Klakki, áður Exista, gjaldþrota Árni Sæberg skrifar 30. október 2026 11:59 Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, voru stærstu eigendur Exista á sínum tíma. Klakki ehf., sem hét áður Exista og var eitt stærsta félag landsins á árunum fyrir hrun, er gjaldþrota.
Í auglýsingu í Lögbirtingarblaði dagsins segir að segir að bú Klakka hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 23. október, með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Frestdagur við gjaldþrotaskiptin sé 12. október síðastliðinn og skiptafundur verði haldinn 19. janúar næstkomandi. Skorað sé alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra í búinu innan tveggja mánaða frá birtingu innköllunar. Klakki ehf. er eignarhaldsfélag sem komst í eigu innlendra og erlendra fjárfesta eftir nauðasamninga árið 2010. Þá hét félagið Exista ehf. Eini eigandi Klakka í dag er BLM fjárfestingar ehf., sem er alfarið í eigu Burlington Loan Management, írsks skúffufyrirtækis sem er fjármagnað og stýrt af bandaríska sjóðstýringarfyrirtækinu Davidson Kempner. BLM fjárfestingar keyptu Klakka af Lindarhvoli, félagi utan um svokallaðar stöðugleikaeignir ríkisins, árið 2016 og kaupin leiddu af sér heljarinnar málaferli: Sem áður segir var Exista eitt stærsta félag landsins á árunum fyrir hrun en meðal eigna þess voru stórir hlutir í VÍS, Bakkavör, Kaupþingi og Símanum. Samkvæmt ársreikningi Klakka fyrir síðasta ár var félagið svo gott sem eignalaust í lok ársins. Stærstu eigendur og forsvarsmenn Exista á gullaldarárum félagsins voru bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, sem ávallt eru kenndir við Bakkavör.
Hrunið Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira