Verðlag
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 31 ›
Aukin skattheimta og „sanngjarnari“ veiðigjöld „Við erum að undirbúa fjármálaáætlun. Það er alveg ljóst að við munum þurfa að horfa til þess í fjármálaáætlun að stuðla að því að slá verðbólguna niður, og það gerist auðvitað fyrst og fremst með því að annars vegar að auka tekjuöflun og hins vegar með því að slá niður útgjöld,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um nýja fjármálaáætlun sem kynnt verður í vikunni. Innlent 26.3.2023 16:49
Paprika orðin tímabundin lúxusvara Fordæmalaust verð á papriku, sem hefur fjórfaldast undanfarnar vikur, hefur valdið neytendum sérstöku hugarangri. Forstjóri heildsölunnar Innnes segist aldrei hafa séð aðra eins hækkun - en nú horfi til betri vegar í paprikumálum. Neytendur 25.3.2023 09:01
Ríkið gæti þurft að koma heimilunum til aðstoðar Fjármálaráðherra segir til greina koma að ríkisstjórnin grípi til aðgerða vegna aukinnar vaxtabyrði heimilanna. Skilaboð Seðlabankans í gær hafi verið skýr varðandi baráttuna við verðbólgu en einnig þurfi að gæta þess að hækka vexti ekki of mikið þannig að það skapist samdráttur og kreppa í samfélaginu. Innlent 23.3.2023 19:40
Arion banki fyrstur til að hækka vexti Arion banki er fyrsti bankinn til að hækka vexti í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að hækka stýrivexti um heilt prósentustig. Hækkunin nær einungis til einnar tegundar lána en breytingar á öðrum vöxtum verða tilkynntar á næstu dögum. Viðskipti innlent 23.3.2023 17:49
Bjarni segir skatta á launafólk ekki verða hækkaða Fjármálaráðherra segir að engar breytingar verði gerðar á sköttum sem bitni á launafólki í væntanlegri fjármálaáætlun. Hins vegar verði dregið úr ýmsum ívilnunum sem rafbílar hafi notið og gjaldtöku á umferð og vegi almennt breytt. Innlent 23.3.2023 14:00
Bankanum liggur á að „sýna fram á árangur“ fyrir næstu kjarasamninga Ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka vexti um eina prósentu, umfram væntingar markaðsaðila, virðist hafa grundvallast á þeirri sýn nefndarinnar að það væri betra að „rífa plásturinn af“ með stóru skrefi áður en aðrir seðlabankar skipta hugsanlega um gír vegna óróa á erlendum mörkuðum, að sögn aðalhagfræðings Arion banka. Hún gagnrýnir seðlabankastjóra fyrir rýr svör um framvirka leiðsögn og segir sumpart misvísandi skilaboð hans og varaseðlabankastjóra mögulega til marks um „togstreitu“ innan peningastefnunefndar. Innherji 23.3.2023 11:29
Verðum í „varnarbaráttu“ meðan við erum að ná niður verðbólgunni Engin „sársaukalaus leið“ er í boði til að vinna bug á verðbólgunni, sem útlit er fyrir að verði meiri á næstunni en áður var spáð, og á meðan því stendur þarf fólk að horfast í augu við þá staðreynd að framundan er „varnarbarátta,“ að sögn seðlabankastjóra. Þrátt fyrir að vöxturinn í hagkerfinu sé búinn að vera „heilbrigður“ að hans mati, sem endurspeglast í lítilli skuldsetningu einkageirans, þá sé núna nauðsynlegt að reyna að hemja hann með því að gera fjármagnskostnað fyrir heimili og fyrirtæki dýrari. Innherji 23.3.2023 07:01
Vill skattkerfisbreytingu og húsnæðisstuðning til að spyrna við stýrivaxtahækkun Forseti Alþýðusambandsins segir stjórnvöld þurfa að grípa inn í vegna stýrivaxtahækkana og koma almenningi til hjálpar. Dæmi eru um að afborganir af húsnæðislánum hafi hækkað um hundrað þúsund krónur á mánuði undanfarið árið. Neytendur 22.3.2023 20:01
Langvarandi verðbólga eykur líkur á kreppu Þrálát verðbólga eykur hættu á kreppu að sögn seðlabankastjóra. Mikill hiti sé í hagkerfinu og nauðsynlegt að hægja meðal annars á fjárfestingum fyrirtækja. Vextir verði hækkaðir þar til verðbólga minnki. Innlent 22.3.2023 19:40
„Er ekki kominn tími á að ríkisstjórnin skili lyklunum að Stjórnarráðinu?“ Tólfta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð hefur vakið hörð viðbrögð víða í samfélaginu en þingmenn vöktu margir hverjir athygli á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina kjarklausa og verkstola og þingflokksformaður Viðreisnar segir þau ekki geta dvalið lengur í Hvergilandi. Innlent 22.3.2023 16:59
Seðlabankinn skorar á fyrirtæki að hægja á sér Seðlabankastjóri segir hagkerfið vera sjóðheitt og Seðlabankinn muni halda áfram að hækka vexti þar til hægir á hagkerfinu. Hann beinir því sérstaklega til fyrirtækja að hægja á fjárfestingu sinni. Meginvextir bankans voru hækkaðir um eina prósentu í morgun. Innlent 22.3.2023 11:59
Seðlabankinn slátri ávinningi kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins og forseti Alþýðusambands Íslands og eru báðir ósáttir með enn eina vaxtahækkunina sem tilkynnt var um í dag. Þeir segja báðir að afleiðingar vaxtahækkana bitni helst á því fólki sem má síst við þeim. Innlent 22.3.2023 11:23
Seðlabankastjóri: Fókusinn farinn af heimilum yfir á fyrirtæki Fasteignamarkaðurinn leggur ekki jafn mikið til verðbólgu og hann gerði. Verðbólga er nú á afar breiðum grunni, til að mynda vegna aukins kostnaðar vegna nýafstaðna kjarasamninga. „Fókusinn er að fara af heimilum yfir á fyrirtæki,“ sagði seðlabankastjóri. Aðstoðarseðlabankastjóri sagði að innlend eftirspurn væri „miklu sterkari en við gerðum ráð fyrir“ meðal annars vegna fjárfestingu atvinnuvega. Innherji 22.3.2023 10:55
„Getum ekki beðið eftir neinum öðrum“ Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir augljóst að peningastefnunefnd Seðlabankans hafi ákveðið að stíga stórt skref til þess að ná tökum á verðbólgunni með því að hækka stýrivexti um eitt prósentustig. Hann segir hjálp við það verkefni úr öðrum áttum vel þegna en Seðlabankinn geti ekki beðið eftir að aðrir grípi til aðgerða. Viðskipti innlent 22.3.2023 10:42
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður hækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um eitt prósentustig. Viðskipti innlent 22.3.2023 09:01
Hækkar vexti um eina prósentu og útlit fyrir meiri verðbólgu en áður var spáð Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur hækkað meginvexti bankans um eina prósentu – úr 6,5 prósentum í 7,5 prósent – samhliða auknum verðbólguþrýstingi og segir að við þessar aðstæður sé „mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags.“ Vaxtahækkunin, sem er sú tólfta í röð, var heldur meiri en flestir greinendur og markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um. Innherji 22.3.2023 08:52
Íbúðaverð hækkaði eftir þrjá mánuði af lækkunum Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði í febrúar um 0,3 prósent, en síðastliðna þrjá mánuði hafði vísitalan lækkað um 0,9 prósent. Þar skiptir mestu verðhækkun á fjölbýlishúsnæði. Innlent 21.3.2023 18:49
Fjármálaráðherra þurfi að gera meira: „Ásgeir er með þriðju vaktina“ Þingmaður Viðreisnar segir seðlabankastjóra sinna þriðju vaktinni í sambandi með fjármálaráðherra, sé litið til verkskiptingar á heimilinu. Ráðherrann þurfi að gera meira en að treysta bara á Seðlabankann og sýna aðhald í ríkisfjármálum. Viðskiptaráðherra segir alla í ríkisstjórn sammála um að ná þurfi verðbólgu, og ekki síður verðbólguvæntingum, niður sem fyrst þar sem ýmsar aðgerðir koma til greina. Viðskipti innlent 19.3.2023 13:04
Spá því að verðbólga hjaðni á milli mánaða Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans spá því að ársverðbólga hjaðni lítillega þegar næstu verðbólgutölur verða gefnar út. Sérfræðingar beggja deilda sjá fyrir sér að verðbólga lækki hægt næstu mánuði. Viðskipti innlent 16.3.2023 12:39
Seðlabankinn slær varnagla vegna aukinnar áhættu Seðlabankinn gerði viðskiptabönkunum í dag að leggja meira fé til hliðar vegna vaxandi áhættu að undanförnu með því að auka framlög þeirra í sveiflujöfnunarsjóð. Bankarnir, heimilin og fyrirtækin standi þó almennt vel og vanskil sjaldan verið minni. Innlent 15.3.2023 19:31
Telja fjármálakerfið hér standa traustum fótum Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur að innlent fjármálakerfi standi traustum fótum. Þó hafa fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja farið versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát. Viðskipti innlent 15.3.2023 08:43
Milljón íbúða verkefnið Besta vopnið gegn verðbólgu og háum vöxtum er langtíma stöðugleiki á húsnæðismarkaði. Skoðun 9.3.2023 20:30
Varaseðlabankastjóri: Villandi samanburður á getu til fasteignakaupa Taka þarf tillit til launahækkana og skattabreytinga þegar borin er saman greiðslugeta heimila til fasteignakaupa á nokkra ára tímabili. Staðan er ekki jafn slæm og stundum birtist í samanburði í fjölmiðlum. Í yfir 70 prósentum tilvika hafa tekjur hækkað meira en greiðslubyrði lána. Rétt er að bera saman 250 þúsund krónur árið 2020 við 450 þúsund krónur í dag. Innherji 9.3.2023 12:34
Heildin hafi það býsna gott Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir að gögn Seðlabankans sýni að meirihluti lánþega á fasteignamarkaði hafi það býsna gott, þrátt fyrir núverandi efnahagsárferði. Áhyggjur stjórnmálamanna ættu að snúa að þeim sem ekki hafa keypt sér húsnæði og eru á leigumarkaði. Viðskipti innlent 9.3.2023 11:42
Velferðarsamfélag í fremsta flokki eigi að vera komið lengra Um tíu þúsund börn búa við fátækt á Íslandi og fjölgar þeim milli ára. Leiðtogi hjá Barnaheillum segir fólk festast í fátæktargildru, sem erfitt reynist að komast út úr og erfist jafnvel milli kynslóða. Mismunun eigi sér stað til að mynda þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu. Stjórnvöld þurfi að marka stefnu, sem hingað til hefur ekki verið til staðar, og uppræta fátækt í eitt skipti fyrir öll. Innlent 7.3.2023 21:23
„Það er allt á uppleið, það er bara þannig“ Pasta, díselolía og kál eru á meðal þess sem hækkað hefur hvað mest í verði síðastliðið ár. Sjónvörp og leikjatölvur hafa hins vegar lækkað lítillega, nú þegar verðbólga er komin yfir tíu prósent. Almenningur finnur fyrir hækkunum á mörgum vígstöðvum. Innlent 5.3.2023 19:01
Forðast þurfi með öllum ráðum að lenda í vonda vítahringnum Formaður Framsóknarflokksins segir að það ófremdarástand sem skapaðist í efnahagsmálum á níunda áratugnum, með víxlverkun launahækkana og verðlags, megi aldrei endurtaka sig. Allir sem eitthvað geti gert verði að leggjast á eitt til að tryggja að svo verði ekki. Innlent 5.3.2023 13:00
Ekki auðveld ákvörðun framundan hjá fjölmörgum Deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka segir það mikilvægt að fólk fresti ekki vanda sínum þegar kemur að hærri greiðslubyrði á lánum. Fastir vextir á fjölmörgum lánum munu losna á næstu mánuðum og margir gætu lent í ansi miklum vandræðum fari stýrivöxtum og verðbólgu ekki lækkandi. Neytendur 4.3.2023 09:42
Fyrirtæki og launþegar gæti hófsemi til að ná niður verðbólgu Fjármálaráðherra hefur miklar áhyggjur af hárri verðbólgu en varar við vítahring launahækkanna sem leiti aftur út í verðlag. Forsætisráðherra biðlar til fyrirtækja að gæta hófsemi í arðgreiðslum og álagningu. Húsnæðiskostnaður heimilanna hækkar gríðarlega vegna samspils stýrivaxtahækkana og verðbólgu. Innlent 28.2.2023 20:01
Framúrkeyrsla stofnana mikið áhyggjuefni Hækkun verðbólgu umfram allar spár er mikið áhyggjuefni segir fjármálaráðherra. Hann gagnrýnir framúrkeyrslu stofnanna og segir að tekið verði á því í næstu fjármálaáætlun. Engar auðveldar leiðir séu í boði þegar mönnum hafi mistekist á ná tökum á verðbólgunni. Innlent 28.2.2023 16:40