Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Árni Sæberg skrifar 30. október 2026 14:35 María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása. Ásar Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Ása, áður Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samþykkið er þó háð því skilyrði að Öryggismiðstöðin bjóði ekki betri kjör á öryggisþjónustu ef kaupandi er í fjarskiptaviðskiptum við Símann.
Í tilkynningu Ása til Kauphallar segir að kaupin séu mikilvægur liður í vaxtarstefnu Ása og styrki áframhaldandi uppbyggingu samstæðunnar. Að viðskiptunum loknum sé áætlað að tekjur samstæðunnar verði allt að 50 milljarðar króna og EBITDA hátt í 10 milljarðar króna á ársgrundvelli þegar samlegðaráhrif eru að fullu komin fram. Skilyrt samþykki Samþykki Samkeppniseftirlitsins sé veitt á grundvelli sáttar sem Ásar og Samkeppniseftirlitið hafi undirritað og feli í sér skilyrði. Markmið þess sé að efla og vernda virka samkeppni á mörkuðum og bregðast við mögulegri röskun á samkeppni. Í skilyrðinu felist að óheimilt verði að gera sérstök kjör til heimila á vaktaðri öryggisþjónustu háð því að viðkomandi heimili sé jafnframt í viðskiptum við félögin um talsímaþjónustu eða internetþjónustu um fastlínu. Félögunum verði þó ávallt heimilt að mæta samkeppni frá samkeppnisaðilum sem bjóða slík kjör. Skilyrðið falli niður að fimm árum liðnum en geti fallið niður fyrr ef hlutfall internettenginga Símans ehf. fari niður fyrir skilgreind viðmið. Enn fremur lýsi Ásar því yfir að ekki séu til staðar áform um að breyta því fyrirkomulagi að félögin séu rekin sem dótturfélög, í samræmi við yfirlýsta stefnu samstæðunnar, án þess að skilyrði þess efnis sé sett. Þá sé því lýst yfir að markmið kaupanna sé ekki að bjóða umfangsmiklar heildarlausnir þannig að útilokandi áhrif myndist á fyrirtækjamarkaði, og að félögin hafi við undirritun sáttarinnar engin áform um að bjóða blandaða vöndlun með vaktaðri öryggisþjónustu innifalinni sem sé til þess fallin að hafa útilokunaráhrif í för með sér á fyrirtækjamarkaði. Tæplega fjórtán milljarða virði Gert sé ráð fyrir að framkvæmd viðskiptanna eigi sér stað á næstu vikum í samræmi við kaupsamninga aðila. Samanlagt heildarvirði OK og ÖMÍ í viðskiptunum nemi 13.750 milljónum króna að viðbættum leiguskuldbindingum, sem séu áætlaðar um 1.000 milljónir króna. Endanlegt kaupverð til greiðslu ráðist þó meðal annars af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs. Kaupin verði fjármögnuð með hlutafé í Ásum, lánsfé og handbæru fé. Miðað sé við að um 6.025 milljónir króna verði greiddar með afhendingu á um það bil 390 milljónum hluta. Endanlegur fjöldi hluta muni þó ráðast af kaupverði eftir leiðréttingu vegna veltufjármuna og skulda.
Síminn (Ásar) Kaup og sala fyrirtækja Fjarskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira