Viðskipti innlent

Play komið í eignasafn Icelandair

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Einar

Tæplega helmingshlutur í maltneska félaginu Fly Play Europe Holdco ehf. er nú í eigu Icelandair. Félagið er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Markmiðið er að auka sveigjanleika félagsins og skapa möguleika á hagræðingu í flugrekstrinum á Íslandi. 

Í ágúst var tilkynnt að búið væri að ganga frá kaupunum en í tilkynningu til Kauphallar í dag kemur fram að hluturinn sé formlega kominn í eignasafn Icelandair eftir að búið var að uppfylla öll skilyrði kaupsamnings. 

Samkvæmt kaupsamningi kaupir Icelandair 49 prósenta hlut í FPE og kaupverðið nemi 686 þúsund bandaríkjadölum eða 83,4 milljónum króna. Samhliða viðskiptunum hafi hluthafasamkomulag verið gert, samið um fjármögnun og möguleika Icelandair til að auka eignarhlut sinn í félaginu síðar. 

Viðskiptin voru meðal annars háð fyrirvara um að samkomulag næðist við maltnesk flugmálayfirvöld um áframhaldandi notkun flugrekstrarleyfis FPE.

„Að eignast hlut í flugrekstrarleyfi á Möltu er fyrst og fremst hugsað til þess að auka sveigjanleika í rekstri, styrkja samkeppnishæfni Icelandair og skapa ný tækifæri – allt til þess að tryggja áframhaldandi uppbyggingu tengimiðstöðvarinnar í Keflavík og þar með störf og öflugt starfsumhverfi í flugrekstri á Íslandi til framtíðar,“ var haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í ágúst. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×