Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 20. nóvember 2024 12:03 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð. Seðlabankastjóri segir skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna mjög hratt og hagkerfið að kólna.
Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti ákvörðun sína í dag. Þetta er í annað skipti í röð sem vextirnir eru lækkaðir. Í síðustu stýrivaxtaákvörðun í byrjun október voru þeir lækkaðir um 25 punkta og var það í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 sem það gerðist. Verðbólga hefur hjaðnað undanfarið og mældist 5,1% í október. Á fundi Peningastefnunefndar kom fram að hjöðnun verðbólgu sé á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hafi einnig minnkað. Þá hafa verðbólguvæntingar almennt minnkað og raunvextir því hækkað. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir greinileg merki um kólnun í hagkerfinu. „Við erum að sjá mjög skýr merki um það er að hægjast á efnahagslífinu, verðbólga er að hjaðna og vinnumarkaður að kólna. Við sjáum skýr merki um að verðbólga er að hjaðna mjög hratt,“ segir Ásgeir. Verðbólguviðmið náist á næstu misserum Ásgeir er bjartsýnn á að verðbólguviðmið Seðlabankans náist á næstu misserum um 2,5 prósent verðbólgu. „Við erum að vona að á seinni hluta næsta árs getum við verið komin mjög nálægt markmiðum okkar,“ segir hann. Kosningar hafi ekki áhrif Kosningar eru eftir eina og hálfa viku 30. nóvember. Ásgeir segir að það hafi ekki komið til greina að fresta ákvörðun bankans fram yfir kosningar. „Það kom aldrei til greina. Seðlabankinn hefur sínar skyldur þessi fundur var ákveðinn fyrir löngu síðan og við erum að sinna okkar starfi,“ segir hann. Aðspurður um hvaða áhrif aðgerðir stjórnvalda hafi á verðbólguþróun svarar Ásgeir: „Það erfitt að leggja mat á það. Það er mjög jákvætt að verðbólga sé rædd í kosningabaráttu og að allir flokkar í framboði leggi áherslu á þetta mál sem ég er mjög ánægður með,“ segir Ásgeir. Ásgeir segir erfitt að meta hvaða áhrif hugmyndir flokkanna um aðgerðir til að sporna við verðbólgu hafa í raun. „Ég veit það ekki. Við verðum bara að sjá, það er mjög eðlilegt þegar kosið að ákveðnar hugmyndir séu ræddar svo er það þjóðin sem ákveður,“ segir Ásgeir.
Kosningapróf - Kjóstu rétt Taka prófið Seðlabankinn Alþingiskosningar 2024 Mest lesið „Það var reitt hátt til höggs“ Innlent Segist vita hver vó Geirfinn Innlent „Ég get ekki séð að það sé einokun þegar samkeppnin kemur erlendis frá“ Innlent Brugðist við vaxtalækkun: „Ævintýralegur halli“ og „verðbólga í frjálsu falli“ Innlent Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Erlent Vita ekki hvað fór úrskeiðis Innlent Sá hvítt eftir árás með járnkarli Innlent Viðurkenndi árás á hinn látna en segist ekki bera ábyrgð á áverkum Innlent Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Innlent Fundu heitt vatn á Kjalarnesi og Geldingarnesi Innlent Fleiri fréttir „Ég get ekki séð að það sé einokun þegar samkeppnin kemur erlendis frá“ Pallborðið: Er harka að færast í leikinn? Krefst undanbragðalausra skýringa á því hversvegna Vestfirðir voru snuðaðir Sérfræðingar fengnir til að liðka fyrir viðræðum Vaxtalækkun fellur í góðan jarðveg Fundu heitt vatn á Kjalarnesi og Geldingarnesi Sá hvítt eftir árás með járnkarli Brugðist við vaxtalækkun: „Ævintýralegur halli“ og „verðbólga í frjálsu falli“ Samþykktu að strætó stoppi við Egilsstaðaflugvöll Viðurkenndi árás á hinn látna en segist ekki bera ábyrgð á áverkum Festist undir þili milli klósettbása en slapp með sært stolt „Það var reitt hátt til höggs“ Skallaði lögreglumann sem hugðist hafa af honum afskipti Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Segist vita hver vó Geirfinn Miðflokksmenn séu mestu vælukjóarnir Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Vita ekki hvað fór úrskeiðis Lykildagar fram undan: „Það er mjög erfitt ástand á heimilinu“ Hinsegin fólk í Bandaríkjunum horfir til Íslands „Klassískt dæmi“ um sérhagsmunagæslu Framsóknar og Sjálfstæðisflokks Sérhagsmunagæsla, lykildagar og bókaormar í beinni Málglaðasti þingmaðurinn talaði í þrjá og hálfan sólarhring Bein útsending: Kosningafundur Flugmálafélags Íslands Eftirlitið skipar afurðastöðvum að stöðva aðgerðir tafarlaust Ólíklegt að gjósi í nóvember Óheppilegt að setja Jón í ráðuneytið Sautján mál urðu að lögum og tvær þingsályktanir samþykktar Auka öryggið á Bland.is vegna svikahrappa Sjá meira