Ragnar Jónasson til liðs við Logos Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. október 2026 11:48 Ragnar Jónasson er betur þekktur fyrir störf sín á vettvangi ritlistarinnar. HAG Ragnar Jónasson hefur hafið störf sem sérstakur ráðgjafi hjá lögmannsstofunni Logos. Hann mun sinna afmörkuðum verkefnum á sviði viðskiptaþróunar samhliða ritstörfum.
Fram kemur í tilkynningu frá Logos að samhliða ritstörfum hafi Ragnar víðtæka reynslu af lögfræðitengdum störfum í atvinnulífinu. Áður starfaði hann í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, var yfirlögfræðingur Gamma og gegndi stöðum forstöðumanns skrifstofu slitastjórnar Kaupþings og forstöðumanns lögfræðiráðgjafar Arion banka. Feril sinn hóf hann hjá Kaupþingi í fyrirtækjaráðgjöf og á lögfræðisviði. Ragnar er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og kennir við lagadeild Háskólans í Reykjavík. „Traust tengsl og stöðug þróun þjónustu við viðskiptavini eru undirstaða í starfsemi LOGOS. Með nýju hlutverki Ragnars styrkjum við enn frekar þá þekkingu og reynslu sem LOGOS byggir á í samskiptum við viðskiptavini sína. Ragnar þekkir vel til bæði lögfræðilegrar ráðgjafar og þarfa jafnt einstaklinga sem fyrirtækja eftir langan feril á fjármálamarkaði. Sú reynsla mun nýtast vel í starfinu,“ er haft eftir Jóni Elvari Guðmundssyni framkvæmdastjóra. Ragnar er einn þekktasti rithöfundur landsins og hefur notið mikillar velgengni erlendis. Undanfarin ár hefur hann að mestu helgað sig ritstörfum. Bækur hans hafa komið út í 35 löndum sem hann hefur fylgt eftir á fjölmörgum viðburðum og í fjölmiðlum víða um heim. „Ritstörf og ferðalög þeim tengd hafa sannarlega tekið yfir tíma minn að mestu undanfarin ár og gera enn og færa mér mikla ánægju. Ég hef hins vegar alltaf reynt að halda lögfræðiþekkingunni við að því marki sem kostur er og hef til dæmis kennt sem stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík í meira en fimmtán ár. Ég kann því vel að meta að fá tækifæri til að geta sinnt afmörkuðum verkefnum hjá LOGOS á sviði lögfræðinnar samhliða ritstörfum,“ er haft eftir Ragnari.
Vistaskipti Lögmennska Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira