Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. október 2026 19:48 Benedikt segir að gleymst hafi að taka með í reikninginn áhrifin af hækkuninni á vöruflutninga. Hækkun kílómetragjalds á flutningabíla mun skila sér beint út í verðlag hér á landi að sögn framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Hann segir breytingarnar koma á óheppilegum tíma þegar heimsmarkaðsverð olíu sé í hæstu hæðum, gleymst hafi að líta til áhrifa hækkunarinnar á vöruflutninga.
Þetta er meðal þess sem fram kom í Reykjavík síðdegis þar sem rætt var við Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Hann segir fyrirhugaðar hækkanir á kílómetragjaldi fela í sér mun meiri breytingar fyrir einkaaðila í flutningageiranum heldur en almenna bílaeigendur. „Eins og þetta er sett fram þá skiptist þetta í tvennt. Þetta er annars vegar þessi 5,2 prósent verðlagsuppfærsla sem að er gerð og svo sérstök tekjuaðgerð, eins og þeir kalla það, og samanlagt nær þetta 15,9 prósent hækkun á kílómetragjaldi milli ára. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa sagt að það muni ekki um krónu, þetta er einhver rúm króna á kílómeterinn á fólksbílum. En það sem að mínu mati hefur gleymst að líta til er að í vöruflutningunum er þetta miklu stærri breyting.“ Ertu með dæmi? „Já. Algengasta ækið í flutningum á Íslandi er sem sagt dráttarbíll svokallaður með eftirvagni og þá er þetta 26 tonna bíll, átján tonna vagn. Og breytingin á milli ára á kílómetragjaldinu í tilviki slíkra bíla verður 27,5 prósent og ég hef séð dæmi um aðrar samsetningar á ækjum þar sem þetta er komið upp fyrir þrjátíu prósent og ég sá reyndar ekki betur en að í minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu hefði komið fram að í tilviki hópferðabíla væri þetta komið bara hátt í fjörutíu prósent mun á milli ára.“ Benedikt segir að fyrir vörubílstjóra sem aki með dagvörur um 120 þúsund kílómetra á ári geti þetta munað tveimur milljónum á ári í aukinn rekstrarkostnað. Hann segir Bílgreinasambandið hafa fengið leyfi hjá flutningafyrirtæki á markaði til að skoða ársreikning þess fyrir 2024 og skala hann upp ef breytingin hefði verið búin að taka gildi þá. „Þá sáum við að afkoma fyrirtækisins fór úr einhverjum þremur milljónum í plús niður í tuttugu milljónir í mínus. Sem segir okkur það að þetta mun náttúrulega rata út í verðlagið. Þar eru svona nokkrir þættir sem verða fyrir áhrifum af þessu. Í fyrsta lagi hækkar kostnaðru við flutning á dagvöru, varahlutum eða hvað það er út á land. Það hækkar líka flutningskostnaður hérna á landi, til dæmis á flutningi á ferskum fiski frá Vestfjörðum á suðvesturhornið.“ Hann segir það alvarlegasta í málinu vera það að um verulega óheppilegan tímapunkt sé að ræða. Frá janúarbyrjun hafi verð á dísilolíu hækkað um 42 prósent og verð á flugvélaeldsneyti um nánast sömu tölu. „Þannig að sá sem er að flytja út ferskan fisk eða hvað eigum við að segja, frá fiskvinnslu einhverstaðar á Vestfjörðum, hann tekur annars vegar á sig hækkunina á flutningskostnaði vegna kílómetragjaldsins, svo vegna hækkana á disilolíu og í þokkabót hækkun á vöruflutningaverði vegna flugs erlendis.“ Og allt saman ratar þetta út í verðlagið? „Það ratar annars vegar út í verðlag hjá almenningi, það endar alltaf þannig og hinsvegar í þrengri stöðu útflytjenda vara.“
Kílómetragjald Verðlag Reykjavík síðdegis Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira