengdar fréttir „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segist þaulvön því að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, opinberi sterkar skoðanir sínar á störfum VR og henni sem persónu. Hún segir laun forystufólks stéttarfélaga ekki leyndarmál og bendir á að VR birti laun formanns í ársskýrslu, sem Efling geri ekki. Þá segist Halla vera á lægri launum en forveri hennar. 21. apríl 2026 15:50 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira
„Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segist þaulvön því að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, opinberi sterkar skoðanir sínar á störfum VR og henni sem persónu. Hún segir laun forystufólks stéttarfélaga ekki leyndarmál og bendir á að VR birti laun formanns í ársskýrslu, sem Efling geri ekki. Þá segist Halla vera á lægri launum en forveri hennar. 21. apríl 2026 15:50