Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Agnar Már Másson skrifar 12. janúar 2026 22:01 Slökkvilðsmenn réðu nðurlögum eldsins. Ekki er víst hvaðan eldurinn kviknaði. Vísir/Lýður Valberg Ekki er ljóst hvað olli þeim mikla eldi sem braust út í skemmu í Gufunesi í dag. Fyrir rúmlega tveimur árum höfðu þáverandi leigjendur miklar áhyggjur af aðbúnaði í húsnæðinu, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, og lýstu rafmagninu í húsinu sem „slysagildru“ á sínum tíma.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna logandi vöruskemmu í Gufunesi um klukkan 17 í dag. Mikið eldhaf blasti við á vettvangi en slökkvilið hafði ráðið niðurlögum eldsins að mestu um klukkan 20. Framleiðslufyrirtækið TrueNorth leigir húsið sem geymslu og fjöldi muna skemmdist í eldinum, að sögn stjórnarformanns félagsins. Ekki liggur fyrir hvað olli eldinum en í febrúar 2024 birti Framfarafélag Gufuness færslu á Facebook-síðu sinni vegna þess að Reykjavíkurborg hafði auglýst skemmuna til leigu. Skemman hefur meðal annars verið kölluð Skemma 7. Skemman í Gufunesi í sólsetrinu á sunnudag, 11. janúar 2025. Sólarhring síðar stóð hún í ljósum logum.Vísir/Viktor Framfarafélagið beindi spurningum til borgaryfirvalda um hvort búið væri að gera úrbætur á því sem ábótavant hafði verið meðan skapandi starf var í húsinu. Listahópurinn Fúsk hafði nefnilega um hríð fengið gjaldfrjáls afnot af skemmunni, sem var í eiginlegri niðurníslu, en borgin ákvað svo að setja skemmuna á leigu árið 2023. Fúsk-hópurinn ákvað í fyrstu að leigja skemmuna sjálfur til sex mánaða en forsvarmenn hópsins voru ósáttir við að Reykjavíkurborg hefði ekkert gert til þess að bæta aðstöðuna, þrátt fyrir að þau þyrftu nú að greiða nú fyrir afnot af húsnæðinu. „Við erum að leigja ósamþykkta eign, höfum enga klósettaðstöðu, ekki aðgang að vatni, hvorki heitu né köldu og rafmagnið er slysagildra,“ er haft eftir lýsingum Fúskara í fyrrnefndu opnu bréfi Framfarafélags Gufuness. „Undanfarið hefur svo allt verið á floti og við þurft að hringja út dælubíla.” Ekki liggur fyrir hvort einhverjar úrbætur hafi verið gerðar á húsinu síðan þá. Framfarafélag Gufuness velti því þá fyrir sér í opnu bréfi sínu hvort búið væri að leggja skólplagnir svo hægt væri að setja upp klósettaðstöðu og hvort nýtt rafmagn hefði verið lagt, hvort vatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn væru til staðar og hvort húsnæðið væri enn ósamþykkt. „Til þess að hægt sé að byggja upp skapandi starfsemi á svæðinu er nauðsynlegt að borgin sinni viðhaldi á húsnæðinu sem hún leigir út, hér eins og annars staðar,“ sagði í Facebook-færslu framfarafélagsins.
Slökkvilið Reykjavík Bruni í skemmu í Gufunesi Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira